Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 18
18 18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR EFTIRMINNILEG ORÐ DAVÍÐS ODDSSONAR: „En Samfylkingin er eins og gamall aftur- haldskommatittsflokkur og ætlar sér aldrei að verða stór og getur þess vegna ekki stutt verðugt verkefni eins og þetta.“ - 29. nóvember, 2004. Umræður á alþingi um stuðning við stríðið í Írak. „Svona gerir maður ekki.“ - Davíð Oddsson sló á puttana á Friðriki Sophussyni fjármálaráð- herra þegar hann skattlagði börn undir sextán ára aldri. „Við sjálfstæðismenn höfum gert samkomu- lag við alþýðubandalagsmenn. Ef þeir ljúga engu um okkur í þessari kosningabaráttu, lofum við að segja ekki sannleikann um þá.“ „Góður endir á slæmri hugmynd.“ - Orð Davíðs Oddssonar þegar ljóst var að endalok R-listans voru orðin að veruleika. EFTIRMINNILEG ORÐ MEGASAR: „Spáðu í mig, þá mun ég spá í þig.“ - Úr laginu Spáðu í mig „Eigi skal gráta Björn bónda heldur safna frímerkjum.“ - Megas á tónleikum „Því þótt þú gleymir guði þá gleymir guð ekki þér.“ - Úr laginu Þóttú gleymir guði „Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg.“ - Úr laginu Spáðu í mig „Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimur- inn framan í þig.“ - Úr laginu Ef þú smælar framan í heiminn Þ ær línur sem hvað helst eiga upp á pallborðið hjá fólki koma úr afar fjölbreyttum áttum. Í atkvæðasúpunni mátti finna tilvitnanir úr dægurlögum, bókmenntum, kvikmyndum, stjórnmálaumræðu, pistlum, auglýsingum og stórum stundum úr sögu okkar: Þjóðfundinum þegar þingmenn með Jón Sigurðsson í broddi fylkingar mæltu: „Vér mótmælum allir!“ og svo þegar nafni hans Páll Sigmarsson öskraði að þetta væri „ekkert mál fyrir Jón Pál!“ Báðar tilvitnanirnar kom- ust ofarlega á lista en langflest atkvæði fengu þó Jóhanna Sigurðardóttir og Bubbi Morthens fyrir tímann sem mun koma og ástarjátninguna. Lífið er saltfiskur Af eldri ummælum skoruðu línurnar „En orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur“ úr Hávamálum og „Eigi skal höggva“ hæst og fyrrnefnd ummæli Guðrúnar Ósvífursdóttur „Þeim var ég verst er ég unni mest“ lifa greinilega góðu lífi.“ Sé farið aðeins fram í tímann og bókmenntirnar skoðaðar er ein setning sem er greinilega í uppáhaldi margra, þó að vísu sé hún óbeint tengt inn í þær, en það eru orðin sem fylgdu er Danir skiluðu handritunum okkar: „Vær så god, Flatøbogen!“. Tilvitnanir úr skáldskap Halldórs Laxness fara fremstar í flokki eftirminni- legra orða úr bókmenntunum og þar skoraði línan „Þegar öllu er á botninn hvolft þá er lífið þó umfram alt saltfiskur en ekki draumaríngl“ hæst og þar næst á eftir kom Jón Hreggviðsson með spurningu sína úr Íslandsklukkunni: „Hvenær drepur maður mann, og hvenær drepur maður ekki mann?“ Orð Einars Ben: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“ sópuðu líka til sín þónokkrum atkvæðum. Ég er ekki Guðmundur Úr kvikmyndunum duttu ekki margar línur inn á borð, nema ein, sem fékk ótal atkvæði, en það eru orðin „Þungur knífur“ úr kvikmyndinni Hrafninn flýgur og gat einn álitsgjafinn þess að maður hitti varla Norð- mann eða Svía sem ekki bryddaði upp á þessum orðum. Af öðrum frösum sem Íslendingar hafa gripið á lofti úr sjónvarpinu, ýmist úr auglýsingum eða skemmti- þáttum, má nefna þá vinsælustu meðal álitsgjafa Fréttablaðsins orð Hemma Gunn: „Ekkert stress – veriði bless“ og framboðs slagorð Ástþórs Magnús- sonar: „Virkjum Bessastaði!“ Af ummælum allra síð- ustu ára komust þrjú þar ofarlega á blað og eru öll ættuð frá stjórnmálamönnum. „Tilfinningalegt svig- rúm“ er þannig að mati eins álitsgjafans orðið að frasa sem allir noti í dag sem og „Ég gerði tæknileg mistök“ Árna Johnsen. Vilmundur Gylfason þykir svo hafa fangað kjarnann í íslensku stjórnmála- og viðskiptalífi er hann notaði þessi orð sem eru fyrir löngu orðin klisja: „Löglegt en siðlaust“. Brynja, ég elska þig Allt frá því að Guðrún Ósvífursdóttir lýsti því yfir að þeim hefði hún verið verst er hún unni mest hafa Íslendingar gripið hin og þessi misdjúpvitru ummæli á lofti og haldið þeim þar í aldir og áratugi. Sem betur fer er engin sérvalin nefnd sem sér um að velja hvaða setningar úr sögu okkar skuli lifa áfram en hins vegar er hægt að fá fríðan hóp fólks til að segja hvaða línur sitja hvað fastast í minnum þeirra og telja atkvæðin. Júlía Margrét Alexandersdóttir komst að því að Íslendingum þykir hér um bil jafnvænt um frúna sem hlær í betri bíl og orðstírinn sem deyr aldregi. „ÉG ER EKKI GUÐMUNDUR“ Ein eftirminnilegustu ummæli seinni tíma þykja lína Mumma í Mótorsmiðjunni en í byrjun málsins var honum gjarnan ruglað saman við Guðmund í Byrginu. ÁLITSGJAFAR FRÉTTABLAÐSINS Anna K. Kristjánsdóttir vélstýra Auður Jónsdóttir rithöfundur Ásta Möller alþingismaður Baldvin Þór Bergsson fréttamaður Bjarni Brynjólfsson ritstjóri Bogi Ágústsson forstöðumaður Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur Bubbi Morthens tónlistarmaður Edda Andrésdóttir fréttamaður Egill Helgason dagskrárgerðarmaður Einar Már Guðmundsson rithöfundur Elín Arnar ritstjóri Elín Hirst fréttastjóri Ellert B. Schram alþingismaður Guðni Már Henningsson útvarpsmaður Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur Haukur Holm fréttamaður Heiðdís Lilja Magnúsdóttir ritstjóri Hjálmar Jónsson blaðamaður Inga María Leifsdóttir kynningarstjóri Jón Óskar Hafsteinsson myndlistarmaður Jón Trausti Reynisson ritstjóri Jónas Haraldsson ritstjóri Kristján Már Unnarsson fréttamaður Krummi (í Mínus) tónlistarmaður Linda Blöndal úrvarpskona Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður Ólafur Gunnarsson rithöfundur Páll Ásgeir Ásgeirsson rithöfundur Sigmundur Ernir Rúnarsson rithöfundur Siv Friðleifsdóttir alþingismaður Stefán Pálsson sagnfræðingur Steingrímur Sævarr fréttastjóri Þórarinn Þórarinsson ritstjóri Þórir Guðmundsson fréttamaður 1. SÆTI Þegar atkvæðin voru talin saman varð ljóst að tvær setningar bera höfuð og herðar yfir önnur eftirminnilega íslensk ummæli. Annars vegar eru það ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur, þann 17. júní árið 1994, sem sitja hvað fastast í minnum fólks: „Minn tími mun koma“ þegar hún sleit sig út úr Alþýðuflokknum og stofnaði Þjóðvaka. Hinsvegar er það 17 ára gömul ástarjátning Bubba Morthens til hans þá heittel- skuðu Brynju Gunnarsdóttur, sem stimplaði sig inn í vitund þjóðarinnar. Ummæli Jóhönnu eru þjóðinni ef til vill minnisstæðari en önnur þar sem segja má að hennar tími hafi svo nýlega runnið upp. Öllu sérstæðara er þó hve ummæli Bubba sitja í okkur, en líklegt er talið að fyrst hafi hann látið þessi orð falla opinberlega á tónleikum á Púlsinum sem hljóð- ritaðir voru á plötunni Ég er árið 1990 en platan kom út ári seinna. Kallaði hann þá fram í salinn áður en hann tók Stál og hníf: „Brynja, ég elska þig.“ Ummælin voru gripin á lofti og hafa lifað svo vel og lengi að fólk á erfitt með að muna hvort Bubbi sagði þetta fyrir tveimur árum, tólf eða sautján. Grínistar, áramótaskaup og annað hafa þátt sinn þátt í að halda línunni á lífi og svo vinsæl er hún að fyrr í mánuðinum skrifaði rithöfundur grein í Fréttablaðið með fyrirsögninni „Brynja, ég elska þig“ en greinin fjallaði um byggingarvöruverslanir. Kannski má líka segja að á þessum tíma, fyrir tíma Séð og heyrt, hafi Bubbi og Brynja verið okkar fyrsta ofurpar. ➜ ALLRA EFTIRMINNILEGAST MINN TÍMI MUN KOMA Dramatísk yfirlýsing Jóhönnu Sigurðardóttur lifir í minnum fólks enn þann dag í dag sem eftirminnilegustu ummæli Íslands. ➜ FLEYGUSTU ÍSLENDINGARNIR – brot af því besta Það er ekki á hverjum degi sem maður spyrðir saman Davíð Oddssyni og Magnúsi Þór Jónssyni – Megas. Þegar kemur að því að skoða hverjir komu oftast á blað með ummæli sín eru það þó þeir tveir sem tróna á toppnum. Davíð fyrir ummæli sem oftast eru sögð í hita leiksins, en enginn annar stjórnmálamaður komst svo oft á blað. Tilvitnanirnar í Megas voru hins vegar oftast í lögin hans og þar er greinilega í sérstöku eftirlæti: Spáðu í mig, þá mun ég spá í þig. Á NOKKUR EFTIRMINNILEG UMMÆLI Álitsgjafar Fréttablaðsins tíndu til ýmislegt annað en ástarjátningu Bubba sem eftirminnileg orð hans. „Feður og mæður, börnin ykkar munu stikna,“ úr laginu Hiroshima þykja ein af þeim eftirminnilegri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.