Fréttablaðið - 13.09.2006, Side 12
12 13. september 2006 MIÐVIKUDAGUR
MÓTMÆLI Fjöldi manna safnaðist
í gær saman í Taipei, höfuðborg
Taívans, fjórða daginn í röð. Fólkið lét
hellidembu ekki á sig fá og mótmælti
forseta landsins, Chen Shui-Bian, en
fjölskylda hans er sökuð um víðtæka
spillingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kauptu aðeins Vista
samhæfða tölvu
SKJÁR: 15.4" GLARE TYPE TFT HÁSKERPUSKJÁR
ÖRGJÖRVI: PENTIUM MOBILE DOTHAN 735A @ 1.73AG 2MB L2
SKJÁKORT: NVIDIA® GEFORCE™ GO 7300 MEÐ 256MB TURBOCACHE™ MINNI
VINNSLUMINNI: 1GB DDRII 533
HARÐUR DISKUR: 100GB HDD
KORTALESARI: 4 - 1 (MS, MS PRO, SD, MMC)
GEISLADRIF: 8X MULTI SLOT DVD SKRIFARI DUAL DL
STÝRIKERFI: WINDOWS XP PROFESSIONAL
NETKORT: WLAN 802.11B/G - 10/100/1000 LAN
TENGIMÖGULEIKAR: 4X USB 2.0, 1X FIREWIRE, VGA TENGI, TV ÚT, PCMCIA
AUDIO DJ - SPILAÐU GEISLADISKA ÁN ÞESS AÐ RÆSA STÝRIKERFIÐ
RAFHLAÐA: 8 CELLS LI-ION
MEÐ 1.3 MEGA PIXLA VEFMYNDAVÉL & HLJÓÐNEMA
ATH. FARTÖLVUTASKA & OPTICAL MÚS FYLGJA FRÍTT MEÐ
WINDOWS XP PROFESSIONAL FYLGIR
ÖLLUM FARTÖLVUM FRÁ BOÐEIND
NAUÐSYNLEGT Í SKÓLANN
HUGBÚNAÐUR SEM FYLGIR FRÍTT
VÍRUSVÖRN: NORTON SYSTEM WORKS - RAPID RECOVERY
SKRIFARAHUGBÚNAÐUR: NERO 6
DVD HUGBÚNAÐUR: ASUS POWER DVD XP - ACROBAT READER
MYNDVINNSLUHUGBÚNAÐUR: POWER DIRECTOR PRO - MEDIA@SHOW
ASUS WINFLASH - ASUS LIVE UPDATE - ASUS POWER4 GEAR - ASUS PC PROBE
RITVINNSLUHUGBÚNAÐUR: OPEN OFFICE ER FRÍR Á BODEIND.IS
Boðeind ehf. - Mörkin 6 - 108 RVK - S: 588 2061 - sala@bodeind.is
Boðeind býður upp á viðurkennda verkstæðisþjónustu - thjonusta@bodeind.is
Er þér lofað að tölvan geti allt og svo getur tölvan ekki neitt?
Boðeind hefur í 19 ár verið sérverslun með tölvubúnað.
Fáðu faglega ráðgjöf og kauptu vandaða fartölvu á góðu verði !
ASUS A6VM
B
irt m
eð fyrirvara u
m
verðb
reytin
gar og ritvillu
r
BANDARÍKIN George W. Bush
Bandaríkjaforseti hvetur banda-
rísku þjóðina til að hætta ekki
stríðsrekstri í Írak í miðjum klíð-
um. Andstæðingar hans í Demó-
krataflokknum segja hann mis-
nota aðstöðu sína til þess að afla
Repúblikanaflokknum fylgis í
væntanlegum þingkosningum.
„Bandaríska þjóðin átti betra
skilið í gærkvöldi,“ sagði Harry
Reid, leiðtogi Demókrata í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings.
„Hvaða mistök svo sem gerð
hafa verið í Írak, þá væru stærstu
mistökin þau að halda að ef við
færum burt myndu hryðjuverka-
mennirnir láta okkur í friði,“ sagði
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti í sjónvarpsávarpi sínu til þjóð-
arinnar á mánudagskvöldið, dag-
inn sem þess var minnst að fimm
ár eru liðin frá árás hryðjuverka-
manna á New York og Washing-
ton.
„Bandaríkin báðu ekki um þetta
stríð og allir Bandaríkjamenn
vildu að því væri lokið. Það vildi
ég líka. En stríðinu er ekki lokið,“
sagði Bush. „Ef við sigrumst ekki
á þessum óvinum núna, þá látum
við það börnum okkar eftir að
standa frammi fyrir Mið-Austur-
löndum þar sem völdin eru í hönd-
um hryðjuverkaríkja og róttækra
einræðisherra sem vopnaðir yrðu
kjarnorkuvopnum.“
Hann varði hluta tíma síns í að
útmála illsku andstæðingsins, sem
hann sagði hafa það markmið að
koma á fót „róttæku íslömsku
heimsveldi þar sem konur eru
fangar á eigin heimili, menn eru
barðir fyrir að missa af bæna-
stundum og hryðjuverkamenn
hafa öruggt skjól til þess að skipu-
leggja og hefja árásir á Bandarík-
in og aðrar siðmenningarþjóðir“.
Hann vék einnig máli sínu að
Írak sérstaklega og sagðist oft
vera spurður að því hvers vegna
bandaríski herinn væri eiginlega í
Írak þrátt fyrir að Saddam Huss-
ein hefði ekki borið neina ábyrgð á
árásunum 11. september.
„Svarið er að af stjórn Sadd-
ams Hussein stafaði greinilega
ógn,“ sagði forsetinn. „Heimurinn
er orðinn öruggari núna vegna
þess að Saddam Hussein er ekki
lengur við völd.“
Í síðustu viku staðfesti leyni-
þjónustunefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings að aldrei hefði
nein tengsl verið að finna milli
Saddams Husseins og Al Kaída
samtakanna, en Bush fullyrti í
ræðu sinni að nú hefðu liðsmenn
Al Kaída „gengið til liðs við leif-
arnar af stjórn Saddams og aðra
vopnaða hópa til þess að efna til
innbyrðis átaka í landinu og reka
okkur á brott.“
gudsteinn@frettabladid.is
Brýnir þjóð
sína til verka
Demókratar saka George W. Bush um að nota sjón-
varpsávarpið 11. september í pólitískum tilgangi, nú
þegar tæpir tveir mánuðir eru í þingkosningar.
FORSETINN ÁVARPAR ÞJÓÐINA Bush Bandaríkjaforseti sagði stríðið gegn hryðju-
verkamönnum ekki vera „átök á milli menningarheima“ heldur „baráttu í þágu
siðmenningarinnar“. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FERÐAÞJÓNUSTA Vestnorden-ferða-
kaupstefnan stendur nú yfir í Laug-
ardalshöll. Kaupstefnan er árlegur
viðburður þar sem Ísland, Græn-
land, Færeyjar og Hjaltlandseyjar
kynna möguleika sína í ferðaþjón-
ustu fyrir um 550 kaupendum og
seljendum frá þrjátíu mismunandi
löndum. Hún er haldin til skiptis í
aðildarríkjunum fjórum og þykir
afar mikilvæg innlendum ferða-
þjónustuaðilum þar sem hana
sækja allir þeir aðilar sem hingað
selja ferðir. Meðal þess sem kom
fram við setningu kaupstefnunnar
var að fjöldi ferðamanna til þeirra
allra hefði aukist á milli ára. Þökk-
uðu þeir þann árangur meðal ann-
ars auknu samstarfi vestnorrænu
landanna.
Magnús Oddsson, ferðamála-
stjóri Íslands, sagði það fagnaðar-
efni að fjöldi þátttakenda í kaup-
stefnunni rísi með hverju árinu. Í
máli hans kom einnig fram að hann
teldi alls ekkert ólíklegt að ferða-
mannastraumur til Íslands tvöfald-
aðist á næstu tíu árum. Ísland gæti
því átt von á allt að einni milljón
gesta árið 2016. Magnús sagði enn
fremur að lykillinn að velgengni
íslenskrar ferðaþjónustu væri
dreifing gesta yfir árið svo að hægt
væri að þjónusta þá alla með við-
unandi hætti. Kaupstefnunni lýkur
á hádegi í dag. - þsj
Ferðakaupstefnan Vestnorden er haldin í Laugardalshöllinni:
Fólk frá 30 löndum sækir ferðakaupstefnu
VESTNORDEN 2006 Ferðakaupstefnan var sett í Listasafni Reykjavíkur í fyrrakvöld.