Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 10
HÁTT BENSÍNVERÐ Bensín hefur hækkað
mikið í verði eftir að fellibylurinn Katrín
skall á suðurströnd Bandaríkjanna. Eitt
gallon kostar nú þrjá dollara í New York.
Þetta jafngildir því að einn lítri kosti tæpar
fimmtíu krónur.
10 3. september 2005 LAUGARDAGUR
HAMFARIR George W. Bush Banda-
ríkjaforseti hefur verið gagn-
rýndur mikið vegna viðbragða
yfirvalda við fellibylnum
Katrínu. Hann heimsótti hörm-
ungasvæðið í gær og sagði að-
komuna vera mun verri hann
hefði búist við.
Fyrr um daginn hafði forset-
inn sagt að árangurinn af hjálp-
arstarfinu væri ekki viðunand,
illa hefði gengið að koma mat-
vælum og vatni til fórnarlamba á
svæðinu. Hann gagnrýndi einnig
að ekki hefði tekist að uppræta
þjófnaði og glæpi í New Orleans.
„Við munum ráða fram úr
þessum vanda,“ sagði Bush áður
en hann lagði af stað í heimsókn-
ina. „Og við ætlum að hjálpa
þeim sem þurfa hjálp.“
Bush kvaðst vona að heim-
sókn sín myndi efla þrótt meðal
björgunarmanna og þeirra sem
enn væru fastir á svæðinu. Þá
var vonast til þess að heimsókn
hans myndi lægja óánægjuöldur
og slá á vaxandi gagnrýni þess
eðlis að hann hefði brugðist of
seint og illa við.
Bush hefur lofað rúmum tíu
milljörðum Bandaríkjadala, um
650 milljörðum íslenskra króna,
til hjálparstarfsins. - sda
Stjórnlaust
Bandaríkjastjórn er gagnr‡nd fyrir vi›brög› sín
vegna hamfaranna í Louisana. Yfirma›ur björgun-
ara›ger›anna segir flær fljó›arskömm.
HAMFARIR „Skaðinn af völdum ham-
faranna vegna fellibyljarins í Suð-
urríkjum Bandaríkjanna er ekki
eingöngu af náttúrunnar völdum,“
segir Sidney Blumenthal, fyrrum
ráðgjafi Bills Clinton Bandaríkja-
forseta, í grein í vefútgáfu þýska
blaðsins Der Spiegel.
Hann segir að fyrir ári hafi
verkfræðingar bandaríska hers-
ins lagt til við Bandaríkjastjórn að
gerð yrði úttekt á því hvernig
verja mætti New Orleans gegn
hrikalegum afleiðingum fellibylj-
ar en það var afþakkað. Snemma
árs 2001 hafi Almannavarnir
Bandaríkjanna, FEMA, gefið út
skýrslu þar sem skýrt var frá því
að fellibylur sem færi yfir New
Orleans væri ein af þremur lík-
legustu hamförunum til að eiga
sér stað í Bandaríkjunum en
hryðjuverkaárás á New York-
borg var þar einnig nefnd.
Árið 2003 voru fjárveitingar til
flóðavarna í New Orleans skornar
niður til muna og þess í stað veitt
til stríðshalds í Írak, að sögn
Blumenthals. Í fyrra veittu yfir-
völd einungis 20 prósent þess
fjármagns sem óskað var eftir til
viðhalds flóðvarna um
Pontchartrain-vatn. Í kjölfar felli-
byljarins kom sextíu metra skarð
í flóðgarða vatnsins og flæddi það
yfir New Orleans. „Alls hafa fjár-
veitingar til flóðvarna því dregist
saman um 44,2 prósent frá því
2001,“ segir Blumenthal.
Washington Post gagnrýnir
viðbrögð yfirvalda í kjölfar felli-
byljarins og segir þau hæg. Þrátt
fyrir að sérfræðingar hafi fyrir
löngu spáð fyrir um að miklar
hamfarir gætu orðið í borginni ef
fellibylur riði yfir hafi vanda-
málið orðið verra vegna þess hve
seint og illa var brugðist við að
útvega 100 þúsund manns neyðar-
skýli, segir í blaðinu.
Vitnað var í yfirmann björgun-
araðgerðanna í New Orleans,
Terry Ebbert, sem segir að björg-
unaraðgerðirnar séu þjóðar-
skömm. „Almannavarnir hafa
verið hér í þrjá daga en hafa enn
enga stjórn á málum,“ segir
Ebbert. „Við förum létt með að
senda gríðarlegt magn hjálpar-
gagna til fórnarlamba flóðbylgju í
suðurhluta Asíu, en okkur tekst
ekki að flytja fólk á brott frá New
Orleans,“ segir hann.
Talsmaður Almannavarna ber í
bætifláka fyrir björgunaraðgerð-
irnar og segir að undirbúningur
hafi miðast við viðbrögð við felli-
bylnum og að hin gríðarlegu flóð
hafi komið þeim í opna skjöldu.
sda@frettabladid.is
edda.is
„Algjörlega frábær“
„Þeir góðu grétu og þeir vondu hlógu.
Meira þarf ekki að segja. Hefði þetta getað
farið á annan veg? Fjárinn. Blaðamenn eru
algjörir fantar, stjórnmálamenn eru algjörir
fantar. En það var hún ekki. Í því fólst
munurinn. Og í því fólst harmleikurinn.“
Mögnuð saga um konu í heimi
stjórnmálanna, þar sem átök um völd,
misnotkun fjölmiðla og launráð eru
brugguð í hverju skúmaskoti.
„Algjörlega frábær skemmtun.“
– Børsen
Hanne-Vibeke Holst
Metsölubók um öll
Norðurlönd
KOMIN Í
VERSLANIR!
HJÁLPARGÖGNUM KOMIÐ TIL NAUÐSTADDRA Í NEYÐARSKÝLI Í NEW ORLEANS
Yfirmaður björgunaraðgerðanna í New Orleans segir að björgunaraðgerðirnar séu þjóðar-
skömm.
GEORGE W. BUSH Heimsótti hamfarasvæðið í gær og sagði að árangurinn af hjálparstarf-
inu væri óviðunandi.
Bandaríkjaforseti gagnrýnir hjálparstarfið:
Árangurinn
ekki vi›unandi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR