Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 33
3LAUGARDAGUR 3. september 2005
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Sænsk vísindi eru ekki mín sterka hlið
Fyrir mörgum árum komust einhverjir færustu vísindamenn heims
að því að ef barn dettur af hjóli á það á hættu að meiða sig. Nokkru
síðar komust aðrir vísindamenn (einnig sérlega færir í sínu fagi) að
því að ef barnið lendir með höfuðið á undan, og fyrir neðan er
steypt stétt, verður útkoman sérlega slæm.
Í boði voru þrír kostir; banna steyptar stéttar (sem hefði orsak-
að glundroða í hinum siðmenntaða heimi), banna börn með höfuð
(sá sem stakk upp á því var rekinn nokkru síðar) og loks að verja
höfuð barnanna. Þannig varð reiðhjólahjálmurinn til.
Á undanförnum árum hafa þær raddir orðið háværar í Svíþjóð
að banna eigi stóra jeppa á vegum úti. Ástæðan er sú að lendi jeppi
og smábíll í samstuði er fólki í þeim síðarnefnda hættara við
meiðslum. Að sjálfsögðu hafa þessar hugmyndir fengið nokkurn
hljómgrunn hér á landi, enda útbreidd skoðun að margt gott komi
frá Svíþjóð. Til dæmis Ikea. Og Svíar.
Sjálfur kýs ég frekar bíla í stærri kantinum því þeir veita mér
meiri öryggistilfinningu. Hvort það er falskt öryggi eða ekki skal
ég ekkert um segja. En það kom sumsé fáum á óvart þegar ég viðr-
aði þá skoðun mína fyrir nokkru að réttara væri að banna smábíl-
ana, enda væri vandamálið klárlega þeim megin. Að minnsta kosti
í Svíþjóð.
„Það er ekkert hægt, fólk vill litla bíla,“ sagði einn viðstaddur og
mig grunaði samstundis að hann hefði horft á of margar sænskar
heimildarmyndir. „Hreint ekki,“ svaraði ég og reyndi að virka
sannfærandi. „Fólk vill ódýra bíla sem kosta lítið í rekstri. Það vill
svo til að þeir eru flestir pínulitlir svo fólk hefur tekið þá í sátt til
að verkja minna í budduna.“ Hér þóttist ég hafa orðið yfirhöndina.
„Jæja, árekstraprófanir hafa líka sýnt að margir öruggustu bílarn-
ir á markaðnum í dag eru smábílar,“ kom strax til baka.
Og nú varð ég kjaftstopp. Ekki þrætir maður við árekstraprófan-
ir. Held reyndar að hvergi sé sérstaklega prófað hvort bílar þoli að
lenda framan á stórum bíl á 100 kílómetra hraða. Líklega væri það
lausnin á vandanum. Því ef við bönnum alla stóra bíla og ökum öll á
smábílum... verður þá líka að banna rútur, vörubíla, steypubíla og
þess háttar?
Ég skal ekki segja, enda aldrei verið mikill vísindamaður og að-
eins örsjaldan komið til Svíþjóðar. Vona bara að fljótlega finnist
jafnvægi á milli stéttarinnar og hjálmsins svo hvorugt þurfi að
banna. Þá þyrftum við öll að labba.
nýr bíll }
Meðlimur bobsleðaliðs Jamaíka sem
tekur þátt í Ólympíuleikunum á Ítalíu í
febrúar 2006 sést hér aka Fiat Panda
4x4. Fiat er einn aðalstyrktaraðili liðsins.
Nýr fjórhjóla-
drifinn smábíll
FIAT-UMBOÐIÐ FRUMSÝNIR FJÓR-
HJÓLADRIFSÚTGÁFU AF FIAT PANDA.
Í dag frumsýnir Fiat-umboðið fjór-
hjóladrifsútgáfu af Fiat Panda-smá-
bílnum. Framhjóladrifsútgáfa bílsins
var valinn bíll ársins í Evrópu árið
2004 og nú hefur fjórhjóladrifsút-
gáfu verið bætt við. Auk fjórhjóla-
drifsins er bíllinn hærri og á stærri
felgum en framhjóladrifsútfærslan.
Til að sýna getu bílsins hefur honum
meðal annars verið ekið upp að
grunnbúðum Everest.
Viðtökurnar á bílnum voru góðar því
fyrsta sendingin sem kom landsins
seldist upp áður en náðist að halda
sýningu á honum, en nú er önnur
sendingin komin til landsins.
Verðið á fjórhjóladrifnum Fiat Panda
er 1.590.000 kr. Sýningin verður í
dag milli 12.00 og 17.00 að Malar-
höfða 2 í Reykjavík.
www.yamaha.is
Nýbýlavegi 2
200 Kópavogi
S. 570 5300
tvígengis / fjórgengis
rafstart / kickstart
á götuna / brautina
fyrir þig / krakkann
WR450Ft-trac
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 2004
VERÐ KR.ERTU AÐ
HUGSA UM…
…að kaupa hjól
1.190.000
YZ450F
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 2004
VERÐ KR.
590.000
YZ450F
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 2004
VERÐ KR.
620.000
YZ250F
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 2004
VERÐ KR.
590.000
YZ250
TVÍGENGIS
ÁRGERÐ - 2004
VERÐ KR.
570.000
WR450F
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 2005
VERÐ KR.
650.000
TTR125
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 2004
VERÐ KR.
350.000
XT660
FJÓRGENGIS
ÁRGERÐ - 06 2005
VERÐ KR.
790.000
2w
d h
jól
drif a
ð afta
n og
frama
n
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
29
38
2
9
/2
00
5
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »