Fréttablaðið - 03.05.2006, Síða 20
3. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000
SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja
ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum
á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000
Seltjarnarnesi
Gerið
verðsamanburð
KT verslun Akureyri
Njarðarnesi S. 466 2111
31” 14.882,-
32” 15.661,-
33” 15.900,-
35” 16.870,-
Er jeppinn tilbúinn
fyrir sumarið?
Meðbyr
Frambjóðendur til borgarstjórnar eru
óþreyttir við að lýsa þeim mikla meðbyr
sem framboð þeirra njóta meðal borgar-
búa og reynist auðvelt að túlka niður-
stöður skoðanakannana sér í hag. „Mér
þykja þetta spennandi niðurstöður og við
í Samfylkingunni eigum mikið inni,“ sagði
Dagur B. Eggertsson eftir síðustu könnun
Fréttablaðsins. Fylgi flokksins hafði dalað
frá könnuninni þar á undan. „Okkur
frambjóðendum fannst þetta frábær endir
á skemmtilegri viku og við finnum svo
sannarlega fyrir auknum meðbyr,“ sagði
Björn Ingi Hrafnsson á sunnudag þó að
hann kæmist ekki í borgarstjórn sam-
kvæmt nýrri könnun Gallup. „Framboð
frjálslyndra og óháðra í Reykjavíkurborg
er í góðri sókn,“ segir á vef Frjálslynda
flokksins þó að glæný könnun sýni að
flokkurinn missi fulltrúa sinn úr borgar-
stjórn. „Andrúmsloftið er með okkur.
Aldan undir iljunum, kröftug og sterk,“
segir Svandís Svavarsdóttir á bloggsíðu
sinni um stöðu VG. „Stemningin með
Sjálfstæðisflokknum,“ er fyrirsögn frétta á
vef flokksins eftir nýju Gallup-könnunina.
Mótbyr
Nokkur hundruð manns komu saman í
miðborg Reykjavíkur þann fyrsta maí og
hlýddu á ávörp verkalýðsforingja, tónlist
og gamanmál. Tugir tóku þátt í hátíðar-
höldunum á sumum stöðum landsbyggð-
arinnar en sífellt fjölgar þeim stöðum
þar sem hvorki er efnt til kröfuganga né
baráttufunda. Lauslegir útreikningar benda
til að saman talið hafi rúmlega
eitt þúsund manns tekið þátt í
hátíðarhöldum verkalýðsfélag-
anna. Er það um eitt prósent
allra félagsmanna Alþýðu-
sambandsins og Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja
sem verður að teljast æði lágt
hlutfall.
Ein fréttastofa RÚV
Meðal þess sem hugsanlega kann að
breytast verði frumvarp menntamálaráð-
herra um Ríkisútvarpið að lögum er að
rekin verði ein fréttastofa innan veggja
Efstaleitisins í stað tveggja eins og nú er.
Fréttastofur Útvarps, undir stjórn Óðins
Jónssonar, og Sjónvarps, undir stjórn
Elínar Hirst, eru aðskildar en tilheyra báðar
fréttasviði RÚV sem Bogi Ágústsson stýrir.
Á göngunum er skrafað um að þessu
fyrirkomulagi verði breytt, ef og þegar RÚV
verður hlutafélag, og í framtíðinni verði ein
fréttastofa og einn fréttastjóri. Skrafhreifa
greinir þó á um hverju þessara
þriggja verði falið að stýra
sameiginlegri fréttastofu
eða hvort Páll Magnússon
útvarpsstjóri kýs að finna
einhvern annan til verksins.
bjorn@frettabladid.is
Íslenskir stjórnmálaflokkar úthluta
sjálfum sér á fjórða hundrað millj-
óna króna af skattfé landsmanna til
starfsemi sinnar. Í því efni hafa
þeir farið að fordæmi allra lýðræð-
isþjóða á Vesturlöndum, sem hafa
talið einsýnt að starfsemi stjórn-
málaflokka sé svo snar þáttur lýð-
ræðisins, að réttlætanlegt sé að
styrkja hana af almannafé svo að
síður sé hætta á að flokkarnir ánetj-
ist fjársterkum öflum og fari, með-
vitað eða ómeðvitað, að ganga
erinda þeirra við margs konar laga-
setningu og stjórnsýsluákvarðanir.
En alls staðar annars staðar en hér
fylgir þessu að fjárreiður stjórn-
málaflokkanna séu uppi á borðinu
samkvæmt þeirri gullnu reglu, að
tengsl peninga og stjórnmála skuli
vera gagnsæ og þola dagsins ljós.
Jafnframt hefur sú regla verið
innleidd um alla Evrópu að stjórn-
málaflokkarnir skuli hafa jafnan,
ókeypis aðgang að ljósvakamiðlum
ákveðinn tíma fyrir kosningar, en
sneiða hjá rándýrum auglýsinga-
herferðum, sem reynslan hefur
sýnt að vilja fara úr böndunum í
hita leiksins, og orðið til að steypa
flokkum í stórskuldir. Þannig er
komið til móts við kröfur flokkanna
um að fá að koma boðskap sínum á
framfæri gegnum ljósvakamiðlana
– en á jafnréttisgrundvelli og án
stórra fjárútláta.
Þjóðarhreyfingin – með lýðræði
ákvað að vekja athygli flokkanna og
íslenskra kjósenda á því hvernig
lýðræðisþjóðirnar í kringum okkur
hafa talið rétt að skipa þessum
málum, ýmist með lagasetningu eða
frjálsu samkomulagi flokkanna inn-
byrðis, og skrifaði því öllum for-
mönnum flokkanna bréf og fór fram
á það að þeir gerðu með sér slíkt
samkomulag fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í maí. Óskað var eftir
svari mánuði fyrir kosningar, 27.
apríl. Er skemmst frá því að segja,
að enginn þeirra sá ástæðu til að
svara þessu erindi okkar, þótt tals-
menn þeirra allra – nema Fram-
sóknarflokksins – hafi tekið því með
jákvæðum hætti – að því tilskildu
að enginn skoraðist úr leik. Annar
maður á lista Framsóknarflokksins
hér í borginni, Óskar Bergsson, sá
hins vegar ástæðu til þess í grein
hér í blaðinu að reyna að gera þetta
framtak okkar tortryggilegt og gefa
í skyn að með þessu værum við að
þjóna annarlegum hagsmunum.
Ég get fullvissað Óskar um að
okkur gekk ekki annað til en ein-
lægar áhyggjur af afleiðingum þess
að óheftur ribbaldakapítalismi
fengi að leika lausum hala í íslenskri
kosningabaráttu og gæti þannig
gert út um það, hvaða flokkar og
stjórnmálaöfl fara hér með völd, og
öðlast um leið möguleika á að beita
þessum öflum í sína þágu. Sumum
kann að finnast að í borgarstjórnar-
kosningum sé ekki eftir þeim stór-
hagsmunum að slægjast að stórfyr-
irtæki væri reiðubúið að greiða
auglýsingaherferð einhvers stjórn-
málaflokks í von um að hann hefði
úrslitaáhrif á afgreiðslu mála hjá
borginni,
Við skulum því setja upp ímynd-
að dæmi. Segjum sem svo að flokki,
sem sáralítils fylgis nyti í skoðana-
könnunum, tækist með vel heppn-
aðri auglýsingaherferð að komast í
oddaaðstöðu í borginni og fengi þar
með borgarstjóraembættið. Hann
myndaði meirihluta með flokki sem
ekki hefði trú á hæfni frjáls hag-
kerfis til að mynda hálaunuð störf.
Eina leiðin til að skaffa störf væri
framhald stóriðjustefnu; uppbygg-
ing 5, 10, eða 15 álvera um allt land
og til þess væri fórnandi að selja til
þeirra orku á tombóluprís. Eins og
allir vita hafa Orkuveita Reykjavík-
ur og Landsvirkjun ekki gengið
fyllilega í takt í þeim efnum á und-
anförnum árum, Orkuveitan verið í
nokkurri samkeppni við Lands-
virkjun og lagt kapp á að kaupa
orkuréttindi víða um landið, þannig
að nú eru þessi fyrirtæki sambæri-
leg að stærð. Segjum sem svo að
sömu öfl réðu landstjórninni og
borginni og þau stefndu að því að
einkavæða Landsvirkjun og bjóða
hið einkavædda fyrirtæki til sölu á
heimsmarkaði. Mundi ekki ein-
hverjum álrisanum þykja það til-
vinnandi fórnarkostnaður að borga
reikninginn af einni eða tveimur
auglýsingaherferðum smáflokksins
í von um að þessu lík staða gæti
komið upp?
Sem betur fer er þetta langsótt
röksemdafærsla. En við lifum á
tímum heimsvæðingarinnar í við-
skiptum og höfum séð hvernig
alþjóðleg risafyrirtæki hafa teygt
anga sína inn á öll svið mannlegrar
tilveru og þá ekki síst stjórn-
málanna. Hugveitur í Bandaríkjun-
um, hvort sem þær teljast á hægri
væng eða vinstri, eru sammála um
það að átök á heimsvísu á næstu
áratugum muni ekki snúast um hug-
myndafræði, heldur orkulindir.
Þess vegna er það ekki „nútíma-
legt“ að neita alfarið að setja ribb-
aldakapítalismanum eðlilegar
skorður á stjórnmálasviðinu. Það er
gamaldags og forneskjulegt, já, og
beinlínis háskalegt. Það er of seint
að byrgja brunninn þegar barnið er
dottið ofan í.
Auðvæðing kosningabaráttu?
Í DAG
TENGSL FJÁR-
MAGNS OG LÝÐ-
RÆÐIS
ÓLAFUR HANNI-
BALSSON
Átök á heimsvísu á næstu
áratugum munu ekki snúast
um hugmyndafræði, heldur
orkulindir.
Brýnasta úrlausnarefni í umhverf-
ismálum á Akureyri er að draga
úr svifryksmengun svo andrúms-
loft á Akureyri standist heilbrigð-
iskröfur sem gerðar eru í þéttbýli
í Evrópu. Helstu leiðir til úrbóta:
gjörbreyttar og tíðar almennings-
samgöngur, sem kostaðar verða
alfarið úr sameiginlegum sjóðum,
notkun loftbóludekkja í stað nagla-
dekkja hér innanbæjar og hreins-
un gatna. Einnig þarf að flýta upp-
byggingu hjóla- og göngustíga og
tengja þá betur saman.
Trúlega kæmi sér þó best við-
horfsbreyting til þess að ganga
frekar í vinnu og skóla, heldur en
aka fyrir þá sem það geta. Það
bætti í senn andrúmsloftið og lýð-
heilsu bæjarbúa. Setja þarf upp
mælistöð sem mælir ástand and-
rúmsloftsins og gefa bæjarbúum
upplýsingar þá daga sem svifryk
og önnur efnasambönd fara yfir
heilsuverndarmörk. Mæla þarf
hauggas frá sophaugum á Glerár-
dal. Hanna umhverfisvísa, sem
nýtist til að meta ástand, árangur
og viðhorf.
Akureyringar eiga að vera til
fyrirmyndar í endurvinnslu, svo
sem moltugerð. Þeir þurfa að
draga úr úrgangi, flokka mikið
meira en gert er og útbúa jarð-
gerðarstöð á láglendi í stað þess að
láta berjast við jarðgerð í 250 m
hæð yfir sjávarmáli. Jarðgerðar-
stöð sem væri með upphituð plön
og nýtti jarðhita til að flýta jarð-
gerðinni hluta ársins. Þannig yrði
jarðgerðarstöð þrifalegt, lyktar-
laust svæði engum þyrnir í augum,
heldur þrifalegur 6-10 manna
vinnustaður. Yfirbyggðir skálar
ásamt tromlum og tækjum sem til
þyrfti, yrði forsenda fyrir rekstri
og öllum skilyrðum til reksturs
slíks staðar yrði fullnægt.
Gera þarf stórátak í frágangi
og umhirðu opinna svæða og nýta
þau enn betur en gert hefur verið.
Umhverfisþáttum má gera skarp-
ari skil í allri stefnumótun og
skipulagsvinnu líkt og þegar Árni
Steinar var umhverfisstjóri bæj-
arins. Ný vistvæn atvinnutæki-
færi tengjast vel skipulögðum
svæðum. Fyrirtæki sem sýna
frumkvæði í umhverfisvænum
háttum eiga að njóta hvatningar
og styrkja frá ákveðnum umhverf-
issjóði. Akureyringar eiga skilið
að fá fólk í bæjarstjórn sem vill og
getur gert talsvert betur í
umhverfis- og atvinnumálum en
fráfarandi bæjarstjórn.
Höfundur skipar 2. sæti á V-
lista Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs á Akureyri.
Hreinar línur - velferð - umhverfi - atvinna
UMRÆÐAN
KRISTÍN SIGFÚSDÓTTIR FRAMBJÓÐANDI
SKRIFAR UM UMHVERFISMÁL
Þann 1. maí urðu þau tímamót að borgarar átta þjóðlanda bættust í hóp þeirra þjóða sem geta komið til Íslands og stundað hér atvinnu án takmarkana. Það kom skýrt fram í
ræðum þann dag að fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar eru um
margt uggandi yfir þessari þróun. Óttinn beinist að því að kjara-
samningar verði brotnir á útlendingum, sem hingað koma, með
þeim afleiðingum að kjör muni almennt versna, og að til lengri
tíma geti vera þeirra á íslenskum vinnumarkaði aukið atvinnu-
leysi meðal heimamanna.
Full ástæða er til að taka þessar áhyggjur alvarlega og ljóst er
að álagið á Vinnumálastofnun og verkalýðshreyfinguna við eft-
irlit með því að kjarasamningar séu virtir mun síst minnka við
þessar breytingar.
Hitt er svo annað mál að varla hefði verið hægt að finna heppi-
legri tímapunkt en nú til að auka frelsi í flæði vinnuafls til lands-
ins. Hlutfall útlendinga á íslenskum vinnumarkaði hefur vaxið
gríðarlega á undanförnum árum og er nú orðið um 7 prósent,
sem er það hæsta á Norðurlöndum. Á sama tíma hefur dregið
svo úr atvinnuleysi að það mældist aðeins 1,6 prósent síðastliðinn
febrúar.
Við mat á vinnumarkaði er gjarnan litið svo á að þegar atvinnu-
leysi er komið niður fyrir 2 prósent séu í raun fleiri farnir að
vinna en virkilega vilja það. Ef það er rétt má fullyrða að enginn
af öllum þeim mikla fjölda útlendinga sem er hér við vinnu hafi
tekið starf frá Íslendingi.
Þvert á móti er erfitt að gera sér í hugarlund að íslenskt sam-
félag væri hreinlega starfshæft án erlends vinnuafls. Allt frá
sjúkrahúsunum til byggingasvæða um land allt eru útlendingar
ómissandi hjól til að halda vélinni gangandi.
Þetta er mikilvæg staðreynd sem ekki er víst að allir geri sér
grein fyrir, að minnsta kosti ekki ef hafðar eru í huga neikvæðar
niðurstöður könnunar sem Ásgeir Hannes Eiríksson, veitinga-
maður og fyrrverandi alþingismaður, lét gera á dögunum og
sýndi að ótrúlega hátt hlutfall þjóðarinnar ber í brjósti sér nei-
kvæðar tilfinningar gagnvart útlendingum sem hafa kosið að
setjast hér að eða sækja vinnu. Það þarf að vinna á móti þeim til-
finningum með öllum tiltækum ráðum.
„Okkur ber að gæta systra okkar sem bræðra, innlendra og
erlendra,“ sagði Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Lands-
sambands íslenskra verslunarmanna, í 1. maí ávarpi sínu á Ing-
ólfstorgi þegar hún lýsti áhyggjum sínum yfir því að erlent
starfsfólk væri ráðið hér á launum undir lágmarkstöxtum. Von-
andi geta sem flestir gert þessi orð Ingibjargar að sínum í sem
víðustu samhengi.
SJÓNARMIÐ
JÓN KALDAL
Útlendingar sem eru hér við störf hafa ekki
tekið vinnu frá Íslendingum.
Óttinn við hið
óþekkta
Þvert á móti er erfitt að gera sér í hugarlund að
íslenskt samfélag væri hreinlega starfshæft án erlends
vinnuafls. Allt frá sjúkrahúsunum til byggingasvæða
um land allt eru útlendingar ómissandi hjól til að
halda vélinni gangandi.