Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 113
SUNNUDAGUR 18. nóvember 2007 37
WEST HAM
FULHAM
W W W. I C E L A N DA I R . I S
11.–13.
JANÚAR
Verð á mann í tvíbýli frá
49.300KR.
Icelandair er samstarfsaðili West Ham og býður ferðir
á alla heimaleiki liðsins í vetur. Fjölmargir leikir framundan,
s.s. á móti Man Utd, Liverpool og Birmingham.
+ Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
HANDBOLTI Grótta vann í gær auð-
veldan sigur, 21-36, á HK í N1-
deild kvenna. Liðin mættust í átta
liða úrslitum bikarkeppninnar
þrem dögum fyrr og þá þurfti að
framlengja til að knýja fram
úrslit. Því var búist við spenn-
andi leik í Digranesi en raunin
varð önnur.
Jafnræði var með liðunum
fyrsta stundarfjórðunginn. Bæði
lið áttu auðvelt með að skora og
leikinn var hraður og skemmti-
legur handbolti. Þegar staðan var
8-8 lokaði Grótta öllum leiðum að
marki sínu og HK náði ekki að
skora í níu mínútur. Grótta skor-
aði fimm mörk í röð og náði alls
sex marka forystu fyrir leikhlé,
10-16, og lagði grunninn að
sigrinum.
Seinni hálfleikur var aldrei
spennandi. Grótta náði fljótt 12
marka forystu, 13-25 og Grótta
sýndi HK enga miskunn. Liðið
keyrði hraðaupphlaupin grimmt
fram á síðustu mínútu en liðið
skoraði úr alls 17 slíkum í
leiknum. Forráðamenn HK og
stuðningsmenn eyddu púðrinu í
að tuða í dómurum leiksins og
virtist það slá leikmenn út af lag-
inu á meðan Grótta lét vafasama
dóma sér sem vind um eyru
þjóta.
Þrátt fyrir 15 marka sveiflu í
tveimur leikjum liðanna á þrem
dögum vildi Alfreð Finnsson,
þjálfari Gróttu, ekki meina að
mikill munur hafi verið á frammi-
stöðu síns liðs. „Ég var mjög
ánægður með okkar leik á mið-
vikudaginn. Við lékum vel þá líkt
og nú. Munurinn á leikjunum
liggur fyrst og fremst þeirra
megin. Þær voru mjög góðar á
miðvikudaginn en ekki í dag. Ég
bjóst við erfiðari leik. Við keyrð-
um fín hraðaupphlaup og sóknar-
leikurinn var mjög góður.
Það gerist ekki á hverjum degi
að Gróttuliðið skorar 17 hraða-
upphlaupsmörk. Okkar leikur
var mjög afslappaður og góður,“
sagði Alfreð kátur í leikslok.
- gmi
Yfirburðasigur hjá Gróttu
Grótta vann HK fremur auðveldlega, 21-36, í N1-deild kvenna í Digranesi í gær. Leikurinn var
sá fyrsti í seinni umferð Íslandsmótsins.
MARK Karólína B. Gunnarsdóttir brýst hér í gegnum vörn HK og skorar eitt af sjö mörkum sínum í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Nýliðar KR gerðu sér lítið fyrir og
lögðu Íslandsmeistara Hauka, 88-81, í stór-
leik sjöundu umferðar Iceland Express-deild-
ar kvenna. Frábær endasprettur sá til þess að
heimamenn náðu Haukum að stigum í öðru
sæti deildarinnar.
KR-stelpur mættu mjög ákveðnar til leiks
og skoruðu sex fyrstu stig leiksins. Án þess
að spila vel náðu Haukar að jafna leikinn og
loks komast yfir, 10-13. KR skoraði átta síð-
ustu stig fyrsta leikhluta og náði fimm stiga
forystu, 18-13. KR náði mest sjö stiga forskoti
í öðrum leikhluta en með stórleik Kristrúnar
Sigurjónsdóttur náðu Haukar að vinna sig inn
í leikinn á ný og munaði aðeins einu stigi í
hálfleik, 39-38.
Það voru ekki minni sveiflur í síðari hálf-
leik en þeim fyrri. Haukar komust fimm stig-
um yfir, 44-49. KR svaraði því með 12 stigum
gegn 2 og komust fimm stigum yfir, 56-51.
Haukar skoruðu 18 af síðustu 23 stigum þriðja
leikhluta og fóru með átta siga forystu inn í
síðasta leikhlutann, 69-61.
Haukar byrjuðu síðasta leikhlutann með
látum og komust 11 stigum yfir, 75-64. Í stað
þess að gefast upp spýttu KR-ingar í lófana
og minnkuðu muninn jafnt og þétt og þegar
þrjár mínútur voru eftir var staðan orðin
jöfn, 79-79. Hálfri mínútu síðar voru KR-
stelpur komnar yfir og Íslandsmeisturunum
greinilega brugðið. KR gerði í kjölfarið út um
leikinn og fyllilega sanngjarn sigur staðreynd
þar sem Monique Martin fór á kostum með 46
stig þar af 17 í fjórða leikhluta.
Jóhannes Árnason, þjálfari KR, er með fæt-
urna á jörðina þrátt fyrir gott gengi.
„Markmið okkar hefur ekkert breyst þó að
ágætlega gangi. Við ætlum að fara í úrslita-
keppnina og vera alvöru lið. Við erum með
fimm ára markmið og það breytist ekki. Við
endurmetum ekki okkar stöðu strax. Það er
langt eftir og margt sem getur gerst,“ sagði
Jóhannes.
Jóhannes sagði að hann hefði ekki þurft að
segja stelpunum hvað þær þyrftu að gera á
lokasprettinum. Hann hefði aðeins þurft að
róa þær og svo sáu þær um afganginn.
„Við vorum í vandræðum í sóknarleiknum.
Ég tók leikhlé þegar fimm mínútur voru eftir
og róaði stelpurnar aðeins niður og sagði
þeim að hafa gaman af þessu og vera ekki
svona æstar.
Svo erum við með leikmann eins og Hildi
Sigurðardóttur sem tók leikinn yfir í leik-
stjórnandanum. Þá þarf maður ekki mikið að
þjálfa.“ - gmi
KR vann Hauka 88-81 í stórleik í Iceland Express-deild kvenna í gærdag:
Nýliðarnir skelltu Haukum
ÖLL SUND LOKUÐ Haukastúlka kemst ekkert áfram gegn öflugri KR vörn í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HANDBOLTI Flensburg fór á kostum
í þýsku úrvalsdeildinni í hand-
bolta í gær þegar liðið skoraði 47
mörg og vann sjö marka sigur á
Melsungen. Flensburg komst með
sigrinum í annað sæti deildarinn-
ar og er með 21 stig eftir 13 leiki,
en Hamborg er á toppi deildar-
innar með 21 stig eftir 12 leiki.
Torge Johannsen skoraði 10
mörk fyrir Flensburg í leiknum,
en Alexander Petersson hafði
óvenju hljótt um sig og skoraði 3
mörk. - óþ
Þýski handboltinn:
Stórsigur hjá
Flensburg í gær
N1 deild í kvennahandbolta:
HK-Grótta 21-36
Mörk HK: Arna Sif Pálsdóttir 5/2 (6/3), Jóna
Halldórsdóttir 4 (8), Elsa Óðinsdóttir 4 (10),
Auður Jónsdóttir 4 (13), Natalia Cieplowska 2
(10/2), Elva Arnarsdóttir 1 (1), Rut Jónsdóttir 1
(5), Brynja Magnúsdóttir (1), Elín Baldursdóttir
(1), Erna Davíðsdóttir (1)
Varin skot: Ólöf Ragnarsdóttir 9 (38/3) 23,7%,
Ekaterina Dzhukeva 3 (10/1) 30%
Hraðaupphlaup: 7 (Jóna 3, Auður 2, Cieplowska,
Brynja)
Fiskuð víti: 5 (Arna 2, Auður, Rut, Brynja)
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk Gróttu: Karólína Gunnarsdóttir 7 (10),
Arndís Erlingsdóttir 6 (7), Pavla Plaminkova 6/4
(10/4), Aukse Vysniauskaite 5 (12), Ragna Karen
Sigurðardóttir 4 (5), Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir 4 (6), Hildur Andrésdóttir 1 (1), Þórgunnur
Þórðardóttir 1 (1), Eva Kristinsdóttir 1 (3), Tanja
Zukovska 1 (5)
Varin skot: Guðrún Ósk Símonardóttir 13/2
(24/3) 54,2%, Íris Björk Símonardóttir 11/1
(21/2) 52,4%
Hraðaupphlaup: 17 (Karólína 5, Aukse 2, Ragna
Karen 2, Anna 2, Arndís 2, Plaminkova, Eva,
Þórgunnur, Zukovska)
Fiskuð víti: 4 (Aukse 4)
Utan vallar: 4 mínútur
Akureyri-Valur 12-25
Stjarnan-FH 25-26
Kvennadeild Iceland Express:
KR-Haukar 88-81
Stig KR: Monique Martin 46, Hildur Sigurðardóttir
17, Sigrún Ámundadóttir 12, Helga Einarsdóttir
5, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 4, Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir 2, Guðrún Ámundadóttir 2
Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsdóttir 29, Kera
Hardy 21, Telma Björk Fjalarsdóttir 9, Hanna
Hálfdánardóttir 8, Unnur Tara Jónsdóttir 6, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 3, Bára Hálfdánardóttir 2,
Bryndís Hreinsdóttir 2, Kristín Fjóla Reynisdóttir 1.
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI David Healy, leikmaður
Fulham, skoraði sigurmarkið í
leik Norður-Íra
og Dana í F-riðli
undankeppni
EM. Þetta var
þrettánda mark
framherjans í
undankeppninni
og nýtt met.
Króatinn Davor
Suker átti fyrra
metið, tólf
mörk í undan-
keppninni. Alls
hefur Healy
skorað 33 mörk
í 61 landsleik.
Healy
vippaði yfir markvörð Dana,
Thomas Sörensen, þegar tíu
mínútur voru til leiksloka í
Belfast. Þar með voru vonir Dana
um þátttöku í Evrópumótinu úti.
Áður höfðu Daninn Nicklas
Bendtner og Norður-Írinn Warren
Feeney skorað sitt hvort markið.
Úrhelli var í Belfast og þurfti
nánast að fresta leiknum. - sgj
Norður-Írar sigruðu Dani:
Healy kominn í
þrettán mörk
DAVID HEALY
Norður-Írinn knái
hefur átt ótrúlegu
gengi að fagna með
landsliði sínu.