Fréttablaðið - 03.05.2006, Page 48

Fréttablaðið - 03.05.2006, Page 48
Tengsl Ræktun Tækifæri Þekking og starfsþróun Allir starfsmenn Fjarðaáls eiga að fá tækifæri til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni og vaxa og dafna í starfi. Starfsmenn munu öðlast verðmæta þekkingu sem á að nýtast til frambúðar bæði innan og utan fyrirtækisins. Jafnvægi vinnu og einkalífs Alcoa Fjarðaál á að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hvað í því felst nákvæmlega verður starfsmanna að ákveða í samein- ingu. Hluti af þjónustu við starfsmenn mun einnig standa fjölskyldum þeirra til boða. Kaup og kjör Íslenskur áliðnaður hefur greitt samkeppnishæf laun og starfsmannavelta í greininni hefur verið lítil. Jafnvægi Bakgrunnur Öryggi Liðsvinna Við tökum vel á móti þér Menntun og reynsla Margvísleg og spennandi störf verða í boði hjá Fjarðaáli. Við ætlum að mynda sam- hentan hóp fólks með fjölbreytta menntun og reynslu. Tæplega 40% starfs- manna verða með háskóla- menntun eða iðnmenntun. Öll störf í fyrirtækinu verða góð störf. Kyn og aldur Starfsmenn Fjarðaáls eiga að endurspegla og efla samfélagið. Æskilegt er að kynjahlutfall verði sem jafnast og öll störf í álverinu henta jafnt konum sem körlum. Jafnframt er stefnt að góðri aldursdreifingu og eðlilegri endurnýjun í fyrirtækinu. Vinnutilhögun o vinnutími Störf í áliðnaði eru örugg og vinnutíminn yfirleitt fyrirsjáanlegur. Álið verður að fram- leiða allan sólarhringinn, allt árið um kring. Í boði verða einnig hlutastörf fyrir fólk sem á erfitt með að vinna á vöktum eða vera í fullu starfi. Frá samfélagi til mannauðs Ferli og teymi Í álverinu í Fjarðabyggð verður unnið samkvæmt verkferlum í sjálfstýrðum teymum með víðtæk verksvið. Í teym- unum verða leiðtogar sem styðja liðs- menn og sjá til þess að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu. Kjarnateymum verður skipt upp í álframleiðslu, málm- vinnslu og framleiðsluþróun. Stoðteymi og þekkingarsetur veita kjarnateymum stuðning. Stöðugt verður leitast við að styrkja teymin og bæta verkferlin. Teymin munu sjálf koma að ráðningu nýrra liðsmanna þegar störf losna. Fjölbreytni og fjölhæfni Öll störf í álverinu eru fjölbreytt og munu allir starfsmenn takast á við ólík viðfangs- efni. Að auki verður árlega boðið upp á nokkur starfsþjálfunartækifæri, þar sem áhugasamir starfsmenn fá þjálfun og reynslu á nýjum starfsvettvangi í 12 mánuði. Slík starfsþjálfun verður til dæmis á sviði öryggis-, umhverfis, mannauðs- og gæðamála. Við leggjum mikið upp úr því að finna rétt fólk í rétt störf. Rétta fólkið getur haft mjög ólíka menntun og reynslu. Menntun getur verið fengin úr skóla lífsins og fólk getur hafa öðlast mikilvæga reynslu í gegnum uppeldis- eða félagsstarf. Ráðningarferlið er staðlað og allir umsækjendur eru boðaðir í viðtal. Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá. Svæðisvinnumiðlun Austurlands aðstoðar umsækjendur á Austurlandi við að gera ferilskrá. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Fjarðaáli. Fæst okkar hafa starfað áður í álveri. Við tökum öll þátt í að móta nýtt fyrirtæki frá grunni. Við ætlum að vinna saman og læra hvert af öðru. Við ætlum að fara nýjar leiðir í stjórnun og skipulagi. Allir starfsmenn verða í lykilhlut- verki. Styrkur fyrirtækisins verður í liðsheildinni. Viltu vera í liðinu okkar? Samstarf og samráð Áhersla verður lögð á að starfsmenn þekki sem best allar hliðar starfseminnar. Teymin munu hafa með sér náið samstarf og samráð um mál sem varða allt fyrir- tækið og umhverfi þess. Allt að fimmt- ungi vinnutíma síns munu framleiðslu- starfsmenn vinna í hópum að ýmsum sameiginlegum málum, svo sem umhverfis-, samfélags- eða gæðamálum. Stefna Alcoa Fjarðaáls er að fjárfesta til framtíðar í öflugu þekkingarsamfélagi bæði innan og utan fyrirtækisins. Nú þegar hefur fyrirtækið lagt um 140 milljónir króna til samfélagsmála. Slík fjár- festing skilar sér í verðmætum mannauði sem aftur styrkir samfélagið enn frekar. Starfsmenn eru hvattir til að sinna samfélagsmálum og Fjarðaál greiðir styrki með þeim starfsmönnum sem vinna í þágu góðgerðarsamtaka. Þannig á samfélagið allt að njóta góðs af. Þjálfun og fræðsla Fræðslusetur verður starfrækt í álverinu og allir starfsmenn fá víðtæka þjálfun og fræðslu. Margir munu fá þjálfun í öðrum álverum Alcoa og um 40 erlendir sérfræð- ingar munu aðstoða við gangsetninguna. Aðalheiður Vilbergsdóttir með son sinn, Birki Inga Óskarsson. Aðalheiður stýrir skrifstofu Fjarðaáls á Reyðarfirði. Þjálfun starfsmanna getur verið margþætt. Sálfræðingurinn og fræðslustjórinn, Steinþór Þórðarson, er hér ásamt leiðbeinanda á reykköfunaræfingu í Kanada. Rekstrarhagfræðingurinn, Bob Roy, ætlar að miðla starfs- mönnum Fjarðaáls af langri reynslu sinni næstu tvö árin. Nemendur í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Sören Kristinsson, sonur Ellenar Sæmundsdóttur, starfsmanns Fjarðaáls. Birkir Einar Gunnlaugsson mættur á knatt- spyrnuæfingu í Fjarðabyggðar- höllinni, kannski fullsnemma. Hluti af mannauðs- og samfélagsteyminu, við Upplýsingamiðstöð Fjarðaráls, með álverið í baksýn. Stefán Guðjónsson, kerfisfræðingur, mun vinna við eitt af stærstu og öflugustu upp- lýsingakerfum á Íslandi. Mannauðs- fræðingurinn, Sigurður Ólafsson, í Aflhúsi Iceland Spa & Fitness á Reyðarfirði. Hollusta og heils ver d Starfsmönnum Alcoa Fjarðaáls á að líða vel í vinnunni. Í álverinu verður heilsusetur með hjúkrunarfræðingi og öðrum heilbrigðis- sérfræðingum. Í mötuneyti verður boðið upp á hollt og gott fæði undir leiðsögn næringar- ráðgjafa. Fjarðarál styður einnig heilsurækt starfsmanna. www.alcoa.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S A LC 3 17 42 03 /2 00 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.