Fréttablaðið - 13.09.2006, Side 59
MIÐVIKUDAGUR 13. september 2006 23
Brú II Venture Capital Fund hefur
keypt hlut í VoIP-netsímafyrirtæk-
inu SunRocket.
„SunRocket er ört vaxandi fyrir-
tæki á sviði VoIP símaþjónustu
fyrir almenning. Fyrirtækið var
stofnað árið 2004 og er í dag eitt
stærsta VoIP símafyrirtækið í
heiminum. Heildarfjármögnun í
þessari lotu nam 33 milljónum doll-
ara og var gerð í samstarfi við
BlueRun Ventures, MayField Fund,
Varma Mutual Pension Insurance
Company, The Grosvenor Fund og
fleiri,“ segir í tilkynningu Brúar II.
Brú II fjárfestingarsjóðurinn
einbeitir sér að óskráðum og ört
vaxandi fyrirtækjum, en fjárfestar
eru Straumur-Burðarás Fjárfest-
ingarbanki hf., Gildi lífeyrissjóður,
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins, Lífeyrissjóður verslunarmanna,
Lífiðn, Lífeyrissjóður Austurlands,
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Sax-
hóll hf. og Tryggingamiðstöðin.
Frekari upplýsingar er að finna á
vefnum www.bru.is. - óká
Brú II fjárfestir
í netsímatækni
Unnið er að sameiningu Kers hf.
og Kjalars ehf. hf. í eitt fjárfest-
ingarfélag. Í tilkynningu kemur
fram að við breytinguna verði
Egla hf. dótturfélag í 100 pró-
senta eigu hins sameinaða félags.
„Markmiðið er að efla og hnit-
miða starfsemina með áherslu á
frekari uppbyggingu utan Íslands
en þegar hafa verið stofnuð dótt-
urfyrirtæki í Hollandi og Eng-
landi. Gert er ráð fyrir að hið
sameinaða félag taki til starfa í
næsta mánuði undir nafni Kjal-
ars. Eignir hins sameinaða félags
eru 90 milljarðar króna og eru
þær helstu eignarhlutur í Kaup-
þingi banka hf., í Alfesca hf., í
Samskipum hf., í fasteignafélag-
inu Festingu ehf. og ýmsum
öðrum félögum,“ segir þar jafn-
framt.
Hjörleifur Jakobsson hefur
verið ráðinn forstjóri Kers hf. og
verður forstjóri hins sameinaða
félags. Hann var áður forstjóri
Olíufélagsins ehf. en lét þar af
störfum 1. mars síðastliðinn.
Hjörleifur lauk verkfræði-
prófi frá Háskóla Íslands árið
1981 og meistaraprófi í vélaverk-
fræði frá Oklahoma State Univer-
sity 1982.
Guðmundur Hjaltason, for-
stjóri Kers hf., hefur ákveðið að
láta af störfum og hverfa til nýrra
verkefna. Hann hefur verið for-
stjóri félagsins frá árinu 2003 og
veitti því forystu á miklum upp-
gangstímum. „Guðmundi eru
þökkuð vel unnin störf fyrir
félagið og óskað velfarnaðar á
nýjum vettvangi,“ segir í tilkynn-
ingu um sameininguna. - óká
Kjalar ehf. og Ker hf. sameinuð
HJÖRLEIFUR JAKOBSSON Hjörleifur er
nýráðinn forstjóri sameinaðs félags Kers
og Kjalar sem kemur til með að starfa
undir nafni Kjalar.
Hrein eign lífeyrissjóðanna nam
um 1.350 milljörðum króna í lok
júlí síðastliðins og lækkaði um
rúma 8,4 milljarða milli mánaða,
samkvæmt tölum frá Seðlabank-
anum.
Eign sjóðanna í erlendum verð-
bréfum dróst saman um þrjú pró-
sent milli mánaða og má rekja þá
lækkun til veikingar krónunnar á
tímabilinu. Eignir lífeyrissjóð-
anna í innlendum hlutabréfum
lækkuðu um 1,5 prósent í júlí.
Hrein eign lífeyrissjóðanna
hefur aukist um ellefu prósent frá
áramótum og er það tæpum tveim-
ur prósentum betri ávöxtun en á
sama tímabili í fyrra. - jsk
Hrein eign lífeyr-
issjóða rýrnar
LÍFEYRISSJÓÐURINN GILDI Hrein eign
lífeyrissjóðanna nam um 1.350 milljörðum
króna í lok júlí.
Og Vodafone hefur tekið í notkun
þjónustu sem gerir GSM-notend-
um kleift að hafa eitt símanúmer í
tveimur símtækjum.
Þjónustan nefnist Aukakort og
hentar þeim sem eru með Black-
Berry-tæki fyrir tölvupóstsam-
skipti og GSM-þjónustu í vinnu en
vilja hafa léttari og smærri GSM-
síma utan vinnutíma.
Í tilkynningu frá Og Vodafone
er haft eftir Gísla Þorsteinssyni,
upplýsingafulltrúa fyrirtækisins,
að um mikið hagræði sé að ræða
fyrir þá GSM-notendur sem nota
fleiri en eitt GSM-símtæki því nú
geti þeir haft eitt símanúmer í
stað tveggja. - jab
Eitt númer í
tveimur símum
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.097 -0,07% Fjöldi viðskipta: 325
Velta: 3.913 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,90 +0,15% ... Alfesca 4,80 +0,63% ... Atlantic
Petroleum 572,00 +0,00% ... Atorka 6,30 -0,79% ... Avion 32,80 +0,00% ... Bakkavör 55,20
+1,66% ... Dagsbrún 4,87 -0,82% ... FL Group 20,20 -1,46% ... Glitnir 20,00 +1,01% ... KB
banki 830,00 -0,36% ... Landsbankinn 25,60 -1,16% ... Marel 79,00 +1,28% ... Mosaic Fas-
hions 18,00 +0,56% ... Straumur-Burðarás 16,80 +0,00% ... Össur 121,00 +0,83%
MESTA HÆKKUN
Vinnslustöðin +7,14%
Bakkavör +1,66%
Marel +1,28%
MESTA LÆKKUN
FL Group -1,46%
Landsbankinn -1,16%
Dagsbrún -0,82%
Umsjón: nánar á visir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
3
3
7
9
Krókaleiðir í Kína
SKJÁREINN næst í gegnum Skjáinn og Digital Ísland
Manndómsvígsla íslensks unglings meðal munka og munaðarleysingja í Kína.
Í kvöld kl. 20.10 á SKJÁEINUM.