Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 104
18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
Tíminn líður hratt,
það getum við flest
verið sammála um.
Sumarið virðist
bara hafa klárast í
gær en samt eru
allt í einu fimm vikur
til jóla í dag. Sjálf hef
ég aldrei verið neitt
rosalega mikið jólabarn – nema
kannski þegar ég var barn, og það
á nú við um flesta. Þá fylgdu jólun-
um heldur ekki stress og skipu-
lagning, heldur snerist þetta að
mestu leyti um hvað kæmi í skóinn
og hvaða gjafir yrðu undir trénu.
Í dag snýst tilhlökkunin aðallega
um fríið sem fylgir jólunum og það
að fá fjölskyldumeðlimi og vini
sem búa í útlöndum til landsins –
allavega hjá mér. Jólin sjálf snúast
svo meira um góðan mat og góðan
félagsskap en nokkuð annað.
Vegna þess hversu lítið jólabarn
ég er hef ég aldrei skilið fólk sem
er komið í jólaskap í byrjun
október. Mér fannst fáránlegt að
ganga inn í Kringluna og þurfa að
sjá jólaskraut út um allt þegar
tveir mánuðir eru til jóla. Pantanir
fyrir jólahlaðborð, auglýsingar
fyrir allt sem mögulega gæti
tengst jólunum, jólakort og jóla-
lög, allt er þetta orðið áberandi
fyrir löngu síðan. Ég virtist samt
vera í minnihluta með þessa
skoðun mína. Og í síðustu viku gaf
ég loks undan.
Eftir að hafa séð fullan vörubíl
af jólatrjám keyra fram hjá mér á
Miklubrautinni ákvað ég að gera
tilraun. Ég fór heim og hlustaði á
jólalög og það leið ekki á löngu þar
til jólaskapið helltist yfir mig.
Eftir að hafa hlustað á nokkur
vel valin stemningslög fór ég að
hugsa betur út í þetta. Það er
ekkert svo galið að komast í jóla-
skapið svolítið snemma. Það er
nefnilega svo oft sem stressið
fyrir þessa hátíð nær tökum á
manni, og þá er ekkert pláss fyrir
jólaskapið. Þetta er sérstaklega
gott fyrir fólk eins og mig, sem
Háskóli Íslands heldur í prófagísl-
ingu nánast fram að Þorláksmessu.
Með þessu móti er bara hægt að
skapa sér jólastemninguna í nóv-
ember og taka svo pásu frá henni á
meðan mesta stressið gengur yfir.
STUÐ MILLI STRÍÐA Um jólaskap og jólastress
ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR HEFUR GERT UPPGÖTVUN
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jiminn... Það er naumast
að líkamsræktin er farin að
skila sér!
Hey, hey! Hm! Hér hafa
hlutirnir stækkað
sýnist mér!
Já, finnst
þér ekki?
Nokkrar magaæf-
ingar ættu að laga
það, held ég!
Takk fyrir
það!
Ég ætla heim til
Stanislaws
Smá breyting... Ég ætla
heim til Söru.
Flott, við sjáumst
hjá Tim.
Finnst þér að við
ættum að gefa
Palla farsíma,
svo við vitum
hvar hann sé
niðurkominn?
Hann
þarf ekki
farsíma,
hann þarf
gervi-
hnattaeftirlit!
Mig langar að vita hvort
hann veit að ég hef ekki
hugmynd um hvert ég
er að fara.
Hvað ertu að lesa,
Hannes? Kalla
kanínu
Ég man eftir henni. Það er þessi
með feldi á öllum síðunum,
ekki satt?
Jú A-ha.
Ertu hrifinn af
kanínum?
Það væri fróðlegt að vita hversu
margar þurfti að flá til að gera
bókina.
Þeir eru svo
sætir, eru
þeir allir
húsvanir?
Ókeypis
kettlingar
SAGA UM FORBOÐNA ÁST
MEÐ TÓNLIST EFTIR
LAY LOW
„Þetta er falleg sýning...
ákaflega sterk... með því að
taka Ökutíma til sýningar hefur íslenskt leikhús stigið feti
framar... LA – þar sem allt blómstrar og grær... rigna yfir
sýninguna stjörnum.”
MK, Mbl
„Þetta er stórgóð sýning í einkar vel heppnaðri umgjörð”
EB, Fréttablaðið
„LA nýtur nú vinsælda og virðingar í samfélaginu sem
önnur leikhús mega öfunda það af... mjög vel unnin”
JVJ, DV
„Ég er djúpt snortin... Stórkostlegur leiksigur...
mjög áhrifamikil sýning”
SLG, RÚV
„stórkostlegan samleik...beint í hjartastað...”
IS, Kistan
„djúpt og áhrifamikið... rússíbanaferð... enn einn sigurinn!”
VAJ, landpostur.is
„magnaða sýningu... opnar augu og snertir, leikhús sem
skiptir máli”
JJ, Dagur.net
„hittu mann beint í hjartastað... afar snjöll... Akureyringar
eru öfundsverðir af þessari sýningu”
SA, TMM
„Þessi sýning nær manni svo sannarlega... lifir virkilega
með manni og vekur mann til umhugsunar ...
LA sýnir mikinn metnað í verkefnavali”
ÞES, Víðsjá, RÚV
Afbragðs dómar!
Miðasala: 4 600 200 I netsala: leikfelag.is
ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI!
Í samstarfi við
Næstu sýningar:
7., 9., 10., 14., 16., 17., 22., 23., 24., 29., 30. nóv
og 2., 6., 7., 14 des.
Allt að seljast upp!
14., 16., 7., 22., 23., 4., 30. nóv og 2., 5.,
7., 14., 15., 29., 30. des.