Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 81
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ORDNING
hnífaparastandur
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Breyttur afgreiðslutími
Bragðmiklar
upplifanir
50 02 .V .B s
met sy S
AEKI re tn I
©
krukka m/loki 0,5 l
krukka m/loki 1,2 l
BURKEN
krukka m/loki 2,2 l
245,-
290,-
490,-
PYRA
wok-/steikarpanna Ø35 sm
950,-
RATIONELL
kryddstandur
750,-
490,-
RATIONELL diskastandur
Ø12-19 sm
68x46 sm
55x26 sm
3.990,-
LAGAN vaskur með einu hólfi og plötu
RATIONELL
ruslafata 15 lítra
390,-
RATIONELL
plastpokahylki
190,-
LAGAN blöndunartæki
krómhúðað
1.490,-
490,-
3.990,-
RATIONELL vínrekki
35x35 sm
990,-
RATIONELL
skurðarbretti í skúffu
790,-
Sænskar kjötbollur
með kartöflum, týtuberjasultu
og rjómasósu (10 stk.)
Trúarbrög›
Nokkur umræða hefur skap-ast um skrif mín hér í blað-
inu. Sérstaklega hefur mörgum
orðið tíðrætt um hinn trúarlega
hluta skrifa minna. Ég vil nota
tækifærið og útskýra hann að-
eins nánar.
ÉG er ekki að reyna að kristna
fólk til þess eins að kristna það.
Ég er einungis að benda á leiðir
sem hafa hjálpað mér og öðrum
til að öðlast betra líf. Skrif mín
eru byggð á persónulegri
reynslu minni en ekki teoríum
og ég reyni að setja hana fram á
eins einfaldan og einlægan hátt
og ég get.
ÉG er þess fullviss að það besta
sem geti komið fyrir manneskju
sé að öðlast trú. Ég veit það
vegna þess að trúin mín bjarg-
aði lífi mínu og dýpkaði skilning
minn á því.
ÉG ber virðingu fyrir allri ein-
lægri trú. Sumir trúa á Guð,
aðrir á hið góða eða bara sjálfan
sig. Mér er sama á hvað fólk
trúir. Guð er ekki kristinn. Það
skiptir mig engu máli hvaða
trúarskoðanir fólk hefur. Ég á
meira sameiginlegt með góðum
Taoista en illmenni sem hefur
sömu trúarskoðanir og ég. Fólk
má kalla Guð hvað sem er. En
Guð er bara einn. Ég trúi á
Búdda og Allah. Ég er aðdáandi
Dalai Lama, Mahatma Gandhi og
Lao-tse. Hindúar og Gyðingar
komast líka til himna. Ég sjálfur
er kristinn. Ég get ekki að því
gert en ég elska Jesú meira en
allt annað í lífinu.
ÉG hef áður líkt trú við hjóna-
band. Þó ég elski konuna mína
þýðir það ekki að ég sé á móti
eiginkonum annarra eða geti
ekki átt þær að vinum. En ég get
alveg gefið þeim ráð byggð á
reynslu úr mínu eigin hjóna-
bandi. En ég uppnefni ekki
eiginkonur annarra eða lýsi því
yfir að þær séu verri en mín.
ÉG ber virðingu fyrir trúleys-
ingjum. Ég hef sjálfur verið trú-
leysingi. Guð er kærleikur.
Kærleiksríkur trúleysingi er
Guðs barn. Tvö barna minna eru
fermd borgaralegri fermingu
hjá Siðmennt. Þau vildu það og
ég studdi þau í því. Ég mundi
aldrei neyða neinn til að trúa
einhverju sem hann vill ekki
trúa. Ég á fullt af góðum vinum
sem eru trúleysingjar. Það trufl-
ar á engan hátt vináttu okkar.
ERU ekki allar manneskjur að
leita að því sama, óháð trú og
skoðunum? Vilja ekki allir bara
hamingju fyrir sig og sína?
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
ÍSKALDUR
EINN LÉTTUR
Málum bæinn
RAUÐAN!