Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sunnudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
42%
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
65%
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
18. nóvember 2007 — 314. tölublað — 7. árgangur
FÓLK „Ég tók bílprófið 14. maí árið 1941 og hafði þá
hlotið fjórtán tíma kennslu. Þótt ég hafi endurnýjað
skírteinið í 66 ár hef ég ekki keyrt nema tvisvar
sinnum um ævina og þá í Landeyjar,“ segir Björgvin
Ólafsson, eldri borgari á Hvolsvelli, sem lengi
starfaði við kaupamennsku, smíðar og köfun.
Björgvin varð níræður á árinu og ákvað að nú væri
kominn tími til að láta það eftir sér að kaupa bíl í
fyrsta sinn.
„Þetta er lúxusbíll, enda hef ég alltaf viljað það
vandaðasta, dýrasta og besta sem völ er á,“ segir
Björgvin og bætir við að bíllinn sé af tegundinni
Hyundai Sonata. „Hann er silfurgrár að utan og
ljósgrár að innan með þaklúgu, og kostaði tvær
milljónir og og sexhundruð níutíu og fimm þúsund,“
segir bíleigandinn stoltur.
Þótt Björgvin hafi aðeins ekið tvisvar sinnum áður
um ævina segist hann hvergi banginn.
„Nei alls ekki. Vinur minn segir mér bara til með
þetta,“ svarar hann sannfærandi.
Þá stefnir Björgvin á að fara sína 49. utanlandsferð
á næstunni til Þýskalands og er þegar búinn að panta
þá fimmtugustu.
„Þá ætla ég í lúxussiglingu um Miðjarðarhafið og
koma við á níu stöðum. Ég hef mikið verið á flakki
um heiminn og hef einmitt að undanförnu verið að
setja inn myndir af ferðum mínum á diska svo ég geti
haldið betur utan um þetta,“ segir Björgvin. - kdk
Björgvin Ólafsson á Hvolsvelli tók bílpróf fyrir 66 árum en eignast nú fyrst bíl:
Vinur minn segir mér bara til
Vörumerkjatattú, bónusþreyta
og íslenska sauðkindin
GÍSLI EINARSSON FÆR MÖRG TILBOÐ Á DAG UM AÐ KAUPA STINNING-
ARLYF EN MAGGA STÍNA BLÖNDAL ER MEÐ HREINSIEFNI Á HEILANUM.
Ástarbréf varð efniviður
Á nýrri plötu Birgittu
Haukdal er að finna
söng til móður
hennar og lag upp úr
ástarbréfi.
FÓLK 42
Alíslenskir Hjálmar
Félagarnir úr Flís
hafa gengið til liðs
við hljómsveitina
Hjálma sem er því
orðin alíslensk.
FÓLK 32
Afmælisfundur í Grafarvogi
Al-anon samtökin voru stofnuð
á Íslandi fyrir 35 árum. Al-anon
er félagsskapur karla, kvenna og
unglinga sem hafa orðið fyrir
áhrifum af drykkju ættingja eða
vinar.
TÍMAMÓT 12
FÓLK „Minn tími mun koma,“
lokaorð Jóhönnu Sigurðardóttur á
flokksþingi
Alþýðuflokksins
árið 1994 og
„Brynja, ég elska
þig,“ víðfræg
ástarjátning
Bubba Morthens
á tónleikum á
Púlsinum árið
1990 eru fleyg-
ustu orð Íslend-
inga ef marka má
álitsgjafa
Fréttablaðsins.
Davíð Oddsson
er sá stjórnmála-
maður sem þykir
hvað hnyttnastur
þegar kemur að
eftirminnilegum
ummælum og í
textum Megasar
eru fleiri
skemmtileg
spakmæli en hjá
öðrum tónlistar-
mönnum. Halldór
Laxness er sá rithöfundur sem
þykir hafa sett á blað eftirminni-
legustu ummælin í íslenskum
bókmenntum. - jma / sjá síðu 18
Fleygustu ummæli Íslendinga:
Brynja, ég elska
þig og minn
tími mun koma
MENNING „J.K. Rowling veit
hvernig segja skal góða sögu
(mikilvægt), gera það án þess að
setja sig á háan hest (mikilvæg-
ara) og láta háfleygt þvaður í
miklum mæli
eiga sig (nauð-
synlegt).“
Þetta segir
spennusagna-
höfundurinn
Stephen King um
Harry Potter-
bækurnar í grein
sem birtist í
Menningu,
fylgiriti Frétta-
blaðsins í dag.
King telur að
hinn stóri
leyndardómur
Potter-bókanna
sé að þær uxu
eftir því sem
þeim fjölgaði og
segir hann
Rowling vera
ótrúlega hæfi-
leikaríkan
skáldsagnahöf-
und. King fjallar
líka um gagnrýni á bækurnar og
segir að vegna ofurleyndarinnar
í kringum þær hafi sú gagnrýni
oft verið hræsnismjálm.
„Þegar maður hefur aðeins fjóra
daga til að lesa 750 blaðsíðna
bók, skrifa svo 1.100 orða ritdóm
um hana, hversu mikinn tíma
hefur maður þá til að njóta
bókarinnar?“
sjá Menningu í miðju blaðsins
Stephen King um Harry Potter:
Skrif gagnrýn-
enda nær ein-
tómt húmbúkk
25/26
VÍÐA BJART VEÐUR - Í fyrstu
verður hvöss norðvestanátt við
austur- og suðausturströndina en
lægir síðar í dag. Vaxandi suðvestan-
átt norðvestan til eftir hádegi. Víð-
ast nokkuð bjart veður og úrkomu-
laust. Veður fer hlýnandi.
VEÐUR 4
ORKUMÁL Rætt er um að Reykjavík
Energy Invest verði fjárfestingar-
armur Orkuveitu Reykjavíkur og
kaupi hlut í Geysi Green Energy.
Á móti myndi Geysir Green kaupa
eignir REI. Með þeim hætti gæti
Geysir Green unnið áfram að þeim
útrásarverkefnum sem voru á
teikniborðinu þegar sameining
þess og REI var áformuð.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru hugmyndir í þessa
veru upprunnar í ranni meirihluta
borgarstjórnar og hafa þegar
verið unnar nokkuð ítarlega. Er
þeim ætlað að leysa þann hnút sem
málefni Orkuveitunnar, REI og
Geysis Green eru í, ásamt því að
tryggja áframhaldandi þátttöku
Orkuveitunnar í útrás á sviði
orkumála.
Ákvörðun borgarráðs um að
hverfa frá sameiningu fyrir-
tækjanna og staðfesting eigenda-
fundar Orkuveitunnar á föstudag,
er fyrsti liður í áætlun
meirihlutans.
Næsta skref er að Orkuveitan
nái sátt við eigendur Geysis Green
um að ekkert verði af samrunanum
við REI en Hannes Smárason,
stjórnarformaður Geysis Green,
hefur sagt að samningar skuli
standa og útilokar ekki skaðabóta-
mál. Bryndísi Hlöðversdóttur,
stjórnarformanni Orkuveitunnar,
hefur verið falið að leiða sáttaferlið
fyrir hönd OR.
Svandís Svavarsdóttir hefur
ákveðið að falla frá málssókn sinni
á hendur Orkuveitunni um lögmæti
eigendafundar hennar, að því gefnu
að stjórn Orkuveitunnar fallist á
sjónarmið hennar um að ólöglega
hafi verið boðað til fundarins. - shá
REI verði fjárfesting-
arfélag og selji eignir
Reykjavík Energy Invest verður fjárfestingararmur Orkuveitunnar og eigur fyrir-
tækisins verða seldar Geysi Green Energy, gangi hugmyndir meirihluta borgar-
stjórnar eftir. Svandís Svavarsdóttir vill falla frá málssókn sinni á hendur OR.
VIN Í VESTURBÆNUM 35 ára afmæli verslunarinnar Úlfarsfells við Hagamel var fagnað af viðskiptavinum og velunnurum í gær.
Gestir lögðu við hlustir þegar Þórarinn Eldjárn las úr Tíu litlum kenjakrökkum, nýrri bók sinni og Sigrúnar Eldjárn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
BUBBI
MORTHENS
STEPHEN KING
HARRY POTTER
Í vænlegri stöðu
Birgir Leifur á góða
möguleika á að komast á
Evrópumótaröðina. Loka-
hringurinn verður
leikinn í dag.
ÍÞRÓTTIR 34
VEÐRIÐ Í DAG