Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 33
11 MENNING
PROSPECT-
LESKLÚBBURINN
Lesklúbburinn minn er
kenndur við tímaritið Pros-
pect sem fjallar um þjóð-
félagsmál, því þar var fyrst
auglýst eftir meðlimum í
lesklúbb fyrir ellefu árum
síðan. Í hópnum eru um
tuttugu manns en yfirleitt
átta til tólf sem mæta og
fæst okkar hittast nema
í klúbbnum. Við hittumst
einu sinni í mánuði, til
skiptis heima hjá þeim
sem búa miðsvæðis,
borgum 4 pund til húsráð-
anda, um 500 krónur og
það nægir fyrir matarbita
og vínglasi sem húsráðandi
býður upp á. Allir hafa lesið
bókina sem er á dagskrá
og í lokin ræðum við
aðrar bækur sem kemur til
greina að lesa. Við skipt-
umst á að lesa skáldsögur
og aðrar bækur. Fólkið í
hópnum kemur víða að
en á það sammerkt að
vera víðlesið og einlægir
bókaunnendur.
Hjálmar Sveinsson heimspekingur og
Geir Svansson bókmenntafræðingur
hafa stofnað útgáfu, Omdurman. Þeir
hafa sent frá sér greinasafn eftir Pierre
Bourdieu í Atviksröðinni í samstarfi við
Reykjavíkurakademíuna og nú er að
koma út Nýr penni í nýju lýðveldi –
Elías Mar – viðtalsbók og drög að
greiningu á ferli skáldsins. Fleiri rit eru
í vinnslu, smásagnasafn Megasar,
óþekkt sjálfsævisaga Þórðar Sigtrygg-
sonar tónlistarmanns sem mun vekja
mikla athygli, smásagnasafn Elíasar
auk þýddra rita. Bókin um Elías er
fallega út gefin, hönnuð af Höskuldi
Harra sem vann með þeim bækur um
Dag, Megas og Rósku.
Hjálmar segir útgáfuna einkum huga
að verkum sem eru í jaðrinum, hafa
ekki komið út eða eru gleymd. Hann tók
að hitta Elías fyrir fáum árum en
skáldið féll frá í sumar. Verk hans frá
fimmta og sjötta áratugnum eru
gleymd en Hjálmar segir þau
mikilvægan hlekk í skáldskap
liðinnar aldar og styður það
ýmsum rökum.
Þeir félagar hafa báðir lagt
merkt framlag til samtímarann-
sókna og er spennandi að
fylgjast með útgáfunni:
bók Hjálmars lofar góðu
um útgáfuna. bb
Fylgdin til Omdurman
Verðlaun og fræg nöfn
Þegar írski rithöfundurinn Anne
Enright vann Booker-verðlaunin
nú nýlega fyrir „The Gathering“,
írska fjölskyldusögu, hafði bókin
aðeins selst í um þrjú þúsund ein-
tökum – hlutfallslega er það eins
og sala upp á fimmtán eintök á
Íslandi. Sú tala gæti nú hæglega
hundraðfaldast á heimamarkaðn-
um og enn betur ef hún fer á flakk
út í heim.
Booker-verðlaunin heita fullu
nafni Man-Booker verðlaunin og
eru fjármögnuð af fjárfestingar-
fyrirtækinu Man. Booker dregur
nafn sitt af breskri heildsölukeðju
sem Baugur á, án þess þó að
Booker-verðlaunin yrðu að
„Baugsverðlaununum“. Verð-
launin nema fimmtíu þúsund
pundum, um 6,5 milljónum króna.
Það munar um fleira en verð-
launaféð. John Banville, sem vann
Bookerinn 2005 fyrir „The Sea“,
sögu um æskuatburði í ljósi liðins
tíma, var þegar orðinn þekktur
rithöfundur en seldi aldrei mikið.
Nú seljast allar fyrri bækur hans
vel. Þó að mörg önnur bókmennta-
verðlaun séu veitt hér vekur
Bookerinn mesta athygli.
Helsta útgáfufréttin þessa mán-
uðina er fyrirhuguð útgáfa Tony
Blair, fyrrverandi forsætisráð-
herra, á ævisögu sinni hjá Random
House. Gail Rebuck, fram-
kvæmdastjóri Random House
UK, er gift nánum vini Blairs,
sem hafði vísast sitt að segja.
Sami lögfræðingur og samdi fyrir
Bill Clinton um hans endurminn-
ingar sá um samning Blairs, sem
fær að öllum líkindum um 650
milljónir króna fyrir útgáfurétt-
inn auk ágóða af sölunni þegar
þar að kemur. Til samanburðar
má nefna að nóbelsverðlaunin
nema „aðeins“ um 95 milljónum
króna.
„Eymdarsögur“, „misery
sagas“, bækur um dapurlega
æsku, eru orðnar svo stór grein að
bókabúðirnar eru margar komnar
með sérstakar hillur fyrir sannar
raunasögur. Spennusögur dafna
og vaxa enn eftir metsölu „Da
Vinci lykilsins“ sem alla útgef-
endur dreymir um. Þó að útgef-
endur segist leita nýjunga viður-
kenna flestir að Maclehose hafi
rétt fyrir sér, bókaútgefendur rói
á reynd mið – þó að metsölubækur
komi oft úr óvæntri átt.
Gefum góðar stundir
Gjafakort Þjóðleikhússins er kjörin jólagjöf
fyrir fólkið sem skiptir þig máli.
Ævintýraheimur leikhússins er handan við hornið því
korthafar þurfa aðeins að velja sér sýningu og geta síðan
eignast ógleymanlega stund með fjölskyldu og vinum.
www.leikhusid.is