Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 2
2 3. september 2005 LAUGARDAGUR
Dómur eftir öldu innbrota á höfuðborgarsvæðinu:
Sextán ára dæmdur í fangelsi
DÓMSTÓLAR Sextán ára gamall pilt-
ur var í gær dæmdur í sextán
mánaða fangelsi fyrir fjölda inn-
brota og þjófnaðarmála, en
ákæruliðir voru yfir tuttugu tals-
ins. Dóminn kvað upp Guðjón St.
Marteinsson héraðsdómari í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur.
Drengurinn var ákærður
ásamt fjórum öðrum piltum á
aldrinum sextán til átján ára.
Þrettán mánuðir refsingarinnar
voru skilorðsbundnir í tvö ár, en
að auki koma til frádráttar sex
vikur sem drengurinn sat í sí-
brotagæslu. Hann þarf engu að
síður að sitja af sér um einn og
hálfan mánuð í fangelsi.
Pilturinn og félagar hans voru
orðaðir við það sem kallað var
alda innbrota á höfuðborgarsvæð-
inu, en lögreglan í Reykjavík átti í
samstarfi við barnaverndaryfir-
völd við rannsókn málanna því
einnig komu börn við sögu í inn-
brotunum.
Utan innbrota sneru einnig
ákæruliðir að fjársvikum, um-
ferðarlagabrotum og vörslu am-
fetamíns og kannabisefna. - óká
FANGELSISMÁL Áætlað er
að sex til átta geðsjúkir
einstaklingar, sem
þyrftu að vera á geð-
hjúkrunarstofnunum,
afpláni nú í fangelsum
landsins, að sögn Önnu
Kristínar Newton, sál-
fræðings hjá Fangelsis-
málastofnun. Um er að
ræða einstaklinga sem
eru mjög veikir og
myndi líða betur og
vegna betur annars
staðar en innan fangels-
isveggjanna.
„Heilbrigðisteymi er
starfandi í öllum fang-
elsunum, sem reynir að
sinna þessum einstak-
lingum eftir bestu getu og vinnur
mjög vel ,“ segir hún. „Þá er um
að ræða sálfræðilega og læknis-
fræðilega aðstoð, svo og geð-
hjúkrunarfræðinga. Á Litla-
Hrauni, sem er stærsta
fangelsið, er heilbrigð-
isstarfsmaður til taks á
hverjum virkum degi.
Því er hægt að hafa
eftirlit með þeim ein-
staklingum sem eru
mjög illa staddir.“
Anna Kristín segir
að dugi það ekki til sé
leitað til geðdeildar.
Ástandið þurfi að vera
orðið mjög slæmt til að
einstaklingur sé lagður
þar inn. Þá sé stundum
brugðið á það ráð að
senda fanga milli fang-
elsa til að koma þeim
nær þeirri aðstoð sem
þeir þurfi á að halda. Þá
beri að geta þess að heilbrigðis-
ráðherra hefur veitt fjármunum í
hálfa stöðu geðlæknis til að sinna
fangelsismálum en hana hafi enn
ekki tekist að manna. - jss
Föngum hafna›
á öryggisge›deild
Ge›sjúkir fangar eru ekki teknir inn á sérhæf›a öryggisge›deild á Kleppsspítala,
segir Valt‡r Sigur›sson fangelsismálastjóri. Hann hefur ítreka› vaki› athygli
stjórnvalda á stö›u heilbrig›ismála fanga og bindur vonir vi› n‡tt fangelsi.
FANGELSISMÁL Geðsjúkir fangar fá
ekki inni á sérhæfðri öryggisdeild
fyrir alvarlega geðsjúka sem opn-
uð hefur verið á Kleppsspítala.
Þetta segir Valtýr Sigurðsson
fangelsismálastjóri og segir ofan-
greinda ákvörðun tekna af yfir-
mönnum geðsviðs Landspítala -
háskólasjúkrahúss.
Fram kom í Fréttablaðinu í
gær að réttargeðdeildin á Sogni
væri „kolsprungin,“ eins og Drífa
Eysteinsdóttir, yfirhjúkrunar-
fræðingur þar, orðaði það. Þar er
einungis pláss fyrir ósakhæfa
fanga. Hinir sem úrskurðaðir
hafa verið sakhæfir og eru geð-
sjúkir fá umönnun hjá starfandi
hjúkrunarteymi. Erfiðara er um
vik ef koma þarf geðsjúkum
fanga inn á geðdeildir.
Fangelsismálastjóri hefur
vakið athygli stjórnvalda á stöðu heilbrigðismála fanga og meðal
annars ritað Jóni Kristjánssyni
heilbrigðisráðherra bréf. Þar segir
að „sláandi skortur“ sé á aðstöðu
skammtímasjúkrahúsvistunar
fyrir fanga sem séu með alvarlega
geðræna sjúkdóma og fanga sem
taldir séu í sjálfsvígshættu.
Valtýr rifjar upp dæmi sem
hann nefndi á málþingi um mál-
efni fanga, þar sem sátu heil-
brigðisráðherra og fagfólk úr
heilbrigðisgeiranum ásamt fleir-
um. Það er úr bréfi læknis við
fangelsi á höfuðborgarsvæðinu,
með leyfi viðkomandi fanga, til
geðdeildar LSH, þar sem um er að
ræða kvenfanga sem afplánað
hafði í tvö ár en átti eftir sex:
„...Hafði verið í miklum geð-
sveiflum, undanfarið verið mjög
„óstabíl“ og ósátt, mjög grátgjörn
og reið til skiptis. ...Hefur nú í þrí-
gang skorið sig, bæði olnbogabót
og úlnlið og að minnsta kosti í eitt
skiptið blæddi talsvert. Reyndi
einu sinni að hengja sig í öðru
fangelsi og einu sinni að kæfa sig
með plastpoka. Af þessum sökum
var ástand hennar talið orðið
mjög ótryggt og vildi læknirinn fá
mat og meðferð geðlæknis á
ástandi hennar. Klukkan 15.12 var
hún flutt á geðdeild LSH þar sem
geðlæknir skoðaði hana og kann-
aði gögn. Klukkan 16.15 var við-
talinu lokið og klukkan 16.28 var
hún komin aftur í Hegningarhús-
ið...“
Valtýr undirstrikar að afar
mikilvægt sé að í hinu nýja fang-
elsi sem fyrirhugað er að byggja á
Hólmsheiði, verði meðal annars
sjúkradeild fyrir sakhæfa fanga
sem þurfi á bráðameðferð að
halda meðal annars vegna alvar-
legrar persónuleikaröskunar.
jss@frettabladid.is
Banaslys um borð í báti:
Klemmdist
milli toghlera
SLYS Fimmtugur maður lést þegar
hann klemmdist á milli trollhlera
um borð í togbátnum Hauki EA
um klukkan hálf
níu á fimmtu-
dagskvöldið. Bát-
urinn var þá um
þrjátíu sjómílur
vestnorðvestur af
Garðskaga. Talið
er að maðurinn
hafi látist nær
samstundis.
Þyrla Land-
helgisgæslunnar sótti hinn látna.
Haukur EA kom í land í Hafnar-
firði um klukkan fjögur aðfara-
nótt föstudags og stóðu skýrslu-
tökur vegna slyssins yfir hjá lög-
reglu í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar í Hafnarfirði
var gert ráð fyrir að því lyki í dag.
Maðurinn hét Ásgeir Arnar Jóns-
son og var til heimilis á Húsavík.
Hann var fráskilinn og lætur eftir
sig sjö börn. - óká
Umferðartafir í Hafnarfirði:
Reykjavíkur-
vegur loka›ur
LÖGREGLA Búast má við umferð-
artöfum á Reykjavíkurvegi í
Hafnarfirði næsta mánuðinn en
þar verður frá og með deginum í
dag unnið að gerð nýs hringtorgs
við Arnarhraun.
Að sögn lögreglu í Hafnarfirði
verður umferð beint um hjáleið
um Hjallabraut, Hraunbrún og
Flatahraun, meðan á framkvæmd-
um stendur. Lögregla biður öku-
menn að sýna þolinmæði meðan á
þessum framkvæmdum stendur
og hvetur fólk til að leggja tíman-
lega af stað, eigi það erindi í eða
úr miðbæ Hafnarfjarðar.
- óká
HÚSIÐ VIÐ MJÓSTRÆTI Húsið er gjörónytt
eftir brunann eins og sjá má en eldurinn
var fljótur að breiðast út.
Húsbruni á Siglufirði:
Alelda á
augabrag›i
BRUNI Hús við Mjóstræti á Siglu-
firði er gjörónýtt eftir að hafa
brunnið í fyrrinótt. Til allrar mildi
höfðu íbúar þess flutt úr húsinu
og tekið alla búslóðina deginum
áður en bruninn varð. Húsið stóð
því autt.
Að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði varð húsið alelda á auga-
bragði en tilkynnt var um brun-
ann um klukkan tvö um nóttina.
Eldsupptök eru ekki kunn en
tæknideild lögreglunnar í Reykja-
vík fer til Siglufjarðar á mánudag
til að rannsaka málið. - jse
ÓTRAUÐIR Í VIÐRÆÐURNAR Leið-
togar Evrópusambandsins eru
bjartsýnir á að aðildarviðræður
geti hafist við Tyrki 3. október
eins og áformað var. Babb kom í
bátinn þegar tregða Tyrkja til að
viðurkenna hinn gríska hluta
Kýpur kom í ljós en menn eru
bjartsýnir á að leysa megi þau
mál við samningaborðið.
Kortasalan stendur yfir!
Opið kort
Gildir á fi mm sýningar
Þegar löngunin grípur þig!
Verð: 10.500 kr.
Áskriftarkort á Stóra sviðið
Gildir á fi mm sýningar
Þitt sæti!
Verð: 10.500 kr.
Áskriftarkort á minni sviðini
Gildir á sex sýningar
Frábær kjör!
Verð: 10.500 kr.
www.leikhusid.is
SPURNING DAGSINS
Runólfur, er kominn tími til
a› fara a› hjóla?
„Já.“
Runólfur Ólafsson er framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda. Bensínverð hefur hækk-
að umtalsvert á síðustu dögum og nálgast lítrinn
118 krónur.
EVRÓPUSAMBANDIÐ
LÖGREGLUFRÉTTIR
Dæmd í þingfestingu:
Sett á skilor›
DÓMSTÓLAR Málum þriggja ung-
menna var í gær lokið strax við
þingfestingu í Héraðsdómi Reykja-
víkur.
Símon Sigvaldason héraðsdóm-
ari áminnti nítján ára pilt um að
halda sig nú réttu megin laganna.
Hann hafði undir lok skilorðstíma
dóms frá árinu 2003 verið gripinn
með lítilræði af tóbaksblönduðu
hassi. Þetta var hans fjórða brot á
skilorðstímanum. Hann var dæmd-
ur í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi.
Þá var eldra þjófnaðar- og hylm-
ingarmál átján ára pars sem bætt
hefur ráð sitt sameinað fyrri dómi
og þau dæmd í tveggja mánaða
fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár.
- óká
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Hópur geðsjúkra sem
dvelja bak við lás og slá
þyrfti að vera á geð-
hjúkrunarstofnunum.
Hópur geðsjúkra sem afplána í fangelsum:
fiyrftu a› vera á ge›sjúkrahúsi
ÁSGEIR ARNAR
JÓNSSON
Lóðaumsóknir á Fáskrúðsfirði:
Vaxandi
búsetuáhugi
ÞENSLA Einstaklingar á höfuðborg-
arsvæðinu, fyrir hönd óstofnaðs
hlutafélags, hafa sótt um 23 íbúð-
arlóðir í Hlíðarhverfi á Fáskrúðs-
firði.
Steinþór Pétursson, sveitar-
stjóri Austurbyggðar, segir þetta
stærstu lóðaumsókn sem sveitar-
félaginu hafi borist og lýsandi
dæmi um vaxandi áhuga fólks á
búsetu í sveitarfélaginu og upp-
sveifluna á Austurlandi.
„Við munum eiga fund með
þessum aðilum í september þar
sem farið verður nánar yfir hug-
myndir þeirra varðandi uppbygg-
ingu hverfisins,“ segir Steinþór.
- kk
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR Hlíðarhverfi er innan
við dvalarheimilið Uppsali, sem er efst til
vinstri á myndinni, en þar á að vera blönd-
uð byggð með eignar- og þjónustuíbúðum.
FANGELSISMÁLASTJÓRI Valtýr Sigurðsson
hefur vakið athygli stjórnvalda á stöðu
heilbrigðismála fanga.
LITLA-HRAUN Þar hafa mjög veikir einstaklingar verið í afplánun um lengri eða skemmri tíma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
IN
G
RÍ
M
U
R
KR
IS
TI
N
SS
O
N
SÉÐ YFIR VESTURBÆINN Sextán ára piltur
sem í gær var dæmdur í sextán mánaða
fangelsi kom við sögu í fjölda innbrota á
höfuðborgarsvæðinu, bæði í íbúðir og bíla,
frá því snemma á árinu. Þá var hann kærð-
ur fyrir að taka við þýfi og greiða fyrir með
hassi.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
ELDUR Á MIKLATÚNI Krakkar
sem voru að leik á Miklatúni í
gærkvöldi komu auga á eld sem
logaði í túninu. Brugðust þeir
vasklega við og slökktu eldinn.
Kveikt hafði verið í blöðum og
teygði eldurinn sig í tré. Krakk-
arnir sögðust ekki skilja hvers
konar virðingarleysi menn sýndu
túninu sem þeim er svo annt um.