Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 55
Lækjarhjalli 24
200 Kópavogur
Vandað og gott fjölskylduhús.
Stærð: 268,3 fm
Fjöldi herbergja: 6
Byggingarár: 1989
Brunabótamat: 39.100.000
Bílskúr: Já
Verð: 0
Glæsilegt og gott 6herb.fjölskylduhús með bílskúr, samtals skráð 268,3 fm en
að sögn eiganda er um 30fm óskráð rými að auki. Eignin er vel staðsett í
suðurhlíðum Kópavogs, innarlega í rólegri botlangagötu með góðu útsýni.Húsið
er nýlega málað að utan, með nýlegum þakkanti og garðurinn er í góðri rækt
með timburverönd og heitum potti. Innkeyrslan er hellulögð og gengið er inn í
húsið á efri hæð. Fullkomið þjófa og brunavarnarkerfi er í húsinu. Á efri hæð
hússins er forstofa, gestasalerni með innréttingu, eldhús með sérsmíðaðri
innréttingu úr birkirótarspón, nýlegum stáltækjum og geymslu/búri. Rúmgóðar
parketlagðar stofur með útgengi á svalir og niður í garðinn. Á gangi eru loft
upptekin og fallegir þakgluggar hleypa birtu inn. Á neðri hæð eru 4 herbergi,
innaf hjónaherbergi er snyrting og útgengt úr herberginu á timburverönd með
heitum potti. Aðalbaðherbergi er bæði með baðkari og sturtu, innaf því er
flísalagt rými tilvalið fyrir gufubað. Stórt þvottahús með góðri innréttingu og
útgengi á verönd og stór geymsla innaf þvottahúsi. Þetta er virkilega falleg og
afar vönduð eign.
Torg
Bergsteinn
Gunnarsson
Lögg. fasteignasali
Berglind Hólm
Sölufulltrúi
berglind@remax.is
Hafdís
Sölufulltrúi
hafdis@remax.is
Opið
Hús
Opið hús í dag kl 15.00-15.30 Óskað er eftir Tilboði!
RE/MAX Torg - Garðatorgi 5 - 210 Garðabær - Sími: 5209595 - www.remax.is
694 4000
895 6107
Húsalind 10
201 Kópavogur
Möguleiki á að stækka upp í risið.
Stærð: 145,9 fm
Fjöldi herbergja: 3-4
Byggingarár: 1997
Brunabótamat: -
Bílskúr: Já
Verð: 48.900.000
Fallegt parhús á einni hæð með miklum möguleika á stækkun upp í ris. Í risi er hægt að ná um 50fm í skráðum
fermetrum til stækkunar við húsið. Allar rafmagnslagnir og skolp var leit upp við byggingu húsins og á einungis
eftir að halda áfram með þær uppi. Teikningar af breytingunum er til hjá byggingarfulltrúa. Húsið er 3ja herbergja
en auðvelt er að bæta við herbergi þar sem sjónvarpsholið er og var það skipulagt sem herbergi á upprunalegum
teikningum. Stofan er rúmgóð með stórum gluggum og útgengið út á stóran pall sem snýr í vestur og suður með
góðum skjólvegg. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðum fataskápum. Barnaherbergið er einnig með
fataskápum. Baðherbergið er bæði með sturtuklefa og baðkari ásamt því er virkilega gott skápapláss í
innréttingunni. Eldhúsinnrétting er U-laga með hvítum sprautulökkuðum hurðum. Góður borðkrókur er við glugga.
Þvottahús skilur á milli íbúðarýmis og bílskúrs og er innangengt á milli. Góð geymsla er innaf bílskúrnum sem er
útgengt frá út í bakgarðinn. Gólfefni á eigninni eru flísar og rauðeikar parket. Garðurinn umhverfis húsið er
eingöngu pallur, hellur og fjölærar plöntur, ekkert gras.
Torg
Bergsteinn
Gunnarsson
Lögg. fasteignasali
Berglind Hólm
Sölufulltrúi
berglind@remax.is
Hafdís
Sölufulltrúi
hafdis@remax.is
Opið
Hús
Opið hús í dag milli kl.14:00-14:30
RE/MAX Torg - Garðatorgi 5 - 210 Garðabær - Sími: 5209595 - www.remax.is
694 4000
895 6107
Rauðagerði 14
108 Reykjavík
Eignin er laus við kaupsamning!
Stærð: 166,5 fm
Fjöldi herbergja: 4-5
Byggingarár: 1960
Brunabótamat: 21.920.000
Bílskúr: Já
Verð: 38.900.000
Falleg björt og mjög rúmgóð efri sérhæð með sérinngangi og bílskúr á þessum eftirsótta stað miðsvæðis í
Reykjavík. Forstofa er flísalögð og þaðan er gengið upp parketlagðan stiga í íbúðina og inn á rúmgott og bjart
parketlagt hol með fataskápum. Stofur eignarinnar eru mjög rúmgóðar og bjartar með góðri lofthæð og parketi á
gólfi. Tvöföld hurð er inn í stofurnar frá svefnherbergisgangi og einnig er tvöföld hurð út á suðursvalir frá
borðstofu, óbyggt svæði er við þá hlið hússins og mikil veðursæld. Eldhús er opið á tvo vegu með
eikarinnréttingu, keramikhelluborði og rúmgóðum borðkrók. Svefnherbergi eignarinnar eru 3 öll með fataskápum
og þvottahús er innan íbúðar. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með rúmgóðri innréttingu og baðkari með
sturtuaðstöðu. Bílskúr fylgir eigninni og útgengt er frá honum í sameiginlegan garð sem er fallegur en þægilegur í
umhirðu. Þetta er virkilega rúmgóð og skemmtileg sérhæð, mjög miðsvæðis í borginni og stutt í allar áttir.
Torg
Bergsteinn
Gunnarsson
Lögg. fasteignasali
Berglind Hólm
Sölufulltrúi
berglind@remax.is
Hafdís
Sölufulltrúi
hafdis@remax.is
Opið
Hús
Opið hús í dag kl 17.00-17.30
RE/MAX Torg - Garðatorgi 5 - 210 Garðabær - Sími: 5209595 - www.remax.is
694 4000
895 6107