Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 56
„Að koma í Þjórsárver er stór-
kostlegt því svæðið er lifandi
vatnaveröld og víða dásamlegur
skrúðgarður á öræfum. Það er
ógleymanlegt og því skiptir það
framtíðina miklu að til séu svona
staðir sem fái að vera í friði, og
jafnvel ef við erum svo sjálfum-
glaðar goðverur að álíta að hags-
munir mannsins séu það eina sem
máli skipti í veröldinni þá vernd-
um við hagsmuni hans einungis
með því að vernda heilbrigt og
óspillt umhverfi hans sem aftur
er umhverfi annarra lífvera.“
Allt of fáir stjórnmálamenn
skilja mikilvægi náttúruverndar
„Í umræðunni um virkjanafram-
kvæmdir hefur þótt afskaplega
snjallt að segja að tilfinningarök
séu léleg rök gegn stóriðju, en
kjarni málsins er að líf án tilfinn-
inga er einskis vert því ef við
tengjum tilfinningar okkar ekki
við rökhugsunina þá erum við ör-
ugglega á villigötum,“ segir Guð-
mundur Páll.
„Allt of fáir stjórnmálamenn
hafa tekið ábyrga afstöðu til stór-
kostlegrar náttúru Íslands og eru
því miður fjarri því að skynja eitt
mikilvægasta málefni heimsins
um þessar mundir. Almenningur
er mun betur að sér en þeir. Þetta
er ekki ósvipað stjórnmálaflokki
sem hefur ekki heilbrigðismál eða
menntamál á stefnuskrá sinni.
Náttúruvernd er hluti af heil-
brigðismálum, menntun, menn-
ingu og atvinnumálum og sá
stjórnmálaflokkur sem tekur ekki
skýra afstöðu með náttúruvernd
ætti að leita sér að jákvæðari og
upplýstari forystu. Þjóð verður að
geta átt landið sitt í friði fyrir
stjórnmálamönnum og hamagang-
inum í þeim.“
Litskrúðugir blikar heppilegir
til undaneldis
Í bókinni eru ítarlegar lýsingar á
tilhugalífi og hátterni margra
fuglategunda.
„Öfugt við gæsirnar eru hjú-
skapur andanna oftast vorlangur
eða skemmri, fullur af ærslum,
látalátum en stundum ofbeldi.
Blikinn eða steggurinn er oftast á
förum þegar að ungarnir byrja að
bjarga sér. Kvenfuglinn sinnir
ásetu og umönnun unga en á með-
an leika steggirnir sér og eru ekki
við eina fjölina felldir, leita á nýj-
ar slóðir og halda síðan í karla-
klúbbinn til að fella fjaðrir. Hlut-
verkum er hins vegar öfugt farið
hjá óðinshana og þórshana. Þar
sér karlfuglinn um útungun og
uppeldi en kerlan finnur sér nýj-
an karl.“
Guðmundur Páll segir kollur
glysgjarnar og það bendi til þess
að þær hafi í gegnum tíðina valið
sér skrautlega blika til undaneld-
is. „Steggur sem er litskrúðugur,
ber sig vel og lætur drýgindalega,
er efnilegur til undaneldis og því
hefur þetta glysgjarna val koll-
anna átt þátt í ræktun skrautlegra
blika, að talið er.“
Fuglaskoðun verði að
þjóðaríþrótt
„Ég gæli við þá hugmynd að
fuglaskoðun verði þjóðaríþrótt
Íslendinga og bókin er framlag
mitt til þess. Við eigum að líta til
fugla himinsins og segja hvert
öðru sögur af þeim. Fuglaskoðun
á að kenna strax í leikskólum og
skipulagsmál bæja og borgar eiga
taka mið af þessum auðæfum
þannig að við elliheimili og leik-
skóla ættu ávallt að vera hannað-
ar tjarnir og runnar svo ungir og
aldnir geti fylgst með fuglum alla
daga,“ segir Guðmundur Páll.
„Verði fuglaskoðun að þjóðar-
íþrótt munu áherslur breytast
fuglum og umhverfi í hag,“ að áliti
Guðmundar Páls, „því þá átta
flestir sig á heildarsamhenginu,
jafnvel þingmenn. Fuglar eru
stórkostlegar verur sem ber að
vernda og þeir tengja manninn við
náttúruna.“ „Það er kominn tími
til að huga að velferð sálarinnar
og um það hvað veitir okkur raun-
verulega ánægju í tilverunni og
hvílum okkur á verðbréfum, fram-
kvæmdahamagangi og gengdar-
lausri peningahyggju. Engu líkara
er en að sálarháski sé lífsstíll okk-
ar og það stefnir í að við verðum
apar af aurum; glötum því sem
máli skiptir fyrir athafnafíknina,“
segir Guðmundur Páll.
„Ég veit að fuglar gera fólki
gott, það hafa allir gaman að fugl-
um því sennilega höfða engin villt
dýr meira til mannsins en fuglar.
Við eigum líka eftir að skilja svo
margt sem fuglar gera og af
hverju þeir gera það,“ segir
Guðmundur og lýsir þeirri skoðun
sinni að bók hans sé fyrst og síð-
ast hvatning að kynnast fuglum
og leiðsögn hvernig eigi að njóta
þess að þekkja fugla og skilja bet-
ur lífheim þeirra og þarfir.
„Ég held að það væri stórkost-
legt ef til kæmi þjóðarátak í fugla-
skoðun, það myndi hafa mjög víð-
tæk og varanleg áhrif, ekki bara á
umhverfið sjálft heldur líka já-
kvæð áhrif manna á milli. Að
kenna fuglaskoðun er eitt það
besta sem við getum gert til að
sameina og þroska fólk, eins svíf-
andi og hugmyndin virðist vera.
Fuglaskoðun er mannbætandi líkt
og öll náttúruskoðun er, hún er
líka spennandi, menn gleyma sér
og dagsins amstri og stressi, fá
sálarfrið og njóta þess að hugsa
og ræða um fugla,“ segir
Guðmundur Páll.
ingi@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 3. september 2005 35
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
PÓ
Steggur sem er lit-
skrúðugur, ber sig vel og
lætur drýgindalega, er
efnilegur til undaneldis
og því hefur þetta glys-
gjarna val kollanna átt
þátt í ræktun skrautlegra
blika, að talið er.“
,,