Fréttablaðið - 03.05.2006, Síða 12
12 3. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
HRAÐAKSTUR Lögreglan í Reykjavík
stöðvaði tæplega níutíu ökumenn
um síðastliðna helgi, innan bæjar-
marka, sem allir óku á yfir hundr-
að kílómetra hraða. Samtals stöðv-
aði lögreglan 93 ökumenn og voru
88 af þeim á yfir hundrað kíló-
metra hraða.
Guðbrandur Sigurðsson, aðal-
varðstjóri umferðadeildar Lög-
reglunnar í Reykjavík, lýsti því
yfir í viðtali við Fréttablaðið á
dögunum að glannalegur akstur
ökumanna væri viðvarandi vanda-
mál.
Lögreglumenn á höfuðborgar-
svæðinu, sem fylgdust með umferð
um helgina, segja ófremdarástand
hafa verið á götum á höfuðborgar-
svæðinu. „Við urðum varir við
mikinn ökuhraða alla helgina.
Talsvert var um ofsaakstur og
mældust þó nokkrir á vítaverðum
hraða. Ökumenn sem aka svona
glannalega verða að hafa það hug-
fast að þeir eru að skapa stórhættu
með aksturslagi sínu,“ sagði
Sævar Finnbogason, varðstjóri í
lögreglunni í Kópavogi en anna-
samt var hjá lögreglunni í bænum
um síðastliðna helgi. Sérstaklega
bar mikið á hraðakstri á stofn-
brautum og var meðal annars einn
ökumaður stöðvaður á 161 kíló-
metra hraða, þar sem hámarks-
hraði er 70.
Lögreglan á öllu höfuðborgar-
svæðinu hefur að undanförnu
fylgst náið með umferð og beitir
með annars ómerktum bifreiðum í
umferðinni, til þess að geta fylgst
betur með því hvaða ökumenn
hafa tilhneigingu til hraðaksturs.
Sturla Þórðarson, sækjandi hjá
lögreglustjóranum í Reykjavík,
segir sláandi að heyra af því að
ökumenn skuli keyra á um og yfir
160 kílómetra hraða á götum á höf-
uðborgarsvæðinu. „Löggæsluna
þarf að efla til þess að hægt sé að
fylgjast betur með ökumönnum
sem stunda hraðakstur á götum.
Auk þess þurfa viðurlög að vera í
samræmi við hættuna sem skap-
ast við hraðakstur.“
Lögreglan í Reykjavík fylgist
náið með umferð á helstu stofn-
brautum í Reykjavík auk þess sem
að lögreglan í nágrannasveitarfé-
lögum Reykjavíkur fylgist vel með
umferðarhraða. magnush@frettabladid.is
Hver er stefna stjórnmálaflokkanna
í málefnum fjölskyldunnar?
www.verndumbernskuna.is
fimmtudaginn 4. maí kl. 15:00 - 17:00
í húsi Íslenskrar erfðagreiningar
Opinn fundur
Börnin í fyrsta sæti
Fundarstjóri Kristján Kristjánsson, fréttamaður
Ávarp foreldris Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna:
Björn Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki
Dagur B. Eggertsson Samfylkingunni
Hanna Birna Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki
Ólafur F. Magnússon Frjálslynda flokknum
Svandís Svavarsdóttir Vinstri hreyfingunni-grænu framboði
Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands hafa tekið ákvörðun um að
sameinast í eitt félag. Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um nafn á nýja
félagið og er öllum heimil þátttaka. Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að taka
þátt. Nýtt félag verður lands- félag og verða félagsmenn þeir sem lokið hafa
vélstjórnarnámi, iðnnámi í málm - og véltæknigreinum og veiðarfæragerð, einnig
iðnnemar í greinunum og fleiri sem starfa í þessum eða skyldum greinum.
Vegleg verðlaun eru í boði og er skilafrestur til 1. júní 2006.
Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðum félaganna velstjori.is og metalnet.is eða
í síma 562 9062 og 533 3044.
Félag járniðnaðarmanna / Vélstjórafélag Íslands
SAMKEPPNI UM NAFN
VOR Í TÉKKLANDI Þetta unga par var heldur
betur rómantískt þar sem ljósmyndari festi
það á filmu í Petringarðinum í miðborg
Prag, höfuðborgar Tékklands, fyrr í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Ígor Ívanov, fram-
kvæmdastjóri rússneska þjóðar-
öryggisráðsins og fyrrverandi
utanríkisráðherra, gisti óvænt á
Hótel Keflavík í fyrrinótt ásamt
30 manna fylgdarliði.
„Það var hringt í okkur um
klukkan sex í fyrrakvöld og við
beðnir um að taka við honum
ásamt 30 manna fylgdarliði og
svo var hann kominn um klukku-
stundu síðar,“ segir Steinþór
Jónsson hótelstjóri. Ívanov fór
svo seinnipartinn í gær til
Bandaríkjanna þar sem hann
mun funda með ráðamönnum en
þota hans þurfti að lenda hér
vegna bilunar. Hann lét vel af
dvölinni hér meðan hann beið
eftir annarri þotu frá Moskvu að
sögn Steinþórs. „Hann var mjög
alþýðlegur og blandaði geði við
hótelgesti og aðra og gekk svo
hér um í grenndinni og þótti gott
að anda að sér hreinu lofti.“
Hann ræddi hvorki við ráða-
menn né blaðamenn á meðan á
dvöl hans stóð.
Steinþór er ekki óvanur því að
fræga fólkið banki upp á hjá
honum en fyrir nokkrum árum
leitaði John Travolta á náðir hans
en varð þó frá að hverfa þar sem
allt var uppbókað. „Það var því
mikil gæfa að ekki var uppbókað
núna en það hefur verið nær fullt
hjá mér að undanförnu,“ segir
hótelstjórinn. - jse
Ígor Ívanov, framkvæmdastjóri rússneska þjóðaröryggisráðsins, gisti í Keflavík:
Blandaði geði við gesti
STEINÞÓR JÓNSSON OG ÍGOR ÍVANOV Hér
sést hótelstjórinn ásamt Ívanov sem kom
óvænt á Hótel Keflavík í fyrrakvöld og unir
sér hið besta.
DÓMSMÁL Maður sem svaf
áfengissvefni í bíl á helstu umferð-
argötu Selfoss hefur verið dæmd-
ur til að greiða 130 þúsund í sekt.
Hann missir ökuréttindin í tvö ár.
Lögreglan stöðvaði för manns-
ins að morgni 25. febrúar. Lög-
reglumenn komu að bifreiðinni
þar sem hún hafði stöðvast rétt
við gatnamót Tryggvagötu og
Austurvegar. Bifreiðin, sem er
sjálfskipt, var í gangi og í gír og
var maðurinn sofandi í ökumanns-
sæti hennar. Vínandinn í blóði
mannsins nam 2,09 prómillum og
2,77 prómillum í þvagi hans.
Leyfilegt magn má vera undir 0,5
prómillum. - gag
Svaf áfengissvefni á ferð:
Bíllinn í gír á
miðjum vegi
Ofsaakstur
skapar hættu
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði tæplega níutíu öku-
menn á yfir hundrað kílómetra hraða um helgina.
Lögreglumenn hafa áhyggjur af vítaverðum akstri
ökumanna sem ógna lífi fólks með aksturlagi sínu.
UMFERÐARSLYS Í REYKJAVÍK Afleiðingar hraðaksturs hafa verið skelfilegar það sem af er ári.
Rekja má tvö dauðaslys, innan bæjarmarka, til hraðaksturs.
FIMM MESTU ÖKUNÍÐINGAR SÍÐ-
USTU ÞRIGGJA SÓLARHRINGA
➦169 km/klst. Hámarkshraði 60 Sæbraut
➦Ökumaður fæddur 1987 BMW-bifreið
➦157 km/klst. Hámarkshraði 80 Ártúnsbrekka
➦Ökumaður fæddur 1987 Mercedes Benz
➦156 km/klst. Hámarkshraði 80 Ártúnsbrekka
➦Ökumaður fæddur 1981 Honda Civic
➦140 km/klst. Hámarkshraði 80 Miklabraut
➦Ökumaður fæddur 1987 Opel Astra
➦148 km. Hámarkshraði 80 Ártúnsbrekka
➦Ökumaður fæddur 1987 Audi A3