Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 4
4 18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest áframhaldandi gæsluvarð-
hald yfir manni sem grunaður er
um að hafa orðið öðrum að bana 7.
október.
Í úrskurði segir að kærði sé
sterklega grunaður um að hafa
slegið þann látna í höfuðið með
slökkvitæki, með þeim afleiðingum
að hann lést.
Maðurinn tilkynnti um atburðinn
og í íbúð hans fannst blóðug úlpa
og duft úr slökkvitæki. Upptaka úr
öryggismyndavél styðja einnig
grun lögreglu.
Maðurinn mun sitja í gæsluvarð-
haldi allt til 20. desember.
- sgj
Grunaður um manndráp:
Gæsluvarðhald í
manndrápsmáli
VINNUMARKAÐUR Stefán Ólafsson,
prófessor við Háskóla Íslands,
telur að veruleg hækkun skatt-
leysismarka leysi flest vandamál í
einu fyrir þá tekjulágu, lífeyris-
þega og ungar barnafjölskyldur.
Þetta kom fram í erindi sem Stefán
flutti á aðalfundi BSRB í gær.
Stefán leggur til að skattleysis-
mörkin verði hækkuð um 90 þús-
und, eða upp í um 140 þúsund
krónur, en verði látin fjara út hjá
fólki vel yfir meðaltekjum og þar
fyrir utan.
„Þegar fólk er til dæmis komið
með 350 þúsund á mánuði lækki
skattleysismörkin jafnt og þétt og
fjari út við 500 þúsund á mánuði.
Það þýðir að kostnaðurinn af því
að gera þetta verður miklu minni.
Þar að auki réttir þetta svolítið af
hallann sem verður í skattkerfinu
með fjármagnstekjuskattinum og
þyngir aðeins skattbyrðina í efri
hópunum,“ segir hann.
Stefán greindi frá því að skatt-
byrði almennings hefði stóraukist
á síðustu tíu til tólf árum. „Við
erum nú með tiltölulega mikla
skattbyrði í tekjusköttum ein-
staklinga, mestu skattbyrði í heimi
í neyslusköttum, fyrirtækjaskatt-
ar á Íslandi eru einna lægstu sem
þekkjast og sömuleiðis fjármagns-
tekjuskattar. Það er einmitt rýrnun
skattleysismarkanna sem hefur
gjörbreytt skattbyrðinni og fært
byrðina frá efri tekjuhópum til
neðri og meðaltekjuhópanna í
vaxandi mæli,“ segir hann. - ghs
Stefán Ólafsson prófessor vill að skattleysismörkin hækki:
Fjari út hjá meðaltekjufólki
SKATTBYRÐIN
GJÖRBREYTT
„Það er einmitt
rýrnun skattleys-
ismarkanna sem
hefur gjörbreytt
skattbyrðinni,“
sagði Stefán
Ólafsson,
prófessor við
Háskóla Íslands,
á fundi BSRB.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rangt var farið með textahöfund lags-
ins Ísland er land þitt í blaðinu í gær.
Ljóðið er eftir Margréti Jónsdóttur.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTTINGAR
Í Fréttablaðinu á laugardag var fjallað
um kærur vegna kynferðisbrota.
Í skýringarmynd víxlaðist hlutfall
erlendra og íslenskra ríkisborgara
samkvæmt málaskrá lögreglunnar.
Þar átti hlutfall íslenskra ríkisborgara
að vera táknað með rauðum lit og
erlendra ríkisborgara með bláum lit.
FJÖLMIÐLAR 110 ár eru liðin frá
stofnun Blaðamannafélags
Íslands. Formaður félagsins,
Arna Schram, segir það vera eitt
elsta fag- og
stéttarfélag
landsins.
„Félagið var
formlega stofnað
af sjö ritstjórum
og útgefendum
árið 1897,“ segir
Arna. „Tilgangur-
inn var að efla
fagið og kynnast
hver öðrum.“ Arna segir
heimildir gefa til kynna að Bríet
Bjarnhéðinsdóttir, ritstjóri
Kvennablaðsins, hafi verið ein af
þeim sem komu félaginu á fót.
Í tilefni afmælisins kemur út
bókin Íslenskir blaðamenn. Í
henni er að finna viðtöl við tíu
elstu blaðamenn landsins, sem
hafa lengst starfað í faginu. - sgj
Blaðamannafélagið 110 ára:
Eitt elsta stéttar-
félag landsins
ARNA SCHRAM
LOFTSLAGSMÁL Hlýnun jarðar er
óumdeilanleg staðreynd, segir í
samantekt Vísindanefndar Sam-
einuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar á fjórðu yfirlitsskýrslu
nefndarinnar. Samantektin var
samþykkt í gær í lok vikulangs
fundar nefndarinnar í Valencia á
Spáni.
Vísindaleg vissa um loftslags-
breytingar af mannavöldum hefur
enn fremur aukist frá því að
þriðja yfirlitsskýrslan kom út árið
2001. Í skýrslunni segir að
mælanleg hlýnun jarðar verði
ekki skýrð eingöngu út frá nátt-
úrulegum þáttum, svo sem sól-
geislun og eldgosum, heldur
eingöngu ef einnig er tekið tillit
til áhrifa mannsins og losunar
gróðurhúsalofttegunda.
Í skýrslunni segir að styrkur
koldíoxíðs í andrúmsloftinu hafi
aukist um þriðjung frá því fyrir
iðnbyltingu og hafi ekki verið
meiri í að minnsta kosti 650 þús-
und ár. Áframhaldandi losun
gróðurhúsalofttegunda í viðlíka
magni og nú er myndi valda auk-
inni hlýnun og margvíslegum
breytingum á loftslagskerfi jarðar,
sem hefðu óhjákvæmilega í för
með sér dauða kóralrifja, tilfærslu
á búsvæðum tegunda, skort á
neysluvatni og hættu á þurrkum,
skógareldum og flóðum á strand-
svæðum.
Fyrir aldarlok er talið að hafís
verði horfinn af norður heimskautinu
á sumrin, sjávarborð muni hækka
um 18 til 59 sentimetra og hægja
muni á hringrás hafstrauma, þótt
stórfelldar og snöggar breytingar
séu dregnar í efa.
Skýrslan er þó ekki eintóm böl-
sýni, því tekið er fram að miklir
möguleikar séu á að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda á
hagkvæman hátt. Það geti ríkis-
stjórnir meðal annars gert með
reglusetningum og staðlagerð,
sköttum og gjöldum eða fram-
seljanlegum losunarheimildum.
Slíkar aðgerðir séu afar brýnar á
næstu tveimur til þremur ára-
tugum.
Skýrslan hefur komið út í þrem-
ur áföngum á þessu ári og er
byggð á vinnu 2.500 vísindamanna.
Að því er segir í tilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu er hún viða-
mesta vísindalega samantekt sem
gerð hefur verið um loftslags-
breytingar. stigur@frettabladid.is
Frekari vatnsskortur
og þurrkar vofa yfir
Hlýnun jarðar er staðreynd, segja vísindamenn á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Vissa um þátt manna í hlýnuninni hefur aukist síðustu ár. Skortur á neysluvatni
er sagður óhjákvæmilegur verði ekki dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda.
KOLUM MÓTMÆLT Grænfriðungar á gúmbáti sigldu í gær í veg fyrir flutningaskipið
Front Driver úti fyrir Valencia, þar sem fundur Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar fór fram. Samtökin fullyrtu að skipið flytti ríflega 150 þúsund
tonn af kolum. Á borða grænfriðunganna stendur á spænsku „Kolabrennsla eyði-
leggur loftslagið.“ FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SLÖKKVILIÐ Hjón á fimmtugsaldri
voru flutt á slysadeild í fyrrinótt
eftir að eldur kom upp á heimili
þeirra í Gullsmára í Kópavogi.
Eldurinn kviknaði í þvottahúsi
íbúðarinnar. Fólkið var sofandi í
svefnherbergi á sömu hæð.
Konan brenndist lítillega á
höndum og maðurinn þurfti á
aðhlynningu að halda vegna
reykeitrunar.
Slökkvilið var kvatt á staðinn
um klukkan fjögur og réð
niðurlögum eldsins skömmu
síðar. Reykræsta þurfti íbúðina
en skemmdir voru mestar í
þvottahúsinu þar sem eldurinn
kom upp. - sh
Tvennt flutt á slysadeild:
Kviknaði í hjá
sofandi hjónum
DÝRAHALD Dýralæknafélag
Íslands vill samstarf við bæjar-
félög landsins um miðlægan
gagnagrunn fyrir hunda og ketti.
Að sögn
Sigurborgar
Daðadóttur,
ritara Dýra-
læknafélagsins,
hafa hundar og
kettir um
árabil verið
merktir með
sérstakri
örflögu með
upplýsingum
um þá sjálfa og eigandann.
Sigurborg segir að fram til
þessa hafi upplýsingar í tengslum
við örmerki verið vistaðar í
hverju sveitarfélagi fyrir sig.
Mikil bragarbót yrði af mið-
lægum gagnabanka sem hægt
væri að leita til, meðal annars ef
dýr týnast eða eigendur þeirra
flytjast á milli svæða. - gar
Tillaga frá Dýralæknafélaginu:
Fái gagnabanka
um gæludýrin
GÆLUDÝR Skráð í
gagnagrunn.
Gaf sig fram við lögreglu
Maður sem lögregla lýsti eftir í fyrra-
kvöld grunaður um kynferðisbrot gaf
sig fram síðar um kvöldið. Ekki var
talin ástæða til að halda manninum
og var hann því látinn laus að lokinni
skýrslutöku.
LÖGREGLUFRÉTTIR
GENGIÐ 16.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,1038
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
60,99 61,29
124,19 124,79
88,98 89,48
11,936 12,006
11,083 11,149
9,585 9,641
0,5539 0,5571
96,4 96,98
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
FUNDARBOÐ
MATVÍS , Matvæla- og veitingafélag Íslands boðar til
almenns félagsfundar þriðjudaginn 20. nóvember 2007,
á Stórhöfða 31. 1.hæð, klukkan 15:00.
Dagskrá:
1. Komandi kjarasamningar.
2. Önnur mál.
Kaffi veitingar
Félagar fjölmennið
Stjórnin