Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 73
52 3. september 2005 LAUGARDAGUR
Angelina Jolie hefur hug á
að kæra breska slúður-
blaðið The Sun fyrir að
hafa haldið því fram í
grein að Zahara
Marley, dóttir henn-
ar, sé í raun ekki
munaðarleysingi. Í
síðustu viku birti
blaðið viðtal við
átján ára gamla
stúlku að nafni
Mentewab Dawit,
sem segist vera
móðir barns-
ins. Hún
s e g i s t
hafa ver-
ið neydd til að gefa barn-
ið frá sér því hún hafi
ekki haft ráð á því
að gefa því að
borða. Angelina
Jolie heldur því
statt og stöðugt
fram að hin
r a u n v e r u l e g a
móðir Zahöru
litlu sé látin og
hefur nú ráðið sér
lögfræðing frá
London til að að-
stoða sig í þessu
máli. ■
Angelina Jolie fer í hart
„Það eru yfir tuttugu viðburðir
hjá okkur í vetur. Viðamestu við-
burðirnir eru Salka Valka, Lífsins
tré og Woyzeck eftir Georg
Büchner sem sett verður upp í
samstarfi við Vesturport og Bar-
bican Center í London. Woyzeck
er eitt af viðamestu samstarfs-
verkefnum sem við höfum farið
út í hér í Borgarleikhúsinu. Nick
Cave mun gera tónlistina fyrir
verkið og er það í fyrsta sinn sem
hann gerir tónlist fyrir leikhús,“
segir Guðjón Pedersen, leikhús-
stjóri Borgarleikhússins, en dag-
skrá vetrarins í leikhúsinu var
kynnt í Borgarleikhúsinu í gær.
„Við munum taka Híbýli vind-
anna eftir Böðvar Guðmundsson
aftur til sýninga nú í september
og í framhaldi af því tökum við til
sýninga sjálfstætt framhald
verksins, Lífsins tré. Hægt verð-
ur að kaupa miða á sýningarnar á
sérstöku verði,“ segir Guðjón.
„Síðan vil ég nefna áramóta-
sýninguna okkar, Carmen, sem er
leiksýning sem byggð er á óper-
unni Carmen eftir Bizet og er það
samstarfsverkefni með Íslenska
dansflokknum.“
Íslenski dansflokkurinn kynnti
einnig starfsemi sína í Borgar-
leikhúsinu í gær. „Við erum með
tvær stórar sýningar í vetur.
Annars vegar haustsýningu sem
eru þrjú verk eftir þrjá karlmenn
og eru tvö þeirra ný, annað eftir
Peter Anderson og hitt eftir
Jóhann Frey Björgvinsson. Þriðja
verkið er eftir Rui Horta og var
það samið sérstaklega fyrir dans-
flokkinn og sýnt hér árið 2001.
Okkur fannst tilvalið að setja
þetta upp í ár þar sem Horta er að
koma hingað með nýtt verk fyrir
okkur sem verður svo annað af
verkunum sem sýnt verður í febr-
úar. Hitt verkið sem sýnt verður í
febrúar er eftir hollenskan dans-
höfund, Didy Veldman,“ segir
Ólöf Söebech, verkefnisstjóri Ís-
lenska dansflokksins, og bætir við
að auk þess muni þrír erlendir
dansflokkar koma hingað til lands
á næsta ári á vegum Íslenska
dansflokksins og Listahátíðar í
Reykjavík.
Eftir jól verður Ronja Ræn-
ingjadóttir sýnd í Borgarleikhús-
inu og er það Sigrún Edda Björns-
dóttir sem mun leikstýra verkinu
en hún lék Ronju þegar verkið var
sýnt í Reykjavík fyrir mörgum
árum.
„Eftir áramót verður líka sýnt
mjög spennandi og grátbroslegt
verk eftir sem fjallar um það
þegar Adolf Hitler var ungur og
reyndi án árangurs að komast inn
í listaskóla í Vín. Tveir gyðingar á
gistiheimilinu sem Hitler dvaldi á
hvetja hann í verkinu til að fara
frekar út í pólitík því það eigi
betur við hann en listin,“ segir
Guðjón.
Hægt er að fræðast frekar um
dagskrá Borgarleikhússins á
heimasíðu leikhússins, www.borg-
arleikhus.is og um Íslenska dans-
flokkinn á www.id.is. ■
Allt á fullt í Borgarleikhúsinu
og hjá Íslenska dansflokknum
GUÐJÓN PEDERSEN Leikhússtjóri Borg-
arleikhússins, Guðjón Pedersen, kynnti
fjölbreytta vetrardagskrá leikhússins um
eftirmiðdaginn í gær.
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Í febrúar sýnir Íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir
portúgalska danshöfundinn Rui Horta sem hann samdi sérstaklega fyrir flokkinn.
HVAÐ ER PSP?
PSP er lófaleikjatölva með fullt af mögu-
leikum undir litla húddinu sínu.
Í fyrsta lagi spilar hún tölvuleiki sem eru
framleiddir á svokölluðum UMD diskum
(Universal Media Disc) sem Sony bjó sér-
staklega til fyrir maskínuna. Þessir diskar
virðast einstaklega vel verndaðir gagnvart
rispum sem er víst algengt vandamál hjá
þeim sem spila tölvuleiki.
Í öðru lagi koma þessir diskar einnig í
formi kvikmynda sem hægt er að horfa á
í PSP-maskínunni. Myndgæðin á kvik-
myndunum eru í DVD-gæðum og virka
mjög vel á skjánum sem er einn af styrk-
leikum PSP.
Ásamt tölvuleikjafjöri í leikjum frá heit-
ustu leikjaframleiðendunum og bíóglápi
þá býður PSP upp á ýmislegt annað fróð-
legt.
FERÐAFÉLAGI
Á PSP getur þú vistað myndirnar þínar og
hlustað á „playlistann þinn“. Ekki nóg
með það þá er maskínan útbúin netteng-
ingu sem gerir þér kleift að sigla á net-
inu, finna mótherja í tölvuleik, kíkja á
póstinn þinn eða kannski bara blogga
smá.
PSP býður upp á alla þessa möguleika og
gott betur. Notendur PSP geta niðurhalað
sérstöku efni fyrir vélina hvort sem það
eru viðbætur í leiki, sýnishorn úr bíó-
myndum eða annað efni beint af netinu
frá sérstökum PSP-veitum sem sérhæfa
sig í því að þjóna PSP-notendum.
ÉG KANN EKKI Á SVONA
GRÆJUR
Það sem gerir PSP sérstaka er hversu
auðveld hún er í notkun. Þeir sem þekkja
til Playstation-tölvunnar eru á heimavelli
en nýgræðingar geta verið komnir í
hörkufjör á fimmtán mínútum.
Vélin er útbúin WiFi-tækni sem fær marg-
ar PSP til að tala saman innan sendi-
marka. T.d geta nokkrir PSP-notendur
keppt í fjöldaspilun í frímínútum hver
með sína PSP-vél án þess að þurfa að
tengjast neti. Allt í allt þá er vélin tilvalinn
ferðafélagi enda hægt að sameina alla
miðlun í sömu maskínunni.
HVAÐ NÆST?
Þrátt fyrir alla þá möguleika sem PSP
hefur upp á að bjóða núna þá mun hún
þróast á komandi mánuðum og nýir
möguleikar, tölvuleikir og kvikmyndir líta
dagsins ljós. Hægt er að hlaða endalaust
af efni inn á tölvuna svo lengi sem
notandinn á nóg minni en tölvan notar
minniskort „Memory Stick“ til að vista
upplýsingar.
Þar sem Íslendingar eru tæknióð þjóð
má búast við að innrás PSP falli vel í
kramið hjá þjóðarsálinni. Að minnsta
kosti æskunni og túristum.
PSP-innrásin
Fyrirbæri› Playstation Portable frá Sony er lent á
Klakanum. 2.000 litlir svartir ferkanta›ir hlutir á
stær› vi› sjónvarpsfjarst‡ringu eru me›al Íslendinga
akkúrat núna. Hugsanlega eru fleiri svona tæki í fór-
um túrista en fla› er á huldu a› svo stöddu. Á næstu
misserum munu flessi tól vera á faraldsfæti me›al
vor, sérstaklega á svonefndum heitum reitum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI