Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 13
Hvað eiga 2,7 milljónir fermetra, 635 þúsund
ljósaperur, 270 þúsund gluggar, 220 þúsund
hurðir, 215 þúsund bílastæði, 180 þúsund
hurðarhúnar, 3.800 leigurými, 730 lyftur, 270
starfsmenn og 4 lönd sameiginlegt? Eitt
fyrirtæki, Landic Property, tengir þetta allt.
Þegar Fasteignafélagið Stoðir, Keops
og Atlas Ejendomme runnu
saman varð til eitt af þremur
stærstu fasteignafélögum
á Norðurlöndum.
Meginstarfsemi Landic
Property er á Íslandi, í
Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi
og sérhæfir fyrirtækið sig í leigu á
skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Í Danmörku er SAS, Magasin og
Illum stærstu leigjendur félagsins. Hið
fræga Tietgens Hus er ein af fjölmörgum
eignum Landic Property þarlendis. Í
Svíþjóð eru skattayfirvöld, réttarkerfið,
lögreglan og Stokkhólmsborg stærstu
leigjendurnir. Sænsku stórfyrirtækin Telia
Sonera, Ericsson, SAS og Nordea bank eru
meðal viðskiptavina okkar þar í landi.
Á Íslandi eru stærstu leigjendurnir Hagar,
Icelandair Hotels og hið opinbera. Stærstu eignir
Landic Property á Íslandi eru Kringlan,
Spöngin, Holtagarðar og Hótel Hilton Nordica.
Eins og gengur og gerist eru fasteignir
misgamlar. Sumar eignir Landic Property
eru ekki nema nokkurra mánaða gamlar, sumar
eru enn teikningar á borði eða hugmynd í
kollinum á starfsmanni okkar. Aðrar eignir eru
mörg hundruð ára, sögufrægar byggingar.
Við erum með starfsemi í fjórum löndum en
alls staðar er markmiðið það sama:
framúrskarandi þjónusta við
leigjendur og áframhaldandi
vöxtur fyrirtækisins.
Þegar rætt er um fasteignir er
auðvelt að týna sér í tölulegum
upplýsingum. En tilgangurinn
með upptalningunni á eignum Landic
Property er að sýna að þrátt fyrir að við
höfum eins og öll fyrirtæki byrjað smátt,
þá erum við í dag risastór.
Vissulega snýst flest sem við gerum að
miklu leyti um steypu, stál, gler,
múrsteina, timbur og málningu. En það
sem skiptir okkur mestu eru þær
þúsundir einstaklinga, skrifstofufólks,
ríkisstarfsmanna, verslunarfólks, lögreglu-
manna og hótelgesta, sem gæða byggingar
okkar lífi á hverjum degi. Svo ekki sé minnst á
skapandi og kraftmiklu starfsmenn Landic
Property sem tryggja viðhald og vegsemd
félagsins. Það er lykillinn að góðu samstarfi.
www.landicproperty.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA