Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 105
SUNNUDAGUR 18. nóvember 2007 29
Þau Guðný Dóra Gestsdóttir,
framkvæmdastjóri Gljúfrasteins,
og Guðmundur Jónsson, stjórnar-
formaður Miðstöðvar munnlegrar
sögu, undirrituðu á föstudag
samning um söfnun munnlegra
heimilda um Halldór Laxness og
Gljúfrastein.
Frá því að safnið á Gljúfrasteini
var opnað í september 2004 hafa
margir þeirra gesta sem heimsótt
hafa safnið gefið sig á tal við
starfsfólk og miðlað skemmtileg-
um upplýsingum og fróðleik um
skáldið og Gljúfrastein. Full
ástæða er því til að safna saman
þessum munnlegu heimildum á
kerfisbundinn hátt. Ennfremur er
vitað til þess að margir eiga
athyglisverðar upptökur í fórum
sínum sem ættu vel heima í slíku
safni. Ekki er verið að leita eftir
neinu ákveðnu heldur er mark-
miðið að safna saman frásögnum
af daglegu lífi skáldsins og öðru
sem tengist Gljúfrasteini, sögum
sem samtíðarfólk Halldórs kann
og getur rifjað upp.
Miðstöð munnlegrar sögu mun
sjá um að skrá og varðveita þau
gögn er safnað verður og veita
starfsfólki Gljúfrasteins ráðgjöf
hvað mótun verkefnisins varðar og
nauðsynlega þjálfun í viðtalstækni
og við notkun tækjabúnaðar.
Miðstöð munnlegrar sögu er
safn og rannsókna- og fræðslu-
stofnun á sviði munnlegrar sögu.
Hlutverk hennar er að safna
munnlegum heimildum um sögu
lands og þjóðar og varðveita þær
til frambúðar. Hún veitir fræðslu
um söfnun og notkun munnlegra
heimilda, skapar fræðimönnum
aðstöðu til rannsókna og stendur
fyrir fræðilegri umræðu um
munnlega sögu. Að miðstöðinni
standa þrjár rannsókna- og
háskólastofnanir í samvinnu við
Landsbókasafn Íslands – háskóla-
bókasafn. Þær eru Sagnfræði-
stofnun Háskóla Íslands, Rann-
sóknarstofa í kvenna- og
kynjafræðum við Háskóla Íslands
og Kennaraháskóli Íslands.
Meginmarkmið með söfnun
munnlegrar sögu á Gljúfrasteini
eru að dýpka þekkingu á ævi og
verkum Halldórs Laxness, að
safna heimildum um Halldór Lax-
ness frá samtíðarmönnum hans
og að safna öllu er viðkemur sögu
Gljúfrasteins.
- vþ
Munnlegar heimildir varðveittar
Sendiráð Japans, í samvinnu við
Landsbókasafn Íslands og Menn-
ingarmiðstöðina í Listagili á Akur-
eyri, býður til sýningar á búning-
um og textílhönnun úr Noh-leikhúsi
Japans. Sýningin stendur yfir í
Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík
dagana 20.-25. nóvember og í
Ketilhúsinu á Akureyri dagana
27. nóvember til 1. desember.
Noh-leikhús er eitt af því mikil-
vægasta í menningararfleifð Jap-
ans, en saga þess spannar 600 ár.
Noh-leikhúsið var í miklum
mætum hjá samúræjum og hélt
stétt þeirra þessu listformi á lofti
frá 14. til 19. aldar. Búningar leik-
aranna skipuðu frá upphafi viða-
mikið hlutverk þar sem þeir upp-
hófu leikverkið og fegruðu svið
Noh. Búningarnir eru fíngerðir og
sýna vel hina einstöku fagurfræði
sem ríkir í japönsku Noh-leik-
húsi.
Handbragð við gerð búning-
anna er einstakt og notast er við
háþróaða tækni við vefnað og
litun efnisins. Litirnir eru glæsi-
legir en litunarferlið er flókið og
notaðar eru sérvaldar jurtir og
náttúruleg hráefni til að ná áhrif-
unum fram. Búningar Noh-leik-
hússins skipa sérstakan sess í
sögu japansks textíliðnaðar sem
og í menningararfleifð Japans.
Á sýningunni gefst gestum færi
á að skoða í návígi undurfagra
hönnun og vandað handbragð.
Nokkrir búningar verða til sýnis
ásamt ýmsum aukahlutum sem
hafa verið endurgerðir eftir upp-
runalegum fyrirmyndum af Yama-
guchi Noh Costume Reserch
Centre í Kyoto í Japan. Allir bún-
ingarnir eru byggðir á margra
alda gamallri hönnun og var við
sköpun þeirra notast við
vinnuaðferðir þeirra tíma. - vþ
Japanskir
búningar
HALLDÓR LAXNESS
FÖGUR KLÆÐI Noh-búningar eru óneit-
anlega tilkomumiklir.
VELJUM LÍFIÐ
Langholtskirkja - 18. nóvember 2007 - kl. 20.00
Miðasala: Langholtskirkja, sími 520 1300, hjá kórfé-
lögum og á netfanginu list@langholtskirkja.is
Miðaverð: 3.500 krónur
LA VIE EN ROSE
S T Ó R B R O T I N S A G A E D I T H P I A F
KV IKMYND EFT I R OL IV I ER DAHAN
MAR ION COT I L LARD
„STÓRKOSTLEGASTA UMBREYTING SEM FEST HEFUR VERIÐ Á FILMU;
MARION COTILLARD UMBREYTIST Á SÁL OG LÍKAMA
OG EDITH PIAF BIRTIST OKKUR LJÓSLIFANDI.
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFI NÆSTA ÁRS ER FUNDINN!“
- STEPHEN HOLDEN, NEW YORK TIMES, 28. FEBRÚAR 2007
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
FRUMSÝND 15. NÓVEMBER Í REGNBOGANUM
„Mér er til efs að Íslendingar hafi nokkurn tíma
áður átt skemmtikraft sem jafnast á við Kristján.“
ÞT. Mbl, 2006
„Bráðfyndinn og undraverður látbragðsleikari.“
V.W. Berlinske Tidene
Frelsarinn
eftir Kristján Ingimarsson
Sýning í Þjóðleikhúsinu 22. nóvember.
Sýningar í Samkomuhúsinu á Akureyri
24. og 25. nóvember.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið