Fréttablaðið - 13.09.2006, Síða 3

Fréttablaðið - 13.09.2006, Síða 3
Exista er á meðal öflugustu fyrirtækja landsins og nema heildareignir þess yfir 300 milljörðum króna. Félagið starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum trygginga og eignaleigu, m.a. undir merkjum VÍS og Lýsingar. Exista er jafnframt kjölfestufjárfestir í nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Símanum. Markmið Exista er að nýta fjárhagslegan styrk sinn til frekari uppbyggingar hér á landi og erlendis. Þann 15. september er fyrirhugað að skrá hluti félagsins í Kauphöll Íslands. Útboðs- og skráningarlýsing er gefin út á ensku undir heitinu Prospectus á heimasíðu útgefanda, www.exista.com. Einnig má nálgast hana á www.kbbanki.is. Innbundin eintök liggja frammi hjá Exista að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Kaupþingi banka, Borgartúni 19 í Reykjavík. Gjalddagi kaupanna er 14. september og eindagi 20. sept- ember 2006. Greiðsluseðlar verða ekki sendir áskrifendum með pósti en frá 14. september má nálgast greiðslu- upplýsingar á áskriftarvef auk þess sem greiðsluseðill birtist í netbanka kaupanda. Greiðslukvittun verður send til áskrifanda eftir að greiðsla hefur borist með réttum hætti. stendur til kl.17:00 í dag – skráning á www.kbbanki.is Reykjavík, 13. september 2006 Tekið er við áskriftum á www.kbbanki.is. Ráðgjöf KB banka veitir upplýsingar vegna hlutafjárútboðsins í síma 444 7000 og tölvupósti existautbod@kbbanki.is. Almennt hlutafjárútboð Almenningi eru boðnir 65.000.000 hlutir á genginu 21,5 krónur fyrir hvern hlut, samtals að andvirði 1.397,5 milljóna króna. Lágmarksáskrift er 5.500 hlutir að andvirði 118.250 króna og hámarksáskrift er 2.000.000 hlutir að andvirði 43 milljóna króna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.