Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 2
2 18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
BRUNI Talið er að allt að 200 nautgripir hafi brunnið
inni í eldsvoða á bænum Stærra-Árskógi sunnan
Dalvíkur í gær. Fjósið, þar á meðal innan við
ársgömul viðbygging, brann til kaldra kola, sem og
nærliggjandi hlaða.
Tilkynnt var um eldinn skömmu fyrir klukkan
fimm síðdegis. Um þrjátíu slökkviliðsmenn frá
Akureyri og Dalvík, á sex slökkviliðsbílum, fóru á
staðinn og reyndu að ráða niðurlögum eldsins. Þegar
slökkvilið kom á staðinn var fjósið alelda.
Mikill veðurhamur var á svæðinu og torveldaði
það mjög slökkvistarfið. Ingimar Eydal, aðstoðar-
slökkviliðsstjóri á Akureyri, var á staðnum. „Það var
mjög erfitt að eiga við þetta í þessu veðri,“ sagði
hann. „Það var mikill vindur og kuldi og við þurftum
að dæla vatninu vel rúmlega hálfan kílómetra upp
að fjósinu.“ Koma þurfti upp dælum með reglulegu
millibili á slöngunni til að vatnið frysi ekki á
leiðinni.
Slökkvistarfi lauk um klukkan átta í gærkvöld.
Enn sáust þó víða glæður og stóð slökkvilið Dalvíkur
brunavakt í nótt. Fyrirhugað er að hefjast handa við
frekari rannsóknir og hreinsun á morgun eftir að
veður lægir.
Hjónin á Stærra-Árskógi voru ein á bænum þegar
þau urðu eldsins vör. Íbúðarhús voru aldrei í hættu.
Upptök eldsins eru ókunn en grunur leikur á um
að kviknað hafi í út frá rafmagni í mjólkurhúsi
bæjarins. Fjósið á bænum var vel tækjum búið og
eitt hið fullkomnasta í sveitinni. Talið er að tjónið
hlaupi á tugum ef ekki hundruðum milljóna króna.
stigur@frettabladid.is
Konukvöld
Fimmtudaginn 22. nóvember kl. 19:30
í Bústaðakirkju í sal á neðri hæð, sunnanmegin.
Glæsileg atriði í boði m.a. The Secret eða
“Leyndarmálið” sem allir eru að tala um..,
tónlistaratriði tískusýning og happdrætti ásamt
óvæntum glaðningi.
Veislustjóri verður Marentza Poulsen
Aðgangseyrir er kr. 2.500. Allur ágóði rennur óskiptur til að
tryggja framtíð Súgfi rðingasetursins sem er í eigu
Súgfi rðingafélagsins í Reykjavík.
Mætum og tökum vinkonurnar með á glæsilegt konukvöld.
Skráning á netfangið konukvold@hotmail.com
Átthagadætur
REYKJAVÍK Fyrstu varamenn
framboðslista fá farsíma,
nettengingu og fartölvu á kostnað
borgarinnar, með sama hætti og
borgarfulltrúar, samkvæmt
tillögu í forsætisnefnd Reykja-
víkurborgar. Á fundi nefndarinn-
ar á föstudag var ákvörðun
frestað.
Áætlað er að kostnaður vegna
þessa verði 3,1 milljón króna.
Fyrstu varamenn í borgarstjórn
eru Óskar Bergsson Framsóknar-
flokki, Sif Sigfúsdóttir Sjálfstæð-
isflokki, Guðrún Ásmundsdóttir
F-lista, Dofri Hermannsson
Samfylkingu og Sóley Tómasdótt-
ir Vinstri grænum. - sgj
Tillaga hjá Reykjavíkurborg:
Varamenn fái
síma og tölvur
Arnar, sést að þetta er máln-
ing, ef Grant er skoðað?
„Maður þarf Arnaraugu til að skoða
Grant.“
Arnar Grant mun birtast á forsíðu næsta
tölublaðs Fitness-frétta í gervi Ofurmenn-
isins. Búningurinn var málaður á hann.
Lalli Sig ljósmyndari tók myndina.
LÖGREGLUMÁL Lögreglumaður í
Búðardal ók fram á sextán ára
rjúpnaskyttu um miðjan dag í gær.
Faðir piltsins hafði lánað honum
byssu og ekið honum á veiðar.
Ekki er unnt að fá byssuleyfi fyrr
en við við tuttugu ára aldur.
Lagt var hald á skotvopn
piltsins og aflann sem hann hafði
klófest. Ekki liggur fyrir hvort
faðirinn verður ákærður fyrir
vopnalagabrot en varðstjóri
lögreglunnar í Borgarnesi segir
hann mega búast við „verulegum
refsiaðgerðum“; sektum, upptöku
vopna og afturköllun byssuleyfis.
„Þetta er með því glórulausara
sem maður hefur heyrt,“ segir
hann. - sh
Faðir fremur vopnalagabrot:
Sextán ára á
rjúpnaveiðum
LÖGREGLUMÁL Drukkinn farþegi í
bíl á leið frá Þorlákshöfn til
Reykjavíkur í fyrrinótt var
óánægður með hversu hægt
ökumaður bílsins ók. Hann greip
því til þess úrræðis að kasta
ökumanninum út úr bílnum með
valdi og aka sjálfur í bæinn.
Við komuna til Reykjavíkur var
hann þó gripinn af laganna
vörðum og stungið í fangaklefa
þar sem hann eyddi afgangi
næturinnar og gærmorgninum.
Fyrri ökumaðurinn sem ekki
hafði viljað flýta sér sat eftir einn
á þjóðveginum. Hann mun hafa
bjargast til byggða heill á húfi. - sh
Ósammála um ökuhraða:
Henti bílstjór-
anum út og ók
ölvaður á brott
SVEITARSTJÓRNARMÁL Íbúar í
Skútustaðahreppi felldu samein-
ingu þriggja sveitarfélaga í
Þingeyjarsýslu í kosningu í gær.
Íbúar Aðaldælahrepps og
Þingeyjarsveitar samþykktu
sameininguna með meirihluta. Öll
sveitarfélögin þurftu að sam-
þykkja sameininguna svo að af
henni yrði.
Alls voru 1.006 manns á
kjörskrá í kosningunum. 797
greiddu atkvæði og samþykkti
meirihluti kjósenda sameining-
una. Í Aðaldælahreppi, minnsta
sveitarfélaginu, kusu 70 prósent
með sameiningunni, en naumur
meirihluti samþykkti hana í
Þingeyjarsveit. - sgj
Kosningar í Þingeyjarsýslu:
Sameining felld
Tvö hundruð gripir
drápust í fjósbruna
Um 200 nautgripir brunnu inni í eldsvoða á Stærra-Árskógi í Eyjafirði í gær.
Nýtt fjós og hlaða brunnu til kaldra kola. Hríðarbylur torveldaði slökkvistarf.
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Myrkur og veðurhamur gerði slökkviliðsmönnum afar erfitt fyrir á Stærra-Árskógi í gær. Á myndinni sést hvar
skíðlogar bæði í fjósinu og hlöðunni. MYND / FANNEY DAVÍÐSDÓTTIR
HEILBRIGÐISMÁL Forvarnadagur
verður haldinn í öllum grunnskól-
um landsins 21. nóvember
næstkomandi, að frumkvæði
Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands, og með stuðningi
lyfjafyrirtækisins Actavis.
Forvarnadagurinn var í fyrsta
sinn haldinn í fyrra undir
kjörorðinu „Taktu þátt! Hvert ár
skiptir máli.”
„Viljastyrkur ungs fólks er
öflugasta vopnið í baráttunni við
fíkniefnanotkun,“ sagði Ólafur
Ragnar er hann kynnti dagskrá
átaksins í Hagaskóla í gær. Hann
sagði jafnframt að á forvarnadag-
inn yrði lögð áhersla á að koma
því til skila sem rannsóknir
íslenskra fræðimanna hafi sýnt
að skili mestum árangri í
forvörnum gegn fíkniefnum. - hs
Forvarnadagur verður haldinn í grunnskólum landsins á miðvikudag:
Öflugasta vopnið er viljastyrkur
FORVARNADAGURINN Í HAGASKÓLA Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Róbert
Weissman, forstjóri Actavis, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, skemmtu
sér hið besta í Hagaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Óli Jón Hermannsson, mágur Guðmundar Geirs Jóns-
sonar bónda á Stærra-Árskógi, kom á staðinn frá Dalvík
skömmu eftir að eldsins varð vart. Hann segir að á bilinu
tuttugu til þrjátíu nautgripir hafi komist út úr opnu fjós-
inu og sést hlaupa út í myrkrið. „Ætli við reynum ekki að
fara á morgun þegar veðrið hefur skánað og finna gripina
sem sluppu út,“ segir hann. „Þetta voru meðal annars
kvígur sem eiga að bera í desember.“
Hann segir eldinn hafa læst sig í allan eldsmat á ógnar-
skömmum tíma. Hann treystir sér ekki til að segja til um
tjónið, en bærinn eigi mikinn mjólkurkvóta auk þess sem
fjósið var nýuppgert.
KÁLFAFULLRA KVÍGA LEITAÐ Í DAG
Í MÝVATNSSVEIT Íbúar Skútustaðahrepps
höfnuðu sameiningu við tvö sveitar-
félög.
GEORGÍA, AP Mikhaíl Saakashvili,
forseti Georgíu, hefur rekið for-
sætisráðherra landsins, Zurab
Nogaideli, og fengið í staðinn
Vladimír Gurgenidze banka-
stjóra til að gegna embættinu. Á
föstudag var jafnframt aflétt
neyðarástandi sem Mikhaíl Saak-
ashvili forseti setti 7. nóvember.
„Landið er ekki lengur í neinni
hættu, þannig að engin þörf er á
að framlengja neyðarástandið,“
sagði Nino Burdzhanadze, forseti
þings landsins, á fimmtudag
þegar þingið samþykkti að aflétta
neyðarástandinu.
Saakashvili forseti lýsti yfir
neyðarástandi þann 7. nóvember
eftir að hann hafði sent lögreglu
landsins til að leysa upp með
kylfum og táragasi friðsamleg
mótmæli gegn stjórn hans í höf-
uðborginni Tiblísi.
Með neyðarlögunum var jafn-
framt lagt bann við öllum mót-
mælum og óháðir fjölmiðlar voru
sömuleiðis bannaðir.
Saakashvili hefur lagt áherslu
á að styrkja tengslin við Vestur-
lönd, en þessi viðbrögð hans við
mótmælum hafa verið harðlega
gagnrýnd jafnt á Vesturlöndum
sem og í Rússlandi.
Saakashvili hefur boðað til for-
setakosninga í byrjun næsta árs í
þeim tilgangi að róa almenning.
- gb
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR Ivlian
Khaindrava ásamt öðrum leiðtogum
stjórnarandstöðunnar í Georgíu á fundi
með erlendum erindrekum í Tiblísi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Neyðarástandi hefur verið aflétt og skipt um forsætisráðherra í Georgíu:
Forsætisráðherrann var rekinn
ORKUMÁL Orkuveita Reykjavíkur
tók í gær formlega í notkun nýja
aflvél í Hellisheiðarvirkjun. Vélin
er svokölluð lágþrýstivél og er hún
sú fyrsta sinnar tegundar á
Íslandi. Býst fyrirtækið við að
spara sér 700 milljónir króna
árlega fyrir tilstilli vélarinnar, þar
sem nú þurfi að kaupa minni orku
frá öðrum til að selja. Raforkan frá
vélinni fer alfarið á almennan
markað. Í gær var einnig tekinn í
notkun nýr gestaskáli virkjunar-
innar, þar sem ferðamönnum gefst
kostur á að skoða fræðsluefni um
virkjunina og nýtingu jarðvarma-
orku á Íslandi. - sgj
Ný lágþrýstivél tekin í gagnið:
Sparar OR 700
milljónir árlega
Hestakerra tók á sig vind
Engan sakaði þegar bíll fauk út af
veginum undir Ingólfsfjalli síðdegis í
gær. Bíllinn var með tóma hestakerru
í eftirdragi og tók hún á sig mikinn
vind með fyrrgreindum afleiðingum,
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Selfossi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS