Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 62
LAUGARDAGUR 3. september 2005 41
„Ef ég á að nefna áhrifavald kemur mamma mín
fyrst upp í hugann,“ segir hlauparinn Bryndís Ernsts-
dóttir. „Hún hefur komist yfir alla erfiðleika í lífinu
og verið mér svo góð fyrir-
mynd í því að maður getur
gert það sem maður vill
með þrautseigju. Mamma er
svo dugleg og fær sínu fram-
gengt hægt og hljótt án þess
að troða á öðrum. Ef hún
ákveður eitthvað er hún ekk-
ert að básúna það út en
einn góðan veðurdag fattar
maður að það hefur gerst.
Það finnst mér frábær eigin-
leiki.“ Fleiri í fjölskyldunni
hafa haft áhrif á líf Bryndís-
ar. „Martha systir mín hefur náttúrlega verið mér
mikil fyrirmynd. Ég hef elt hana inn í tvær íþrótta-
greinar. Hún var farin að æfa bæði sund og frjálsar á
undan mér og ég hefði ekki valið þessa leið nema
af því að hún var mér fyrirmynd. Þar sem íþróttirnar
eru nú svo risastór hluti af lífi mínu er óhætt að full-
yrða að Martha hafi haft mikil áhrif.“
„Svo er til fólk sem hefur haft anti-áhrif á mann,“
segir Bryndís. „Til dæmis Barbara Cartland. Hún er
erkióvinur allra hamingjusamra sambanda og það
fær mig til að snúa mér í hina áttina. Brian Tracy er
líka anti-fyrirmynd því hann fékk mig til að átta mig
á því að það væri í alvörunni til fólk sem héldi að
það öðlaðist hamingju í gegnum peninga og völd,“
en þegar Bryndís forgangsraðar setur hún fjölskyld-
una í fyrsta sæti og segir hvorki peninga né völd
skipta máli.
ÁHRIFAVALDAR BRYNDÍS ERNSTSDÓTTIR HLAUPARI
Bæ›i fyrirmyndir og andfyrirmyndir
BRIAN TRACY Bryndís
tekur hvorki fyrirlesar-
ann Brian Tracy né Bar-
böru Cartland sér til
fyrirmyndar.
FYRIRMYNDIR Í FJÖLSKYLDUNNI Bryndís Ernstsdóttir
segir mömmu sína og Mörthu systur vera áhrifavaldar í
hennar lífi.
110Árbærinn þótti eitt sinnvera úthverfi Reykjavíkur.
Það var fyrir tíma Grafarvogs og
Grafarholts. Í Árbænum og uppi við
Rauðavatn dreifast kjósendur meira
en í flestum öðrum hverfum. Þar
ættu því allir flokkar að hafa mögu-
leika á að hala inn eitthvað aukreitis
af þeim rúmu 36 prósentum sem eru
óákveðin. Rúm 28 prósent segjast
styðja Sjálfstæðisflokk, tæp 14 pró-
sent Samfylkingu og tæp níu prósent
Vinstri græna. Framsóknarflokkurinn
er yfir meðallagi með rúm þrjú pró-
sent og Frjálslyndir sömuleiðis með
tæp tvö prósent. Tæp níu prósent
kjósa ekki eða neita að svara.
111Það hefur löngum verið orð áEfra Breiðholti að þar búi vill-
ingarnir. Sérstaklega í Fellunum, þó svo
að einn og einn hafi svo sem komið frá
Hólunum líka. Enginn úr Efra Breiðholti
virðist það mikill villingur í pólitík að
styðja minni framboðin í borginni, eins
og Vinstri græna, Framsóknarflokk eða
Frjálslynda. Hvað þá að þeir kjósi eitt-
hvað annað. 30 prósent gefa sig út fyrir
að vera sjálfstæðismenn, 15 prósent
segjast kjósa Samfylkingu og 20 prósent
kjósa ekki eða vilja ekki svara. 35 pró-
sent hafa ekki gert upp hug sinn enn
sem komið er og bíða átekta eftir því
hvað verður í boði.
113Grafarholtið er nýja hverfiðí bænum. Hingað til hefur
verið nokkuð óljóst hvert hugur
hverfisins liggur. Nú er
hægt að upplýsa að í
engu öðru hverfi
segjast fleiri kjósa
Framsóknarflokkinn
(11,1%). Stærsti hópurinn
er fylgjandi Sjálfstæðis-
flokknum (38,9%). Tæp tvö
prósent styðja Vinstri græna,
sem og Frjálslynda, og rúm 20
prósent segjast kjósa Samfylk-
ingu. Þó svo að þetta hverfi sé það
yngsta í borginni eru íbúarnir
ákveðnastir. Einungis rúm 20 pró-
sent hafa ekki gert upp hug sinn.
Rúm fimm prósent segjast ekki ætla
að kjósa eða neita að svara.
VI
N
ST
R
I
G
R
Æ
N
IR
A
N
N
A
Ð
0,5%
5,0%
Ó
Á
K
VE
Ð
N
IR
9,1%
34,1%
ENGIÐ YRÐI TIL
Könnun Fréttablaðsins 27. og 28. ágúst.
K
ÝS
E
K
K
I
/
SV
A
R
A
R
E
K
K
I