Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 67
46 3. september 2005 LAUGARDAGUR
Þegar ég var lítil
elskaði ég vetur
og snjó því þá gat
maður farið á
skíði, rennt sér á
snjóþotu, ærslast í
snjóslag og byggt
snjóhús. Ég var
allan daginn að
ólmast í Laugar-
dalnum, sem
breyttist í ævintýraheim þegar
snjórinn kom, dúðuð í snjógalla og
með lúffur. Sumarið var ekki nærri
því jafn skemmtilegur tími því þá
voru allir krakkarnir í sveitinni eða
útlöndum og mýrin í dalnum gerði
mann að einu drullustykki á ör-
skotsstundu.
Þessi vetrarástríða mín hefur
heldur betur horfið með árunum og
eftir situr aðeins kvíði og leiði yfir
níu mánuðum af myrkri og kulda.
Það er hægara sagt en gert að skella
sér í snjógallann á milli þess sem
maður hleypur frá einu húsi í annað
á háskólalóðinni, fyrir utan það að
heila ferðatösku þyrfti undir
hafurtaskið sem fylgdi manni væri
hlífðarfatnaðurinn í takt við veðrið.
Í staðinn læt ég mig hafa það að
hristast af kulda heilu og hálfu dag-
ana í einni aumri úlpu og barma mér
svo enn frekar yfir þurrum, frost-
bitnum vörum og rafmögnuðu hári.
Svo er kuldinn ekki einu sinni það
versta, því myrkrið er farið að fara
ískyggilega með geðheilsu mína sem
nær algjöru lágmarki í janúar með
tilheyrandi fýlu og aðgerðarleysi.
Þetta árið ætla ég ekki að láta
veturinn sigra mig og er þegar
byrjuð að undirbúa mig andlega og
líta á björtu hliðarnar. Ég ætla að
reyna að vera dugleg að kveikja á
kertum því fátt er friðsælla en
kertaljós í myrkri. Ég ætla að fara
oftar í heita pottinn minn þar sem
er frábært að liggja og skoða
stjörnurnar á heiðskírum kvöldum.
Ég ætla að vera duglegri að kveikja
í arninum sem aldrei er notaður,
bjóða vinum oftar í mat og skella
mér síðan einu sinni eða tvisvar í
„sumarbústað“.
Ef þetta dugar ekki get ég alltaf
huggað mig við það hvað ég á ein-
staklega góða að: bestu mömmu í
heimi, yndislegan kærasta, frábær
systkini og góða vini.
STUÐ MILLI STRÍÐA
SÓLEY KALDAL HELDUR ÚT Í VETURINN MEÐ BROS Á VÖR.
Læri að sætta mig við það óumflýjanlega
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
9 2 7 8
3 8 4 9
5 6 2
4 6 7 9 2
9 2 5
3 1 4 5 8
2 5 1
7 1 6 4
1 4 8 3
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
4 9 6 2 3 5 1 7 8
2 3 8 7 4 1 9 5 6
5 7 1 9 8 6 4 2 3
8 5 4 1 6 7 3 9 2
7 6 9 8 2 3 5 1 4
3 1 2 4 5 9 8 6 7
6 2 3 5 9 4 7 8 1
9 8 7 3 1 2 6 4 5
1 4 5 6 7 8 2 3 9
Lausn á gátu gærdagsins
Stuttu
síðar.... Gjörsamlega
EKKERT!
Hvers á ég að gjalda?
Hvar eru bankaræn-
ingjarnir og axar-
morðingjarnir þegar
ég þarfnast þeirra?
Hvað er þetta? Það hlýtur
einhver glæpamaður að
hafa þor og dug í að mæta
hingað í leikhús glæpanna
og leyfa mér að spreyta
mig í mínu fyrsta hlutverki!
Skyndilega...
Hvað, er
mótleikari
mættur?
Hvað nú?
Almáttugur!
Fylgist með!
Ó nei! Þarna
er Anna
aftur!
Og?
Og hún er að gera
mig brjálaðan!
Og hvað
er vanda-
málið?
Ég veit ekki hvað
vandamálið er!
Það er ÞAÐ sem
er vandamálið!
Hvað er nú
þetta?
Ég hef ákveðið að
láta mér vaxa
yfirvaraskegg.
Það er
strákur í
bekknum
mínum sem
borðar
horið sitt!
Fliss!
Solla!
Svona á maður
ekki að tala um
við matarborðið!
Við myndum öll kunna að meta
það ef þú talaðir um eitthvað
sem er ekki svona ógeðslegt á
meðan við erum
að borða!
Ó
Minnið mig þá á að segja
ykkur á eftir frá stóru
ælunni í matsalnum.
Hún bíður eftir mér á
ganginum, hún hringir
stanslaust heim og hún
sendir mér skilaboð!