Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 59
38 3. september 2005 LAUGARDAGUR
Tímaritið Cosmopolitan komfyrst út fyrir 40 árumsíðan eða árið 1965 undir
stjórn Helen Gurley Brown.
Tímaritið var fyrst og fremst
hugsað fyrir ungar konur til
þess að hjálpa þeim við að efla
öryggi sitt og sjálfstæði. Það inni-
hélt ýmis ráð um nýjustu tísku,
fegurð, sambönd, heilsu, skemmt-
un og auðvitað karlmenn.
Cosmopolitan sagði konum að vera
óhræddar við að lifa lífinu og skila-
boðin voru skýr – „Þú þarft ekki
mann til að hjálpa þér að fá það sem
þú vilt út úr lífinu. Þú getur gert
þetta sjálf“. Með öðrum orðum þú get-
ur allt, jafnvel þótt þú sért kona. Á
þessum árum komu þessi skilaboð eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Loksins
var kominn fjölmiðill sem sagði einfald-
lega „gerðu hlutina“. Brown sá um að
stýra Cosmopolitan í 32 ár eða til árs-
ins 1997. Við tók Bonnie Fuller, en þó
aðeins í 18 mánuði. Ritstjóri blaðsins
í dag er Kate White, hún hefur nú
verið ritstjórinn í um sjö ár. „Þetta
tímarit er vinsælt vegna þess að
við höfum ekki breytt stefnu
okkar í 40 ár,“ segir Kate. Að
sjálfsögðu hefur blaðið breyst
að einhverju leyti, en stefna
Cosmopolitan hefur alltaf
verið sú sama, að hjálpa
konum að finna aukið ör-
yggi og að vera sjálfstæð-
ar. En hvað er að því að
vera líka falleg,
kynæsandi og að kunna
á karlmenn.
Cosmopolitan hefur verið
bannað í Singapore en er annars gefið
út í 52 löndum á borð við Taíland, Króatíu,
Ísrael og Kenýu. Forsíðustúlkurnar hafa verið æði
margar og til dæmis hefur fyrirsætan Cindy Crawford
verið á alls sautján forsíðum fyrir blaðið. Beverly Johnson
var fyrsta svarta konan til að sitja fyrir hjá Cosmopolitan árið 1976.
Eflaust eiga næstu kynslóðir einnig eftir að njóta góðs af tímaritinu
Cosmopolitan því það er aldrei hægt að fá nóg af góðum ráðum.
Rauðilækur 33, Reykjavík, 1976-
1976
Var aðallega buslandi í eldhús-
vaskinum af myndum að dæma.
Miklabraut 58 og Framnesvegur
42, Reykjavík, 1976-1978
Þar bjó ég með mömmu og Hildu
frænku og fressinu Napóleon.
Þær klæddu okkur Napóleon í
eins hettupeysur. Við höfðum það
alveg ágætt.
Ásvallagata 17, Reykjavík 1978-
1980
Bakgarðar og kettir, vingjarnlegir
listmálarar og hrekkjusvín.
Bræðraborgarstígur 5, Reykjavík
1981-1982
Man eftir fyllibyttunum sem rúll-
uðu frá Naustinu, móðir mín var-
aði mig mjög við þeim og svo voru
líka köngulær í garðinum og gam-
aldags handknúin vinda í kjallar-
anum.
Arnartangi 55, Mosfellssveit,
1982-1985
Þetta er eitt af viðlagasjóðshúsun-
um sem voru byggð handa fólkinu
úr Vestmannaeyjum eftir að eld-
fjallið þeirra sprakk framan í þau.
Endaraðhús og þess vegna með
extra-stórum garði. Túttubyssu-
stríð á haustin, skrímsli í Esjunni,
fyrsti kærastinn sem hét Baldvin,
fjöruferðir, lærði að hjóla, mikil
hamingja.
Brattholt 2b, Mosfellssveit,
1985-1986
Óeftirminnilegur tími, held ég
hafi aðallega hangið inni við að
læra að spila Tunglskinssónötuna
eftir eyranu. Nú er ég búin að
gleyma henni.
Klausturvegur 6, Kirkjubæjar-
klaustri, 1986-1987
Þetta var eiginlega Edduhótelið á
Kirkjubæjarklaustri. Við bjugg-
um í tveimur hótelherbergjum,
öðru baðherberginu breytt í eld-
hús. Seríósið og hrísgrjónin
geymd í sturtubotninum. Mjög bó-
hemskt.
Skaftárvellir 15,
Kirkjubæjarklaustri,
1987-1988
Alvöru finnskt bjálka-
hús með garði og þar
sem garðurinn endaði
byrjaði tún með ótrú-
lega dekoratífum
bolakálfum. Góður
staður, Kirkjubæjar-
klaustur.
Skagabraut 21, Garði
í Gerðahreppi, 1988-
1992
Garður í Gerðum er
1200 manna þorp, en
samt er það eiginlega
bara ein gata með tals-
verðum vegalengdum
milli húsa. Garður
breytti mér í mikinn
göngugarp. Í fjörunni,
sem er allt um kring,
er hvítur skeljasand-
ur. Garður á örugg-
lega eftir að breytast í
ferðamannaparadís
með sólhlífum og kok-
teilum.
Óðinsgata 5, og Amtmannsstígur
2, Laugavegur 27b og Laugaveg-
ur 84, 1992-1996
Menntaskólaárin. Nenni ekki að
fara með klisjurnar um Þingholt-
in. Ég var í skólanum á daginn og
afgreiddi brennivín á kvöldin.
Café Meltemis, Hania, Grikk-
landi, 1996-1997
Þetta var svona manndómsvígslu-
ferð. Vann á ótrúlega sóðalegri
brennivínsbúllu og þóttist vera að
skrifa skáldsögu en var samt aðal-
lega einmana.
Laugavegur 20, Reykjavík, 1997-
2002 og einn vet-
ur við Sassen-
heimstraat í
Amsterdam
Hornið á Lauga-
vegi og Klappar-
stíg er örugglega
það hávaða-
samasta á Íslandi.
Sassenheimstraat
er í samanburðin-
um eins og hljóð-
látur og dumb-
ungslegur draum-
ur.
Njálsgata 62,
Reykjavík, 2002-
2004
Þegar ég var búin
að kveða niður
drauginn reyndist
þetta ágætur stað-
ur. Sundhöllin hér
um bil í bakgarðin-
um og blessaðar
kirkjuklukkurnar.
Skil ekki af hverju
alltaf er verið að
amast við þeim.
Grófin 1, Reykjavík, 2004-2005
Hér bý ég núna, með Borgarbóka-
safnið norðan megin og Fríðu
frænku sunnan megin. Út um
gluggann sé ég hlemminn sem á
stendur Miðja Reykjavíkur. Þetta
er kyrrlátari staður en margan
myndi gruna.
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR Guðrún hefur búið á mörgum stöðum í Reykjavík frá því að hún kom í heiminn árið 1976. Um þess-
ar mundir býr hún í Grófinni í miðbæ Reykjavíkur.
GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU >
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Rauðilækur
Miklabraut
Framnesvegur
Ásvallagata
Bræðraborgarstígur
Arnartangi
Brattholt
Klausturvegur
Skaftárvellir
Skagabraut
Óðinsgata
Amtmannsstígur
Laugavegur
Hania
Laugavegur 20,
Sassenheimstraat
Njálsgata
Grófin
Bjó á háva›asamasta
horni Reykjavíkur
Gu›rún man me›al annars eftir túttubyssustrí›um, Gar›i í Ger›um, einmana-
leikanum og klingjandi kirkjuklukkum frá götunum sem hún hefur búi› á
sí›ustu flrjátíu árin.
Cosmo 40 ára
fiú getur allt, jafnvel flótt flú sért kona.