Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 3. september 2005 31
Endurskin og deyfing stuttbylgju-
geislunar frá sól hafa áhrif á
orkubúskap við yfirborð jarðar og
hafa áhrifin í heild verið nefnd
rökkvun. Rökkvun er viðvarandi
hluti orkukerfis lofthjúpsins og er
því ekki vandamál sem slík, held-
ur er fremur að breytingar á
henni geti talist það, rétt eins og
gróðurhúsaáhrif eru viðvarandi
og gera jörðina byggilega, en
breytingar á þeim kunna að skapa
vanda.
Sjónvarpsþáttur frá BBC
Í nýlegum sjónvarpsþætti frá BBC
sem sýndur var í RÚV í júlí, var
því haldið fram að rökkvun hefði
aukist á undanförnum áratugum og
hefði nú þegar haft þau áhrif að
dregið hafi úr uppgufun og þar
með úrkomu víða um heim. Tvær
meginástæður aukinnar rökkvunar
voru nefndar. Annars vegar mann-
fjölgun og aukin eldsneytisnotkun í
Asíu og víðar, en hins vegar aukin
flugumferð. Eldsneytið er aðallega
brennt í vondum ofnum sem gefa
frá sér mikinn reyk sem veldur
mistri í andrúmsloftinu og þar með
aukinni deyfingu sólarljóss.
„Óæskilegur“ skógur og gróður á
ræktunarsvæðum er einnig
brenndur. Aukin flugumferð stuðl-
ar að aukinni rökkvun vegna
myndunar flugslóða í háloftum.
Í þættinum var einnig bent á að
aukin rökkvun vinni gegn vaxandi
gróðurhúsaáhrifum. Ráðstafanir
gegn rykmengun og flugslóðum
valdi því að gróðurhúsahlýnun
muni aukast verulega og þá kæmi
í ljós að hún væri meiri en menn
hefðu gert sér grein fyrir. Ekki
kæmi til greina að auka rykmeng-
un til að draga úr hlýnun því meng-
uninni fylgdu bæði súrt regn sem
spillir gróðri og uppskeru og aukn-
ing lungnasjúkdóma sem væri
óviðunandi. Niðurstaða þáttarins
var sú að mannkyn væri í eins kon-
ar sjálfheldu sem óhjákvæmilega
leiddi til mikilla hörmunga innan
þriggja til fimm áratuga.
Réttar grunnstaðreyndir
Flestar grunnstaðreyndir sem
hafðar voru eftir vísindamönnum
í þættinum eru réttar. Aukin
rökkvun af mannavöldum hefur
átt sér stað, einkum þó svæðis-
bundið, og er talið að hún hafi að
meðaltali dregið úr hlýnun af
völdum gróðurhúsaáhrifa. Aukn-
ing á rykmengun í hitabeltinu og
nálægum svæðum er raunveru-
leg. Flugslóðir hafa mælanleg
áhrif á dægursveiflu hita og auka
rökkvun.
Af hverjum 100 einingum sól-
geislunar sem til jarðarinnar
koma, endurkastast tæpar 30 út í
geiminn aftur og nýtast ekki
varmabúskap jarðar. Þetta nefn-
ist endurskin. Ský endurkasta
langmestu, um 20 einingum, yfir-
borð jarðar um 4 og lofthjúpurinn
sjálfur, agnir hans og smásæir
dropar um 6. Af þeim 70 einingum
sem eftir eru komast 51 til yfir-
borðs, en lofthjúpurinn, ský hans
og efnisagnir gleypa 19. Deyfing
af þessu tagi nefnist ísog eða
gleyping og er hlutur skýja í því
um 3 einingar, en vatnsgufa,
koltvísýringur og agnir af ýmsu
tagi gleypa um 16 einingar.
Heildaráhrif rökkvunar ofmetin í
sjónvarpsþættinum
Sé sólgeislun við útmörk loft-
hjúpsins dreift á allt flatarmál
jarðar koma 342 W í hlut hvers
fermetra. Endurskinið er um 100
Wm2 og deyfing um 65 Wm2.
Heildaráhrif rökkvunar eru því
um 165 Wm2. Breytingar á henni
frá upphafi iðnbyltingar eru í
mesta lagi 4 Wm2 (um 2,5%), en í
minnsta lagi rétt rúm 0%. Í sjón-
varpsþættinum voru miklu hærri
tölur nefndar, 12% til 20% og
mátti skilja að það ætti við heim-
inn allan, en það á að réttu aðeins
við ákveðin svæði, til dæmis þétt-
býlustu svæði SA-Asíu.
Ar eða agnúði
Í lofthjúpnum má, auk loftsam-
einda af ýmsu tagi og vatnsdropa,
finna mikið magn örsmárra
rykagna og dropa sem auk vatns
innihalda efnasambönd af ýmsu
tagi, til dæmis saltlausnir og
brennisteinssýru. Sameiginlega
nefnast agnir og dropar ar eða
agnúði (e. aerosol). Á hverju ári
berast að meðaltali 3,5 milljarðar
tonna af ari í lofthjúpinn frá jörð
og falla aftur til jarðar. Af manna-
völdum berast um 390 milljónir
tonna í lofthjúpinn, eða um 11% af
heildarmagninu. Um 1,5 milljarð-
ar tonna eru jarðvegsryk og um
1,3 milljarður tonna sjávarsalt,
hvort tveggja borið til lofts af
vindi. Um helmingur afgangsins
er súlföt, sem aðallega koma úr
sjó, mest afurðir plöntusvifs.
Geislunareiginleikar ars eru
mjög misjafnir eftir eðli þess, til
dæmis felst hlutur sjávarsalts
fyrst og fremst í því að auka end-
urskin jarðarinnar, svartar
sótagnir endurkasta litlu en þær
gleypa sólargeisla og skyggja á yf-
irborð. Svo vill til að deyfingar-
áhrif þess hluta arsins sem orðinn
er til af mannavöldum eru talsvert
meiri en efnismagnið gefur til
kynna. Í margnefndum sjónvarps-
þætti var ekki gerður greinar-
munur á geislunaráhrifum svarts
sóts og annars ars. Sótið eykur
gróðurhúsaáhrif og flýtir fyrir
snjóbráðnun, minnkun þess myndi
því draga úr hlýnun.
Bein tengsl úrkomufars og rökkv-
unar vafasöm
Óbein áhrif ars eru óviss. Ljóst er
þó að það auðveldar myndun
skýjadropa og lengir líftíma
þeirra. Aukning skýja eykur end-
urskin jarðar og úrkomuferli geta
raskast á ófyrirséðan hátt, aukn-
ing sóts dregur úr endurkasti íss
og snævar og flýtir fyrir bráðnun
á vorin. Aukning á skýjum og önn-
ur deyfing á sólarljósi veldur því
að dægursveifla hita minnkar,
sem kann að hafa áhrif á uppguf-
un og varmaskipti henni tengd.
Mjög vafasamt er að tengja
ákveðnar breytingar á úrkomu-
fari beint við aukna rökkvun eins
og gert var í sjónvarpsþættinum.
Auking í magni gróðurhúsaloft-
tegunda veldur ein og sér aukn-
ingu á gróðurhúsaáhrifum og hlýn-
un, aukning flestra argerða veldur
hins vegar auknu endurkasti sólar-
geisla og þar með kólnun. Svo virð-
ist sem iðnaðarlosun frá um 1950
og fram á áttunda áratuginn hafi
aukið endurskin vegna brenni-
steinsmengunar og þar með dregið
úr hlýnun af völdum aukningar
gróðurhúsalofttegunda á tímabil-
inu. Líkanreikningar sem taka tillit
til ars virðast staðfesta þessi áhrif.
Sú hugmynd að auka armeng-
un til að vinna gegn aukningu
gróðurhúsaáhrifa er mjög vafa-
söm, ar stendur stutt við í loft-
hjúpnum, en langflestar gróður-
húsalofttegundir eru þar lengi.
Auk þess er minnkun sótmengun-
ar talin draga úr gróðurhúsaáhrif-
um eins og áður var nefnt.
Svarið er lítillega stytt og verð-
ur birt í fullri lengd með heim-
ildaskrá á vefnum.
Trausti Jónsson veðurfræðingur.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Er rökkvun raun-
verulegt vandamál?
Jörðin og skýjafar séð utan úr geimnum.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
9
0
1
– SMÁAUGLÝSINGAR SEM ALLIR SJÁ
- stærsta bílasala landsins?
Fréttablaðið
Á HVERJUM DEGI FÆRÐ ÞÚ EINA AF STÆRSTU
BÍLASÖLUM LANDSINS INN UM BRÉFALÚGUNA ÞÍNA!
SPARAÐU TÍMA OG FYRIRHÖFN MEÐ ÞVÍ AÐ FINNA BESTA
BÍLINN Á MEÐAN ÞÚ SVOLGRAR Í ÞIG MORGUNKAFFIÐ.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »