Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 95
49 MENNING
S
agan segir að nokkrir strákar í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð hafi tekið sig
saman og stofnað hljómsveit. Þeir beittu
lögmálum auglýsingafræðanna fyrir sig
við nafngiftina; Bókabúðir auglýstu
gjarnan að „ný dönsk blöð“ væru komin og meira
þurfti ekki, Nýdönsk var fædd. Þjóðin sperrti
fyrst eyrun við sumarsmellinn Hólmfríður
Júlíus dóttir og geisladiskinn Ekki er á allt kosið...
sem geirnegldi Nýdönsk sem funheita popp-
hljómsveit á íslenskan mælikvarða. Á þeim tíma,
undir lok níunda áratugarins, var geisladiskur
reyndar skilgreindur í orðabók sem „sæ lindýr
af diskaætt“ en lunknir hlustendur föttuðu strax
að þessi hljómsveit væri töluvert lengra komin á
þróunar brautinni. Um nokkurra ára skeið naut
Ný dönsk geigvænlegra vinsælda; stappfyllti
sveitaböll og tróð vinsældalista með útvarps-
vænum smellum og þéttum diskum.
Baldur og Loki
Söngdúóið Daníel Ágúst og Björn Jörundur var
lengi veigamesti hluti ímyndar Nýdönsk. Þar
voru klassískar andstæður á ferð: aðalsöngvar-
inn Daníel strokinn og hreinradda, fíngerður og
appollónskur meðan stílbrotsmaðurinn Björn
var groddalegur, úfinn og díónýsískur með kæru-
leysis lega og sérstæða raddbeitingu. Straum-
hvörf urðu við brotthvarf Daníels árið 1997, en
hann var þá farinn að rækta Gus Gus-garðinn
með allgóðum árangri. Síðan þá hefur prófíll
sveitarinnar verið hógvær, þar til nú að hún
springur út á ný, meira að segja með sinn eigin
þjóðfána.
Fimmfaldur geisli
Nýdönsk er rokkhljómsveit með framsæknar
tilhneigingar en þegar best lætur sameinar hún
popp og framúrstefnu. Slagarar eins og Nostra-
damus og Kirsuber eru hræðslulaust brotnir
upp með samhengislitlum kórsöng, blásaramilli-
kafla með lítt heyrilegu tali undir eða atónal
gítar væli. Til þess að slíkt gangi upp þarf smekk-
vísi og hóf. Stílbrögðin eru fjölbreytt, frá
sítarnum í Eru ekki allir í stuði? til svartra bak-
radda sem döbbaðar voru í Surrey á Horfðu til
himins. Hammondinn er heldur aldrei langt
undan. Þeir eru póstmódern, strákarnir.
Nýdönsk er samt líka popphljómsveit sem
kann að gefa fólki það sem það vill: smelli. Jafn-
vel er svo langt gengið í gleðipoppinu á köflum
að gítarinn í hittaranum Skými virðist hafa lagt
grundvöllinn að Selfosssveiflunni víðkunnu.
Fyrir Nýdönsk var heldur ekkert mál að gefa út
tvær plötur í röð með mismunandi lögum sem
hétu Sól. Vonandi megum við eiga von á fleirum.
Ekki má heldur gleyma framlagi sveitarinnar
til þjóðlagahefðarinnar. Hvort gítargripabók
Stefáns Hjörleifssonar hjálpaði til skal ósagt
látið en fljótlega var svo komið að helstu skyldu-
lög Íslendinga á kassagítar í partíum, fyrir utan
Stál og hnífur auðvitað, voru Fram á nótt og
Hjálpaðu mér upp.
Þó upp úr þrónni skríði kvefpestir
Munúðin hefur löngum verið skyld náttúrunni í
textum Nýdönsk. Ástin og holdið eru tengd við
eplatré, hunang og kirsuber; frjókornum rignir
og blómarósirnar mynda haf. Útópían birtist í
formi Regnbogalands og Himalaya og sveitin
tekst svo gjarnan á loft að flugvélar eru hvar-
vetna svo kanna megi landslag skýjanna. B-
hliðin á lífs vímunni er svo tálguð gagnrýni á
neysluþjóð félagið sem birtist til að mynda í
darwinísku háði á tískufrík (Apaspil), greiningu
á nútíma fjölskyldumynstrum (Húsmæðra-
garðurinn) og beinskeyttri árás á kynþáttahatur
(Hverjir eru bestir).
Allt 1987-2007
Safnpakkarnir sem liggja fyrir væntanlegum
neytendum í jólaorgíunni eru að flestu leyti til
fyrirmyndar. 1987-2007 er tveggja diska safn
valinna laga ásamt diski með öllum mynd böndum
sveitarinnar. Við förum úr hljóðverinu í galla-
buxnabúð, fylgjumst með flugtilraunum nálægt
Umeå í Svíþjóð árið 1917, höngum í góðum fílíng
með bandinu í Öskjuhlíð og eyðum örfáum mín-
útum í himnaríki, þar sem menn blása sápu kúlur,
spila á hörpu og lesa Tinna bækur í makindum.
Kaupendum til gleði er einnig heildarsafnið Allt;
einkar handhægur átta diska kassi með svo að
segja öllu sem Nýdönsk hefur gefið út. Báðum
fylgja afbragðsgóðir bæklingar með ítarlegum
upplýsingum og textum.
Magnús Teitsson
GÖMUL OG NÝ DÖNSK
Plötur:
Ekki er á allt
kosið... (1989)
Regnbogaland
(1990)
Deluxe (1991)
Himnasending
(1992)
Hunang (1993)
Húsmæðragarð-
urinn (1998)
Pólfarir (2001)
Ávallt
smekkvísir
Þannig var
sveitin lengst
af skipuð
á tíunda
áratugnum:
Ólafur Hólm,
Björn Jörundur
Friðbjörnsson,
Stefán
Hjörleifs son,
Daníel Ágúst
Haraldsson,
Jón Ólafsson.
21