Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 102
26 18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
Umhverfið í enska boltanum hefur breyst mikið undan-farin ár. Auðkýfingar hafa verið að ná völdum í stærstu félögunum og eru þeir flestir af erlendu bergi brotnir.
Sitt sýnist hverjum um þessa þróun en eigendurnir hafa klár-
lega litað lífið í ensku úrvalsdeildinni og almenningur virðist
hafa gaman af því að fylgjast með ótrúlegum lífsstíl þessara
milljarðamæringa. Fréttablaðið varpar ljósi á nokkra af skraut-
legustu og umdeildustu eigendunum í ensku úrvalsdeildinni.
Skrautlegir eigendur
í enska boltanum
Eigandi Newcastle United og fimmti ríkasti
eigandinn í ensku úrvalsdeildinni. Keypti
félagið síðasta sumar á 134 milljónir
punda.
Gríðarlega vinsæll hjá stuðningsmönnum
félagsins en Ashley mætir á alla leiki í lið-
streyju félagsins númer 17. Það er treyja
Alans Smith en Ashley segir að Smith sé
leikmaður að sínu skapi – sýni gríðarlegan
vilja og baráttu allan tímann. Ashley ber
virðingu fyrir slíku.
Hann er einnig óhræddur við að skemmta
sér í treyjunni með stuðningsmönnum en
hann skellti sér á djammið með þeim á dög-
unum og bauð drykki á línuna. Sló svo
endanlega í gegn í nágrannaslagnum gegn
Sunderland á útivelli á dögunum. Til stóð að
meina honum aðgang að heiðursstúkunni í
Newcastle-treyjunni þar sem talið var að
það myndi hleypa illu blóði í stuðningsmenn
heimaliðsins. Ashley tók sig þá til og sat
með áhorfendum Newcastle svo hann gæti
verið í treyjunni.
Annars er lítið vitað um einkalíf eigand-
ans, sem er ákaflega dulur og gefur nánast
aldrei viðtöl. Býr einn og er skilinn við
sænska eiginkonu sína til fjórtán ára.
Mike Ashley, eigandi Newcastle:
Vinsæll hjá stuðningsmönnum
Keypti Manchester United í maí árið 2005.
Kaup hans féllu ekki í kramið hjá stuðn-
ingsmönnum, sem vildu ekki sjá Glazer-
fjölskylduna nálægt Old Trafford og mót-
mæltu kaupunum harðlega.
Vinsældirnar hafa þó aukist enda hefur
Glazer-fjölskyldan sett meira fé í leik-
mannakaup og annað en búist var við. Synir
Malcolms sjá alfarið um rekstur félagsins
en eigandinn hefur aldrei séð leik á Old
Trafford.
Glazer hefur lengi haft mikinn áhuga á
íþróttaliðum en hann er einnig eigandi
bandaríska ruðningsliðsins Tampa Bay
Buccaneers sem vann Super Bowl árið 2002.
Sjálfur býr hann í Flórída með eiginkonu
sinni Lindu, en þau eiga fimm syni. Glazer
er ekki mjög heilsuhraustur þessa dagana
eftir að hafa fengið tvö slög á síðasta ári
sem urðu til þess að hann tapaði hreyfigetu
í hægri fæti og hendi.
Malcolm Glazer, eigandi Man. Utd:
Aldrei séð leik á Old Trafford
Keypti Chelsea sumarið 2003. Þurrkaði
umsvifalaust upp skuldir félagsins og setti
gríðarmikið fé í leikmannakaup. Talið er að
hann hafi eytt 440 milljónum punda á fyrstu
þrem árunum. Félagið hefur eðlilega tapað
miklu fé á stjórnartíma Abramovich en
stefnt er að því að það skili arði árið 2010.
Mætir á nánast alla leiki félagsins og er
gríðarlega virkur í stúkunni. Tekur mikinn
þátt í leiknum og fagnar mikið þegar Chel-
sea skorar.
Hefur einnig sett mikið fé í rússneska
landsliðið og sá til þess að Guus Hiddink
kom þangað en talið er að hann muni síðar
taka við Chelsea.
Abramovich er einn ríkasti maður heims
og er oft bendlaður við rússnesku mafíuna.
Hann var náinn Boris Jeltsín, fyrrverandi
Rússlandsforseta, og hans fjölskyldu. Er oft
talað um að samband hans og Pútíns, núver-
andi Rússlandsforseta, sé eins og samband
föður og sonar.
Roman Abramovich, eigandi Chelsea:
Náinn vinur Rússlandsforseta
Hugsanlega umdeildasti eigandinn í ensku
úrvalsdeildinni en hann náði völdum í
Manchester City síðasta sumar. Hafði lengi
haft áhuga á að eignast enskt knattspyrnu-
lið og var til að mynda talið um tíma að hann
myndi ná yfirráðum í Liverpool.
Er fyrrverandi forsætisráðherra Taí-
lands, þar sem valdatíð hans einkenndist af
spillingu og einræðistilburðum. Er einnig
talinn hafa framið gróf mannréttindabrot
þegar hann stýrði málum þar í landi.
Valdarán var síðan framið í Taílandi
þegar Shinawatra var erlendis á fundi hjá
Sameinuðu þjóðunum. Lokað var fyrir allar
vefsíður hans í landinu í kjölfarið, banka-
reikningar frystir og hann síðan ákærður
fyrir fjármálamisferli og almenna spill-
ingu, enda efnaðist hann óeðlilega mikið á
valdatíma sínum. Á því vart afturkvæmt til
heimalandsins.
Hann er gifur Potjaman Shinawatra og
saman eiga þau tvær dætur. Stuðningsmenn
City kalla hann Frank og þá í höfuðið á
Frank Sinatra þar sem eftirnöfnin eru lík.
Thaksin Shinawatra, eigandi Man. City:
Kallaður Frank Sinatra
George Gillett og Tom Hicks eru eigendur
Liverpool og keyptu klúbbinn saman á upp-
hæð sem talin er nema allt að 435 milljónum
punda, með byggingu nýs leikvangs. Fyrir
kaupin áttu þeir báðir stóran hlut í öðrum
íþróttafélögum. Gillett á um áttatíu pró-
senta hlut í kanadíska íshokkíliðinu Montreal
Canadiens auk Nascar-kappakstursliðsins
Evernham Motorsports og Hicks er eigandi
íshokkíliðsins Dallas Stars auk hafnabolta-
liðsins Texas Rangers, sem hann keypi í
slagtogi með George W. Bush, þáverandi
ríkisstjóra í Texas og núverandi forseta
Bandaríkjanna.
Gillett byrjaði veldi sitt á því að sameina
þrjár litlar sjónvarpsstöðvar í Wisconsin í
Bandaríkjunum, en árið 1984 voru sjón-
varpsstöðvarnar orðnar átta, auk tuttugu og
tveggja blaðafyrirtækja. Gillett var hins
vegar nálægt gjaldþroti snemma á tíunda
áratugnum, en náði heldur betur að rífa sig
upp úr því.
Hicks, sem er sonur útvarpsstöðvar-
eiganda í Texas, hafði sjálfur alla tíð mikinn
áhuga á viðskiptum og útskrifaðist með
MBA-gráðu. Hann átti á sínum tíma hlut í
gosdrykkjaverksmiðjum sem framleiddu
meðal annars drykkina Dr. Pepper og 7-up,
áður en hann færði sig yfir í íþróttirnar.
Fyrirtækið Hicks Holdings á meðal annars
stóran hlut í nokkrum raftækjafyrirtækjum
í Kína, dýramatsframleiðslufyrirtækjum í
Argentínu og fasteignafyrirtækjum víða
um heim.
Gillett og Hicks hafa sjálfir lýst því yfir
að þeir séu mjög stoltir af því að fá að taka
þátt í uppbyggingu Liverpool og ætli sér
ekki að styggja ríka hefð félagsins. Fyrir
þetta eru þeir almennt vel liðnir hjá
aðdáendum Liverpool.
George Gillett og Tom Hicks, eigendur Liverpool:
Vilja vernda ríka hefð klúbbsins
Alisher Usmanov og Stan Kroenke: Eru báðir
stórir hluthafar í Arsenal og hafa verið orð-
aðir við að vilja stækka hluti sína í félaginu.
Usmanov keypti 14,58% hlut í Arsenal í ágúst
á þessu ári og hlutur í eignarfélagi hans innan
klúbbsins, sem er stjórnað af David Dein,
fyrrverandi aðstoðarstjórnarformanni Ars-
enal, var búinn að hækka í 23% í september.
Eignarfélag Kroenke á rúmlega 12% eignar-
hlut í Arsenal.
Usmanov er sonur lögfræðings og lagði
sjálfur stund á lögfræði í skóla, en sú mennt-
un hans kom ekki veg fyrir að hann sæti í
fangelsi í sex ár snemma á áttunda áratugn-
um fyrir meint fjársvik og peningaþvott, auk
þess að reyna ólöglega yfirtöku á nokkrum af
verðmætustu demantanámum heims.
Usmanov er í 143. sæti á lista Forbes yfir rík-
ustu menn heims en áður en hann eignaðist
hlut í Arsenal var hann búinn að einbeita sér
fyrst og fremst að fyrirtækjum í járn-, stál-
og olíuiðnaðinum í Rússlandi, auk þess að
eiga fjöldann allan af fjölmiðlafyrirtækjum í
Rússlandi. Kroenke er þekktur sem einn rík-
asti maður heims og mikill íþróttamógúll í
Bandaríkjunum. Hann er meðeigandi NFL-
ruðningsliðsins St. Louis Rams og eigandi
NBA-körfuboltaliðsins Denver Nuggets,
NHL-íshokkíliðsins Colorado Avalanche og
MLS-fótboltaliðsins Colorado Rapids. Kro-
enke er kvæntur Anne Walton, sem stendur
heldur ekki höllum fæti fjárhagslega en hún
er erfingi Wal-Mart verslanakeðjunnar.
Alisher Usmanov og Stan Kroenke, hluthafar í Arsenal:
Vilja stórauka hlut sinn í liðinu
Meðfylgjandi er listi yfir þau lið í ensku
úrvalsdeildinni sem eru í eigu einstakl-
inga. Útlendingar eru þar í miklum meiri-
hluta:
Aston Villa Randy Lerner, USA
Chelsea Abramovich, Rússi
Fulham M. Al-Fayed, Egypti
Liverpool Hicks og Gillett, USA
Man. City Shinawatra, Taíland
Newcastle Ashley, England
Portsmouth A. Gaydamak, Rússi
Reading John Madejski, England
Tottenham Joe Lewis, England
West Ham Björgólfur Guðm., Ísland
Wigan David Whelan, England
➜ EIGENDURNIR
Tölurnar eru í milljörðum punda:
Roman Abramovich, Chelsea 10,8
Joe Lewis, Tottenham 2,8
Alisher Usmanov, Arsenal 2,76
Mike Ashley, Newcastle 1,6
Malcolm Glazer, Man. Utd 1,25
Stanley Kroenke, Arsenal 1,2
Thaksin Shinawatra, Man. City 0,640
Björgólfur Guðmunds., W. Ham 0,593
Tom Hicks, Liverpool 0,5
➜
RÍKUSTU EIGENDURNIR