Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 64
LAUGARDAGUR 3. september 2005 43
SMÁRALIND SÍMI 545 1550
Dansfatnaður frá Danskin
fæst nú í Útilíf Smáralind!
Louis Féraud dá›i konur
Louis Féraud fæddist í Arles í Suður-Frakklandi
árið 1920. Hann sagði upp starfi sínu sem skíða-
kennari í Ölpunum til að stofna tískuverslun fyrir
ríka og fræga fólkið í Cannes árið 1955, en kjör-
orð hans var „Louis Féraud adore les femmes“
eða „Louis Féraud dáir konur“. Ári síðar opnaði
hann hátískuhús í París þar sem hann kynnti
fyrstu tískulínuna undir sínu nafni.
Verslunin í Cannes varð fljótt eftirlæti heit-
ustu kvikmyndastjarna, en hönnun Férauds vakti heimsathygli eftir að
franska kynbomban Brigitte Bardot kom við í búðinni og keypti á sig
stelpulegan hvítan sumarkjól. Blaðamenn og ljósmyndarar eltu Bardot
á röndum og næstu daga mátti sjá ógrynni kvenna ganga upp og niður
Cote d’Azur í hvíta kjólnum hans Férauds. Alls seldi hann 500 slíka á
innan við viku.
Brigitte Bardot hélt áfram að girnast klæði Férauds og fékk hann til
að hanna á sig föt í flestar kvikmynda sinna. Fleiri leikkonur féllu fyrir
skvísulegri hönnun Férauds, og klæddist leikkonan Joan Collins há-
tískuflíkum Férauds í sjónvarps-
þáttunum Dynasty og Dallas.
Meðal dyggra viðskiptavina
voru leikkonurnar Catherine
Deneuve, Kim Novak, Ingrid
Bergman og Jane Fonda, en þess
má geta að Díana prinsessa
klæddist oft ofurkvenlegum
fatnaði Férauds, sem og Danielle
Mitterrand, fyrrum forsetafrú
Frakklands.
Louis Féraud var fyrst og
fremst listamaður. Auk þess að
hafa einstakt auga fyrir hátísku
voru brúðarkjólar, borðbúnaður
og skartgripir hannaðir undir
hans merki, en sjálfur málaði
hann allt sitt líf, einkum lands-
lag, blóm og naktar konur. Mál-
verkin voru jafnan sýnd og seld í
París og New York. Þá hannaði
hann nokkra ilmi fyrir bandaríska snyrtivörurisann Avon og átti í sam-
starfi við aðra hönnuði; eins og Daniel Hechter og Jean-Louis Scherrer.
Sjálfur sagði hann frumkraftinn sprottinn af þeirri löngun sinni að
gleðja konur og gera þeim til hæfis.
Féraud veiktist af Alzheimer í ársbyrjun 1995 og andaðist á heimili
sínu í París fjórum árum seinna, þá 79 ára gamall. Einkadóttirin Kiki
tók við rekstri tískuhússins þegar faðir hennar veiktist, en árið sem
hann lést var fyrirtækið selt þýska fyrirtækinu Secon.