Fréttablaðið - 13.09.2006, Page 68

Fréttablaðið - 13.09.2006, Page 68
 13. september 2006 MIÐVIKUDAGUR Poppstjarnan Jay Kaye var hand- tekinn af lögreglu í London aðfara- nótt þriðjudags eftir að hann réðst að ljósmyndara fyrir utan nætur- klúbb þar í borg. Lögregla færði Jay, sem er söngvari hljómsveit- arinnar Jamiroquai, á lögreglu- stöð þar sem honum var veitt við- vörun. Söngvarinn var æfur við ljósmyndara sem hann sagði hafa setið fyrir sér fyrir utan klúbbinn. Ljósmyndararnir halda því hins vegar fram að þeir hafi verið að bíða eftir Lindsay Lohan sem skemmti sér á sama klúbbi. Vitni á staðnum segja söngvarann hafa slegið til eins ljósmyndara og kýlt annan þrisvar í höfuðið. Handtekinn í London JAY KAYE Kýldi ljósmyndara þrisvar. Spænsk stjórnvöld hafa nú sett upp ákveðnar reglur fyrir tísku- vikuna í Madríd sem mun síðar í þessum mánuði. Þau hafa bannað of mjóum fyrirsætum að taka þátt í tískuvikunni og eru búin að setja upp ákveðna þyngdarstaðla fyrir fyrirsæturnar sem þær þurfa að uppfylla ef stúlkurnar vilja sýna á tískuvikunni. Öllum módelskrif- stofum á Spáni hafa nú verið send bréf sem tilkynnir þeim að bannað sé að bóka fyrirsætur sem upp- fylla ekki þessi þyngdarskilyrði. 30% af stúlkunum sem sýndu í fyrra uppfylla ekki þessi þyngdar- skilyrði sem er í formi BMI töfl- unnar eða „Body Mass Index“ sem er samþykktur staðall frá Heil- brigðis eftirlitsstofnuninni. Mikl- ar gagnrýnisraddir heyrðust á síð- ustu tískuviku í Madríd þar sem fyrirsæturnar þóttu svo skugga- lega mjóar að fatnaðurinn hékk utan á þeim. Í Suður Evrópu er einmitt hæsta tíðni í heiminum á átrösk- unarsjúkdómum á borð við lystar- stol og lotugræðgi. Þetta er því gott framtak og þróun á Spáni sem vonandi smitast og breiðist út í tískuheiminum. Mjónur bannaðar á Spáni BANNAÐ AÐ VERA OF MJÓR Þessi fyrirsæta fær að öllum líkindum ekki að taka þátt í tískuvikunni á Spáni þar sem aðstandendur hennar vilja að ímyndin vikunnar verði frískleg og hraustleg. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Veigar Margeirsson býr í Los Angeles þar sem hann semur tónlist fyrir kvik- myndir. Hann er væntan- legur til Íslands til að semja tónlist fyrir kvikmyndina Kalda slóð. Veigar Margeirsson hefur komið sér vel fyrir í Los Angeles en er væntanlegur til landsins á næstu dögum þar sem hann hefur verið ráðinn til að semja tónlistina við íslensku sakamálamyndina Köld slóð. Veigar var kominn í upptökuver- ið sem er bak við húsið hans í Engla- borginni þegar Fréttablaðið náði tali af honum og fyrsta spurningin snerist að sjálfsögðu um annan Íslending sem hefur verið að gera það gott þar vestra, Magna Ásgeirs- son. „Jú, fólk stoppar mann og spyr hvort ég þekki eitthvað til hans,“ svarar Veigar og hlær. „Ég hef fylgst vel með honum og sit límdur fyrir framan skjáinn á morgun þegar úrslitin verða kunngjörð,“ bætir hann við. Veigar var að leggja lokahönd á tónlist fyrir sjónvarps- myndina Great American Christ- mas sem sýnd verður á NBC um jólin. „Þetta er svona raunveru- leika-kvikmynd þar sem fylgst verður með fjölskyldum að halda jólin vítt og breitt um Bandaríkin,“ segir hann. Veigar hefur getið sér gott orð fyrir gerð tónlistar við svokallaða „trailera“ sem notaðir eru við að kynna væntanlegar kvikmyndir í sjónvarpi og í kvikmyndahúsum. Meðal mynda sem hafa notið góðs af tónlist Veigars má nefna The Da Vinci Code, Batman Begins og nú síðast Lady in the Water. „Þetta er mjög knappur tími sem ég hef til að vinna þetta, bara eins og í slorinu heima á sumrin í gamla daga,“ útskýrir Veigar. „Þú hefur afskap- lega stuttan tíma til að gripa áhorf- endann, aðeins nokkrar sekúndur,“ segir hann en bætir við að misjafn- lega mikið sé lagt uppúr þessu kynningarmyndbrotum sem geti verið dýrkeypt mistök. „Góðar myndir eru stundum með lélega „trailera“ og öfugt,“ segir hann. Veigar segist hafa lesið svokall- aðan „synopsis“ fyrir Kalda slóð sem er úrdráttur á því hvað myndin fjalli um. „Ég sé úr henni á næstu dögum en hún virðist vera mjög kraftmikil, sjónrænt séð,“ segir hann. „Annars þarf ég bara rétt að lesa byrjunina og þá er ég farinn á flug,“ segir Veigar. freyrgigja@frettabladid.is Semur kynningarstef fyrir stórmyndir í Hollywood VEIGAR MARGEIRSSON Hefur starfað í Los Angeles við gerð tónlistar fyrir „trailera“. KÖLD SLÓÐ Myndin verður frumsýnd í desember og mun Veigar semja tónlist- ina við hana. tónleikaröð á NASA www.nasa.is Miðasala fer fram í verslunum Og Vodafone í Rvk, á www.nasa.is og virka daga kl. 13 - 16 á Nasa. Tónleikarnir hefjast kl. 21, húsið opnar kl 20. SÓL AÐ MORGNI TÓNLEIKAR 14. SEP. Bubbi tekur fyrir plötuna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.