Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 106
30 18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> VISSIR ÞÚ?
Rapparinn Diddy eða P. Diddy eða Puff
Daddy er mjög hrifinn af því að þvo
sér. Hann sagði einhverju sinni frá því í
viðtali að hann færi í bað á hverri ein-
ustu nóttu kl. 3 eða um það leyti sem
hann kemur heim til að slappa af. Á
morgnana fer hann svo alltaf í sturtu
til þess að hressa sig við
og að lokum sprangar
hann um nakinn í tíu
mínútur til þess að þorna.
Fjöldi góðra gesta fagnaði tilkomu nýja
fatamerkisins E-label á Apótekinu síðast-
liðinn fimmtudag. Línan, sem er afrakstur
samstarfs Andreu Brabin, Ástu Kristjáns-
dóttur og fatahönnuðarins Ásgríms Más
Friðrikssonar, verður eingöngu seld á
netinu á slóðinni www.e-label.is.
„Verslun á netinu er alltaf að aukast, og svo er
þetta líka tilvalið fyrir fólk úti á landsbyggðinni,“
útskýrir Ásta. Línunni er ætlað að sameina flotta
hönnun og þægileg föt, og spannar allt frá
hálsklútum til yfirhafna. „Það er allt svart, svo
þetta er mjög klassískt og hentar breiðum hópi.
Svo lagar fólk þetta bara að sínum stíl með sínum
aukahlutum,“ segir Ásta.
Útgáfu E-label fagnað
VALDÍS KOLBEINSDÓTTIR, HENDRIKKA WAAGE OG ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÁSGRÍMUR MÁR FRIÐRIKSSON
SVALA LIND ÞORVALDSÓTTIR OG SYLVÍA
LIND ÞORVALDSDÓTTIR
GUÐLAUG ÁGÚSTA HALLDÓRSDÓTTIR
OG RICHARD SCOBIE
THELMA ÞÓRÐARDÓTTIR OG ROMAN
OLNEY
Það var mikið um að vera á Apótekinu á fimmtudagskvöld, þegar útkomu
línunnar E-label var fagnað. Ásgrímur Már, sem hannaði línuna, lét sig ekki
vanta, en fyrir aftan hann glittir í eina útgáfu af tískugjörningunum sem gestir
gátu virt fyrir sér. Skartgripahönnuðurinn Hendrikka Waage mætti á svæðið, og
Gulla, kennd við Má mí mó, virtist skemmta sér vel eins og aðrir góðir gestir.
TÍSKUGJÖRNINGAR OG GÓÐIR GESTIR
Rapparinn Eminem vill ekki fara á tónleikaferð um
Bandaríkin af ótta við að valda dóttur sinni von-
brigðum. Hin sex ára Hailey vill að pabbi sinn sé
alltaf heima og hefur rapparinn ákveðið að dóttir sín
verði framvegis númer eitt í lífi sínu.
„Ég hef farið oftar í tónleikaferðir en hann vegna
þess að hann vill vera til staðar fyrir dóttur sína,“
segir vinur Eminem, rapparinn 50 Cent. „Margir
skilja ekki hvers vegna hann haldi ekki fleiri
tónleika en Hailey setti oft kassa fyrir útidyrahurð-
ina til að hann kæmist ekki út. Hann flaug alltaf
heim með einkaþotu eftir hverja tónleika til að geta
ekið henni í skólann morguninn eftir. Þess vegna var
erfitt fyrir hann að fara í tónleikaferðir.“
Heima fyrir Hailey
EMINEM Rapparinn Eminem tekur fjöl-
skylduna fram yfir tónleikaferðir.
„Það er búið að vera ofboðslega skemmti-
legt að taka þátt í þessu,“ segir tónlistar-
konan Hera Hjartardóttir sem hlaut á
dögunum um sex hundruð þúsund króna
styrk úr sjóði á vegum ríkisstjórnar Nýja-
Sjálands. Var hún, ásamt fjórum öðrum
umsækjendum, valin úr 250 manna hópi. Er
sjóðnum ætlað að styðja við bakið á
tónlistarmönnum sem starfa í heimalandinu
og hvetja þá til að taka upp lög.
Hera nýtti styrkinn til að taka upp
smáskífulagið Feel so Good og nýtt mynd-
band við það. Upptökustjóri lagsins var
David Long, sem vann hljóðið í kvikmynd-
unum um Hringadróttinssögu. Auk þess
vann hann að laginu Gollum´s Song sem
Emilíana Torrini söng í The Lord of the
Rings: The Two Towers. „Við kláruðum að
taka upp lagið fyrir nokkrum vikum. Við
tókum upp myndbandið um síðustu helgi og
þetta er æðislega gott „team“ sem ég er að
vinna með,“ segir Hera.
Nýja lagið kemur út í byrjun næsta árs í
Nýja-Sjálandi en hugsanlega aðeins fyrr
hér heima. „Það fjallar um það sem er svo
æðislega gott að gera en er kannski ekki
endilega normið,“ segir hún um Feel so
Good. Ekki er víst hvenær næsta plata
Heru kemur út en síðasta plata hennar,
Don´t Play This, kom út hérlendis fyrir
tveimur árum við prýðilegar undirtektir.
Hera hefur undanfarið kennt krökkum
lagasmíðar víða um Nýja-Sjáland og hefur
haft mjög gaman af því. „Það hefur verið
ofboðslega skemmtilegt. Ég hef farið í
skólana og haldið fimm námskeið,“ segir
Hera, sem er ekki á leiðinni til Íslands
alveg í bráð. „Það er möguleiki á að það
verði í kringum mars á næsta ári, við sjáum
til.“ - fb
Hera fékk vænan tónlistarstyrk
HERA HJARTARDÓTTIR Tónlistarkonan
Hera Hjartardóttir lauk nýverið við upp-
tökur á laginu Feel so Good.
MYND/DUKE MULE
ALMA HRÖNN ÁGÚSTDÓTTIR OG
RAKEL UNNUR THORLACIUS
Samkeppni um merki Þekkingrsetursins
á Egilsstöðum ehf.
Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. stendur nú fyrir samkeppni um merki
Þekkingarsetursins. Öllum er heimil þátttaka. Útfærsla verkefnisins er frjáls
en merkið verður að hafa vísun í starfsemi Þekkingarsetursins. Merkið
mun verða einkennistákn Þekkingarsetrusins og notað á öll kynningargögn
sem því tengjast. Merkið verður eign Þekkinarsetursins. Hægt er að skila
inn tillögum á ýmsu formi, til dæmis á pappír, unnið í tölvu, í þrívídd sem
skúlptúr eða þrívíddartölvugrafík. Hönnuði merkisins er ætlað að fullhanna
tillögu sína.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu tillögurnar, þ.e. í fyrstu verðlaun verða
veitt 350.000kr, 100.000kr í önnur verðlaun og 50.000kr í þriðju verðlaun.
Hvað er Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf?
Þekkingarsetrið á Egilsstöðum var stofnað í apríl 2007, en tilgangur þess
er að vera miðstöð þjónustu- og rannsóknastofnana á Egilsstöðum. Í þeim
stofnunum sem standa að Þekkingarsetrinu eru stundaðar umfangsmiklar
sjálfstæðar rannsóknir, en auk þess taka þær þátt í innlendum og
erlendum rannsóknarverkefnum. Stofnanirnar hafa einnig á hendi
fræðslustarfsemi, en Þekkingarnet Austurlands er meðal aðila Þekk-
ingarsetursins.
Húsnæði Þekkingarsetursins er á Vonarlandi á Egilsstöðum. Á árinu 2008
verður byggt nýtt glæsilegt húsnæði undir starfsemina sem hýsa mun þær
stofnanir sem á Vonarlandi eru auk þeirra sem þangað munu fl ytja.
Aðilar sem eru með starfssemi á Vonarlandi í dag eru:
Fornleifavernd ríkisins, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi,
Umhverfi sstofnun og Þekkingarnet Austurlands
Aðilar sem munu verða með starfssemi í Þekkingarsetrinu frá og
með 2009 eru:
Búnaðarsamband Austurlands, Heilbrigðiseftirlit Austurlands, Héraðs-
og Austurlandsskógar, Landgræðsla ríkisins, Markaðsstofa Austurlands,
Náttúrustofa Austurlands, Skógrækt ríkisins, Stofnun fræðasetra Háskóla
Íslands og Þróunarfélag Austurlands.
Velunnarar Þekkingarsetursins eru: Alcoa - Fjarðaál, Fljótsdalshérað,
Háskólinn á Akureyri, Hitaveita Egilsstaða og Fella og Nýsköpunarmiðstöð
Íslands.
Tillögum skal skila á skrifstofu Þekkingarsetursins á Egilsstöðum ehf,
Tjarnarbraut 39a, 700 Egilsstöðum eða á netfangið
postur@thekkingarsetrid.com. fyrir 3. janúar 2008.
Nánari upplýsingar veitir Ívar Jónsson, sími 4711700. Þann 25. janúar 2008
verða vinningstillögur kynntar.
Vissi ekki af lýtaað-
gerð móður sinnar
Vinur Dondu og Kanye West
segir að rapparinn Kanye hafi
ekki vitað af því að móðir hans,
Donda, hygðist leggjast undir
hnífinn. Hún gekkst undir tvö-
falda lýtaaðgerð á föstudaginn
fyrir viku og lést daginn eftir.
Talið var að dauðsfallið hefði
komið til vegna eftirkasta
aðgerðarinnar, en krufning sem
framkvæmd var í vikunni gat
ekki staðfest það og dánarorsök
er því enn óljós.
Kanye ku hafa verið staddur í
London þegar hann fékk fregn-
irnar af andláti móður sinnar.
„Ég held ekki að Kanye hafi
vitað af því að Donda ætlaði í
aðgerðina, og vissulega ekki
hversu umfangsmikil aðgerðin
var,“ segir vinur fjölskyldunnar
við New York Daily News.
„Hann elskaði hana og studdi
hana eins og hún var. Honum
fannst hún falleg en Donda var
ósátt við líkama sinn eins og
margar konur,“ segir vinurinn.
Jarðarför Dondu mun fara
fram næstkomandi þriðjudag í
Oklahoma City.
SYRGIR MÓÐUR SÍNA Jarðarför Dondu
West fer fram í Oklahoma næstkom-
andi þriðjudag. NORDICPHOTOS/GETTY