Fréttablaðið - 13.09.2006, Side 26
[ ]Seltjarnarnes Það er skemmtilegt að fara í bíltúr út á Gróttu um helgar, en þar er auðugt fuglalíf og falleg náttúra. Vitinn reis þar árið 1897 þegar fiskveiðar stóðu í blóma við Gróttu.
Bændaferðir hafa gefið út
sérferðabækling sinn fyrir vet-
urinn 2006 til 2007. Hafnar eru
bókanir á ferð til Egyptalands.
Í nýjum vetrarbæklingi Bænda-
ferða kennir ýmissa grasa sem
ferðaþyrstir ættu að kynna sér vel
en þetta er í fyrsta sinn sem sér-
stakur vetrarbæklingur er gefinn
út af þeim.
Vetrarferðirnar beinast sér-
staklega að skíðaferðum og jóla-
ferðum. Farið verður í jólaferðir
til Würzburg í Þýskalandi og glæsi-
lega aðventuferð til Mósel og Rín
en þessari ferð var bætt við vegna
mikillar eftirspurnar eftir aðventu-
ferðum. Einnig verður farið í jóla-
ferð til Vínarborgar en þar munu
tónlist og menning gegna lykilhlut-
verki undir leiðsögn Diddúar.
Farin verður áramótaskíðaferð til
Engelberg og skíðaferð til Hint-
erglemm. Einnig verður farið á
gönguskíði í Týról í Austurríki.
Bændaferðir hafa einnig hafið
sölu á ferð til Egyptalands þann
18. mars 2007, en vegna gríðarlegs
áhuga á þessum áfangastað er upp-
selt í októberferðina. Að sama
skapi hafa Kínaferðirnar verið
vinsælar og er nú hafin bókun í
ferð þann 19. apríl.
Hvað haust- og vetrarferðum
líður gildir hið almenna lögmál
um að fyrstur kemur fyrstur fær
og er því ráð að bóka sem fyrst.
- jóa
Vetrarbæklingur
Bændaferða
Vínarborg verður einn af áfangastöðum
Bændaferða um næstu jól.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Ferðasögu-
samkeppni
SÍÐASTI SKILADAGUR Í FERÐA-
SÖGUSAMKEPPNI ÚTIVERU ER 1.
OKTÓBER.
Tímaritið Útivera stendur fyrir
ferðasögusamkeppni þessa dag-
ana. Allt frá því blaðið kom fyrst
út árið 2003 hefur ríkt sú hefð að
birta skemmtilegar, áhugaverðar
og fróðlegar ferðasögur fólks. Nú
geta lesendur sent inn ferðasögur
og eru vegleg verðlaun í boði fyrir
þrjár bestu sögurnar. Þá verða sög-
urnar einnig birtar í tímaritinu að
höfðu samráði við höfunda þeirra.
Verðlaunin eru meðal annars
Íslandsatlas Eddu, útivistarúr, GPS-
tæki og margt fleira. Í dómnefnd
sitja Kristín Helga Gunnarsdóttir
rithöfundur, Andri Snær Magnason
rithöfundur og Jón Gauti Jónsson
ritstjóri Útiveru.
Síðasti skiladagur í ferðasögusam-
keppnina er 1. október en nánari
upplýsingar um uppbyggingu
keppninnar er að finna á www.
utivera.is.
Sögur af ferðum fólks hafa heill-
andi yfirbragð.
Sólin skín þrjú hundruð daga á
ári á skíðasvæðunum í Color-
ado í Bandaríkjunum. Þetta
þykja kannski ekki tíðindi,
nema nú gefst Íslendingum
kostur á að njóta þessara sól-
ardaga í faðmi skíðabrekkna
og stólalyfta.
Úrval-Útsýn býður ferðir á skíða-
svæðin í Aspen og Vail í Bandaríkj-
unum. „Við fórum í fyrsta skipti
með íslenska skíðamenn á þetta
svæði í fyrra og viðtökurnar voru
mjög góðar,“ segir Áslaug Gunn-
arsdóttir hjá Úrvali-Útsýn. „Í ár
fljúgum við í beinu leiguflugi til
Denver.“
Bæði svæðin eru í Colorado ríki
í Bandaríkjunum. Aspen og Vail
eru talin vera glæsilegustu skíða-
svæðin þar í landi, fyrir utan góðar
brautir og himneskan snjó, eru
bæirnir ríkir af veitingastöðum,
verslunum heilsulindum, fjörugu
næturlífi og annari afþreyingu.
„Snjórinn þarna er líka allt öðru-
vísi en sá í Evrópu. Þar er snjórinn
þyngri og blautari en mun meira er
um púðursnjó í Bandaríkjunum,“
segir Áslaug. „Einnig er nokkur
munur á því að skíða í Bandaríkj-
unum en í Evrópu. Skíðaiðkendur
hafa meira pláss og frelsi á banda-
rísku svæðunum og leyfist að skíða
utan brauta ef vilja. Oftast er skíða-
maðurinn einn í heiminum. Einnig
er gott skipulag kringum lyfturnar
og allar raðir ganga mun hraðar
fyrir sig.“
Vail er eitt stærsta samfellda
skíðasvæðið í Bandaríkjunum og
hefur verið útnefnt eitt besta skíða-
svæðið í Norður-Ameríku. Í fjallinu
eru þrjú mismunandi skíðasvæði,
Front Side með 127 skíðaleiðum ,
Back Bowl og Blue Sky Basin, 260
hektarar af skíðasvæði umlukið
sígrænum trjám. Svæðin eru sam-
tengd og því auðvelt að skíða frá
einu svæði yfir í annað.
Aspen er einn frægasti skíða-
staður heims og þangað sækir
mikið af ríka og fræga fólkinu.
Aspen skíðasvæðið nær yfir fjögur
fjallasvæði; Aspen Highlands sem
er svæði fyrir betri skíðamenn
sem vilja krefjandi brekkur, But-
termilk Mountain sem hentar fyrir
alla skíðamenn og hefur góða
aðstöðu fyrir snjóbrettaiðkendur
og Snowmass Mountain sem er
fjölbreyttasta skíðasvæðið á Asp-
ensvæðinu og hentar öllum skíða-
iðkendum.
Úrval-Útsýn býður upp á níu
daga pakkaferð með íslenskri far-
arstjórn til Aspen og Vail í febrúar.
„Við erum byrjuð að bóka og erum
með 200 sæti til sölu,“ segir Áslaug.
„Salan er að taka við sér þannig
ferðin verður væntanlega fullbók-
uð fljótt.“ johannas@frettabladid.is
Skíðaparadís utan Evrópu
Skíðamenn hafa mun frjálsari fætur á
bandarísku skíðasvæðunum en þeim
evrópsku. Í raun mega þeir skíða hvar
sem er innan svæðisins, utan brautar
sem innan. Þetta gerir að verkum að
brautirnar eru ekki jafn troðnar og víða
annars staðar.
Bandarísku skíðasvæðin eru paradís fyrir skíðaiðkendur.
Upplýsingar um Aspen og Vail
www.aspensnowmass.com
http://vail.snow.com/
www.uu.is
til Würzburg
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
Þýskaland er land jólamarkaðanna og bjóðum við nú jólaferð til Würzburg
sem er einstaklega heillandi borg og skartar sínu fegursta í desember.
Hrein upplifun er að fara á jólamarkaðina sem geyma ótal jólagjafahug-
myndir; bragða á jóladrykknum „Glühwein“ og jólastemmingin eykst á
hverju horni. Úrval veitingastaða er gott, hótelið þægilegt og staðsett
miðsvæðis. Spennandi skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber.
í Þýskalandi
30. nóvember - 3. desember 2006
7. - 10. desember 2006
14. - 17. desember 2006
Verð kr. 64.900 á mann í tvíbýli
Innfalið: Flug, skattar, gisting í tveggja manna herbergi á 3* hóteli
með morgunverði í 3 nætur, ferðir milli flugvallar og hótels,
skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber og íslensk fararstjórn.
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Sími: 50 50 600 • www.hertz.is
www.hertz.is
Bókaðu
bílinn heima
- og fáðu 500
Vildarpunkta
Vika í
USA
21.200*
San Fransisco
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.*
17.800*
Florida
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
*
23.300*
Boston
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.*
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
15
83
03
/2
00
6
���������������
���������
������� �����
�������������� �����
����������������� ����
���������� ������� ��
����������
��������������
�������������