Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2006, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 16.12.2006, Qupperneq 18
Straumur-Burðarás, Samvinnutryggingar og aðrir fjárfestar kaupa 22,6 prósenta hlut í Straumi af FL Group fyr- ir 42 milljarða króna. FL fær peninga, hlutabréf í Finnair og hefur bol- magn til að ráðast í 200 milljarða verkefni. FL Group hefur selt 22,6 prósent eignarhluta síns í Straumi-Burðar- ási Fjárfestingarbanka. Kaupend- ur eru bankinn sjálfur og hópur fjárfesta, en stefnt er að því að ganga frá viðskiptunum þann 22. desember næst komandi. Seljandinn fær fyrir sinn snúð 42,1 milljarð króna, þar af 28,3 milljarða króna í peningum, 10,2 milljarða með hlutabréfum í Finn- air og 3,6 milljarða í skráðum íslenskum fyrirtækjum. FL Group á nú orðið 23 prósenta hlut í Finn- air. Eftir viðskiptin heldur FL utan um fjögurra prósenta hlut í Straumi. Meðal nýrra fjárfesta, sem koma að Straumi, eru Löngusker, félag í eigu Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, og tveir bandarískir fagfjárfestar. Straumur kaupir tæplega tíu prósenta hlut af eigin bréfum. Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðar- áss, býst ekki við að bankinn eigi bréfin til langs tíma; bréfunum verði annaðhvort miðlað út til áhrifafjárfesta eða stærri hóps fjárfesta. Með viðskiptunum lýkur stuttu samstarfi Björgólfs Thors Björ- gólfssonar, stjórnarformanns Straums-Burðaráss, og Hannesar Smárasonar, forstjóra FL og ann- ars aðaleigenda FL Group. FL Group kom óvænt inn í hluthafa- hóp Straums í júlí þegar félagið festi kaup á 24,4 prósentum hluta- fjár af þeim Magnúsi Kristinssyni og Kristni Björnssyni sem höfðu lent í minnihluta innan stjórnar Straums. Þótt FL Group hafi selt bréf á genginu átján sem voru keypt á 18,9, segir Hannes Smárason, for- stjóri FL Group, að viðskiptin komi ekki illa út fjárhagslega þar sem bréfin hafi verið keypt á sínum tíma í skiptum fyrir önnur bréf (FL og Kaupþing) sem einnig voru á yfirverði. Ekki megi horfa fram hjá því að eigið fé félagsins hafi aukist um 35 milljarða í sumar og alltaf kosti að ná í nýtt eigið fé. Eiginfjárstaða FL er sterk þessa dagana eftir þessa sölu og fréttir í vikunni af nýjum fjár- mögnunarsamningi við Barclay Capital. „Fjárfestingargeta félags- ins er sjálfsagt yfir 300 milljarðar. Þar af eru kannski eitt hundrað milljarðar króna í verkefnum þannig að við höfum gríðarlegan slagkraft.“ [Hlutabréf] Peningaskápurinn... Björgólfur Thor Björgólfsson telur að kaup Straums og fleiri fjárfesta á bréfum FL Group í Straumi breyti ekki miklu að því sem snýr að starfsemi Straums. „Félagið hefur verið að vinna að öflugu og góðu uppbyggingar- starfi og það hefur haldið áfram. Við viljum markvisst auka við erlenda starfsemi okkar og það er lykilverkefni fyrir okkur árin 2007 og 2008.“ Ef hentug tæki- færi komi til að taka yfir önnur félög þá muni stjórnendur skoða þau gaumgæfilega. Viðskiptin slá hins vegar á þær sögusagnir að uppi hafi verið deil- ur og læti innan stjórnar félags- ins sem eigi sér engar stoðir í raunveruleikanum, að sögn Björ- gólfs. Hann fagnar aðkomu nýrra hluthafa að félaginu sem hafi mikla þýðingu. Meðal nýrra fjár- festa eru Samvinnutryggingar en félagið hefur ekki áður komið að Straumi áður. Einnig eru það góð teikn að fá inn í Straum tvo banda- ríska fagfjárfesta sem eignast tveggja prósenta hlut. „Vonandi getum við fengið fleiri útlendinga að með tímanum. Það er mjög góður gæðastimpill að hafa fjöl- breyttan hóp útlendinga, einkum fyrir banka sem ætlar að sækja út alþjóðlega.“ Straumur heldur sinni stefnu Björgólfur Thor fagnar komu útlendinga að Straumi. Stork fyrirtækjasamstæðan í Hol- landi horfir til nokkurra fjárfest- ingarkosta sem gætu leitt til upp- skiptingar á samstæðunni ef til þess þyrfti að koma til að fjár- magna kaupin, hafa erlendir fjöl- miðlar eftir Jan Kalff, stjórnar- formanni Stork. Kalff segir koma til greina að selja eina af þremur einingum Stork ef til þess kæmi að fyrir- tækið réðist í kaup sem væru of stór til að gleypa í einum bita, sagði hann við Financial Times. Bandarísku fjárfestingarsjóð- irnir Centaurus Capital og Paul- son & Co hafa þrýst á um uppskipti samstæðunnar til að losa dulið virði og innleysa hagnað. Í janúar verður haldinn hlut- hafafundur að beiðni sjóðanna, sem eiga tæplega 32 prósenta hlut í Stork, þar sem meðal annars verður borið fram vantraust á stjórn Stork og takmarkaðar vald- heimildir hennar. Kalff segir hins vegar fyrirtækið verða óstarf- hæft ef leita þurfi heimildar hlut- hafa við allar meiri háttar ákvarð- anir. Marel hefur hug á að kaupa Stork Food Systems en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa ekki farið fram formlegar við- ræður þar að lútandi. Marel bíður þar til niðurstaða fæst í deilu Stork og bandarísku fjárfesting- arsjóðanna. Stork gefur sölu á hluta undir fótinn Yfirlýsing frá 29.06. 2006 Fjárfestingarbankinn Askar Capital hefur starfsemi um næstu áramót. Bankinn verður með höfuðstöðvar í Reykjavík, en skrifstofur í Lúxemborg, Lundúnum, Búkarest og Hong Kong að auki. Bankinn starfar á vettvangi fyrirtækja og stórviðskipta, en sinnir ekki einstaklingsviðskiptum, þ.e. svokallaðri heildsölu- bankastarfsemi. Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri bankans, kynnti starfsemi hans, stjórn og lykilstjórnendur á blaðamannafundi á Grand Hóteli Reykjavík í hádeg- inu í gær. Milestone er kjölfestufjárfestir í bankan- um, sem verður við stofnun með 11 milljarða króna eigið fé og 40 til 45 starfsmenn. Auk þess að hafa Mil- estone sem bakhjarl rennur inn í bankann starfsemi Ráðgjafar og efnahagsspár ehf. sem stofnað var árið 1993, Aquila Venture Partners og fjármögnunarstarf- semi Sjóvar. Þannig segir Tryggvi að bankinn hafi strax í byrjun nokkurn grunn viðskiptavina. Karl Wernersson, forstjóri og aðaleigandi Mile- stone, upplýsti að virkur undirbúningur að stofnun bankans hafi ekki staðið í nema þrjá mánuði. „En segja má að við Milestonemenn höfum verið að skoða þetta í allt að 18 mánuði. Lokaspretturinn hefur verið snarpur og við mjög stolt af því að hafa fengið mjög öfluga liðsmenn til bankans, bæði hluthafa og í hóp lykilstjórnenda,“ segir hann. Stjórnendur bankans vildu ekki hafa mörg orð um hvaða markmið þeir hefðu sett sér í rekstrinum, en segjast þó ætla að vera við lok fyrsta starfsárs stefna á að vera með eignir fyrir 200 milljarða króna í stýringu. Með skrifstofur í fimm löndum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.