Fréttablaðið - 03.05.2006, Qupperneq 64
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
3. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Á reglubundinni ráðstefnu fyr-
irtækja sem nota símbúnað frá
sænska fyrirtækinu Ericsson
sem haldin var nýverið var meðal
annars fjallað um Mobile TV eða
„farsjónvarp“. Ráðstefnur sem
þessar eru haldnar tvisvar á ári
og farið yfir möguleikana sem
nýjasta tækni hefur að bjóða.
Í erindinu um „farsjónvarpið“
gerðu sérfræðingar fyrirtækis-
ins tilraun með beina sjónvarps-
útsendingu í GSM-síma í gegn
um EDGE-flutningskerfið, en í
því er flutningshraðinn 240 kíló-
bit á sekúndu. Vel þótti takast
til, en sýnt var efni frá erlend-
um sjónvarpsstöðvum á borð við
CNN. Ekki er langt síðan síma-
fyrirtækin stóru hér tóku upp
EDGE-gagnaflutningskerfi fyrir
farsíma, en það þykir stórauka
þjónustumöguleika í kerfinu, þó
að hraðinn sé ekki nema brot af
því sem fyrirheit eru gefin um í
þriðju kynslóð farsímakerfa.
Að þessu sinni hélt Og
Vodafone ráðstefnu fyrirtækj-
anna, en hún fór fram á hótel
Nordica í Reykjavík. - óká
FARSJÓNVARP Í KYNNINGU Juan-
Antonio Ibanez frá Ericsson fer yfir mögu-
leika í sendingum yfir EDGE-gagnaflutn-
ingskerfi farsíma. Markaðurinn/Heiða
Sjónvarp í beinni
yfir EDGE-kerfið
Sigurjón Örn Þórsson, sem
var aðstoðarmaður félags-
málaráðherra, tekur formlega
við starfi framkvæmdastjóra
verslunarmiðstöðvarinnar
Kringlunnar á næstunni af Erni
Kjartanssyni sem hefur haldið
til Fasteignafélagsins Stoða.
Sigurjón er kunnur úr heimi
kaupmennskunnar, enda rak
hann Herragarðinn um árabil.
- eþa
Nýr stjóri í Kringlunni
DAVID ZELL hefur verið ráðinn yfirmaður
lánastarfsemi og sambankalána í útibúi
Glitnis í London.
David verður
einnig staðgengill
framkvæmdastjóra
útibúsins. David
Zell hefur víðtæka
reynslu af störfum
á fjármálamark-
aði í London og á
meginlandi Evrópu. Hann hefur komið
að umfangsmiklum endurfjármögn-
unarverkefnum, fjárhagslegri endur-
skipulagningu fyrirtækja og fjármögnun
fyrirtækjakaupa. Áður en David hóf störf
hjá Glitni var hann framkvæmdastjóri
hjá WestLB í London þar sem hann var
yfir sambankalánum í Vestur-Evrópu og
víðar. David þróaði sambankalánastarf-
semi WestLB og leiddi stór verkefni fyrir
viðskiptavini eins og Deutsche Bahn,
Gazprom og TUI/Thompson Travel.
Áður en David réðst til WestLB var
hann framkvæmdastjóri lánastarfsemi
Citigroup í 10 ár ásamt því að stýra
sambankalánum í Þýskalandi, Sviss
og á Ítalíu og fyrir heilbrigðisgeirann í
Evrópu.
JÓHANNA Á Bergi hefur verið ráðin
forstjóri Faroe Ship frá og með 22.
maí næstkomandi.
Jóhanna tekur við af
Árna Joensen sem
fer á eftirlaun eftir
tæplega 30 ára starf
sem forstjóri fyrirtæk-
isins. Jóhanna á Bergi
útskrifaðist frá Danish
school of Export and Marketing árið
1994 og lauk mastersnámi í stjórnun frá
Robert Gordon University í Skotlandi
2004. Hún er í dag sölu- og markaðs-
stjóri hjá P/F JFK í Færeyjum og hefur
áður starfað sem sölustjóri hjá P/F kósin
Seafood og sölustjóri hjá Faroe Seafood
í Frakklandi. Hún er stjórnarformaður
verslunarskóla Færeyja auk þess að
eiga sæti í stjórnun nokkurra færeyskra
fyrirtækja. Faroe Ship er leiðandi flutn-
ingsfyrirtæki í Færeyjum og dótturfélag
Eimskips sem hefur undanfarið aukið
verulega umsvif sín í Færeyjum með
kaupum á landflutningafyrirtækjun-
um Heri Thomsen og Farmaleiðum.
Jóhanna á Bergi mun leiða sameiningu
og samþættingu á starfsemi Eimskips
í Færeyjum með það að markmiði að
auka og bæta núverandi þjónustu í
flutningum og vörustjórnun.
RAGNAR ÞÓRIR Guðgeirsson hefur
tekið við forstjórastarfi IMG á Íslandi
og hann mun jafnframt stýra fjármál-
um samstæðunnar.
Innan IMG á Íslandi
eru IMG Gallup, IMG
ráðgjöf og ráðning-
arstofur IMG. Ragnar
er viðskiptafræðingur
frá HÍ og löggiltur
endurskoðandi. Hann
starfaði við endurskoðun hjá KPMG frá
1989 til 1998 en þá hann tók hann að sér
uppbyggingu og stjórnun ráðgjafarsviðs
KPMG. Eftir samruna IMG og KPMG
Ráðgjafar í ársbyrjun 2005 stýrði hann
stoðdeildum félagsins auk þess að stýra
verkefnum á sviði ráðgjafar. Frá nóv-
ember 2005 hefur hann stýrt ráðgjafar-
starfsemi IMG. Ragnar er kvæntur Hildi
Árnadóttur og eiga þau tvö börn.
KRISTINN TRYGGVI Gunnarsson tekur
við framkvæmdastjórn ráðgjafarsviðs
IMG ráðgjafar. Innan ráðgjafarsviðs
eru hópar sem sinna
meðal annars ráðgjöf
á sviði stefnumótunar,
árangursstjórnunar,
mannauðsmála,
stjórnendaþjálfunar,
fjármála, upplýsinga-
tækni og verkferla.
Kristinn er með BS-próf í viðskiptafræði
frá University of North Carolina og
MBA-gráðu frá University of Georgia.
Hann starfaði hjá Íslandbanka frá
1991 til 1998, lengst af sem útibússtjóri
í Garðabæ og Kópavogi. Á árunum
1998 til 2002 starfaði hann hjá SPRON
sem framkvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs og síðar sem framkvæmdastjóri
markaðssviðs. Hann hóf störf hjá IMG
árið 2003 sem ráðgjafi á sviði stefnu-
mótunar, markaðsmála og viðskipta-
tengsla. Kristinn er kvæntur Guðrúnu
Högnadóttur og eiga þau tvær dætur.
EINAR EINARSSON hefur tekið við fram-
kvæmdastjórn á rannsóknarsviði sem
starfar undir merkjum
IMG Gallup. Undir rann-
sóknarsviði eru meðal
annars markaðs- og
vinnustaðarannsóknir,
fjölmiðla- og við-
horfskannanir ásamt
ýmiss konar þjónustumælingum. Þessi
starfsemi er í samstarfi við erlend
samstarfsfyrirtæki, svo sem Gallup og
AC Nielsen. Einar er viðskiptafræðingur
að mennt og hefur starfað hjá IMG frá
árinu 1993. Frá 1997 til 2004 stýrði Einar
einkum verkefnum á sviði markaðs-
greiningar í samstarfi við AC Nielsen.
Einar var áður einn af tveimur aðstoðar-
framkvæmdastjórum IMG Gallup. Hann
er kvæntur Hildi Pálsdóttur og eiga þau
fjórar dætur.
AUÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR hefur tekið við
nýju starfi þjónustustjóra hjá IMG á
Íslandi. Þjónustudeild
annast framkvæmd
markaðsmála, útgáfu-
mála og ritstjórn á ytri
vef félagsins, ásamt
ýmsum innri þjónustu-
þáttum. Auður hóf
störf hjá KPMG Ráðgjöf árið 2000 á
sviði umbrots og grafískrar hönnunar
og sinnti því starfi fyrir KPMG í heild.
Hún gegndi sams konar starfi hjá IMG
þar til hún tók við starfi þjónustustjóra.
Sambýlismaður Auðar er Unnar Friðrik
Pálsson og eiga þau eitt barn.
ÓLAFUR RÓBERT Rafnsson hefur tekið
við nýju starfi framkvæmdastjóra
Kerfisveitunnar ehf.
Kerfisveitan hefur í
nokkur ár leigt aðgang
að MS Axapta-bók-
haldskerfinu og á
síðasta ári bætti hún
hýsingu á Cognos-hug-
búnaði, fyrir viðskiptavini IMG, við þjón-
ustuframboðið. Nú mun Kerfisveitan
einnig taka við verkefnum á sviði
rekstrar innri upplýsingakerfa IMG og
Capacent í Danmörku. Ólafur hefur lokið
tölvunámi við Rafiðnaðarskólann. Hann
hóf störf hjá KPMG árið 2000, þar sem
hann stýrði uppbyggingu upplýsinga-
kerfis fyrirtækisins á Íslandi í samræmi
við kröfur KPMG International. Síðustu
tvö ár hefur hann starfað hjá IMG
Ráðgjöf við ráðgjöf á sviði upplýsinga-
öryggis og reksturs upplýsingakerfa.
Sambýliskona Ólafs er Guðný Ósk
Garðarsdóttir og á hún tvö börn.
Hagvangur b‡›ur flér á morgunver›arfund á
Nordica hotel, fimmtudaginn 11. maí, kl. 8-10.
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík
Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
- vi› rá›um
Fundurinn hefst me› morgunver›i kl. 8.00 og honum l‡kur kl. 10.00.
Vinsamlegast sta›festu komu flína me› flví a› senda tölvupóst á netfangi›
berglind@hagvangur.is fyrir 10. maí.
Nánari uppl‡singar á hagvangur.is
Fjalla› ver›ur um mats- og flróunarstö›var (e. assessment center,
development center) sem bjó›a upp á gagnlegustu a›fer›ina til a› greina
hæfni einstaklinga vi› rá›ningar og stö›uhækkanir, sem og fljálfunarflörf
og skipulagningu starfsferils.
Rætt ver›ur um hva› felst í a›fer›inni og hvernig skipulag og uppbygging
flarf a› vera. Kynnt ver›a helstu verkfæri sem notu› eru, svo sem
persónumat, greindarpróf og sértæk verkefni. Einnig ver›ur rætt um
matsstö›var í íslensku atvinnulífi me› tilliti til hagn‡tingar og kostna›ar.
Hvernig velur flú hæfasta fólki›
Starfsmannastjórnun
Fyrirlesarar:
Albert Arnarson, M.Sc. í vinnusálfræ›i, rá›gjafi hjá Hagvangi
Baldur G. Jónsson, M.Sc. í vinnusálfræ›i og MBA, verkefnastjóri
rá›gjafasvi›s Hagvangs
Jón Kr. Gíslason, starfsmannastjóri Össurar fjallar um n‡tingu mats- og
flróunarstö›va hjá Össuri.
Mats- og flróunarstö›var au›velda fyrirtækjum a›:
• Rá›a hæfustu starfsmennina og flróa starfsferil fleirra
• Skipuleggja arftakakerfi
• fijálfa starfsmenn til stjórnunarstarfa
• Skipuleggja fljálfun út frá hagsmunum fyrirtækisins
Albert Arnarson
Baldur G. Jónsson
Jón Kr. Gíslason
og fljálfun sem n‡tist vel?
opið alla laugardaga 10-14
FISKRÉTTIR Á GRILLIÐ
KRYDDLEGIN LAX OG
LÚÐA STÓR HUMAR
RISAHÖRPUSKEL
RISARÆKJUR