Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 109
SUNNUDAGUR 18. nóvember 2007 33
Breski grínistinn Ricky Gervais,
hvað þekktastur fyrir grínþætt-
ina The Office og Extras, hafnaði
tilboði um að vinna með goðsögn-
inni Woody Allen. Hann segist
telja að Allen hafi misst hæfileik-
ann til að gera góðar myndir.
Gervais bauðst hlutverk í einni
af nýrri myndum Allens, en hætti
við þegar hann sá hverjir
mótleikarar hans yrðu. „Þegar ég
sá restina að leikhópnum – annað
breskt fólk úr sjónvarpinu – hætti
ég bara við. Ég hugsaði: það er
ekkert skemmtilegt við þetta,“
segir Gervais. „Hann heldur að
þetta fólk sé hæfileikaríkt af því
hann er hrifinn af hreimnum.
Woody Allen er ekki lengur
Woody Allen,“ segir háðfuglinn.
Neitaði
Woody Allen
Hljómsveit gítarleikarans Björns
Thoroddsen, Cold Front, hefur
gefið út sína aðra plötu sem nefnist
Full House. „Ég er búinn að þvæl-
ast í útlöndum síðastliðin fimm ár
og þetta er árangurinn af þeirri
samvinnu,“ segir Björn, sem
semur öll lögin á plötunni.
Cold Front var stofnuð í Kanada
af Birni, trompetleikaranum
Richard Gillis, stjórnanda stór-
sveitar Winnipegborgar, og banda-
ríska kontrabassaleikaranum
Steve Kirby. Í sumar bætt-
ust síðan í hópinn píanist-
inn Will Bonnes, sem er
talinn einn sá efnileg-
asti í Kan-
ada, tromm-
arinn Rob
Siwik og
saxófónleik-
arinn Jonat-
han Stevens.
„Þetta
eru mikl-
ir þunga-
vigtamenn og það er frábært að fá
að vera með í þessum hópi. Maður
hafði aldrei spáð í að maður kæm-
ist nokkurn tímann í þennan
flokk,“ segir Björn.
Cold Front gaf út samnefnda
verðlaunaplötu árið 2005 og hlaut
Björn Íslensku tónlistarverðlaun-
in fyrir besta frumsamda djass-
verkið það árið. Nýja platan er
töluvert poppaðari en sú fyrri þó
svo að djassinn sé ennþá í fyrir-
rúmi. Í tilefni af útgáfunni spilar
Cold Front á Nasa 18. janúar. - fb
Björn í góðum hópi
BJÖRN THOR-
ODDSEN Gítar-
leikarinn Björn
Thoroddsen
hefur gefið út
aðra plötu með
hljómsveitinni
Cold Front.
Þríeyki snýr bökum saman
EINAR ÁGÚST Fyrsta sólóplata
Einars, Það er ekkert víst að það
klikki, er væntanleg.
Vinalega leikkonan Jennifer
Aniston hefur verið orðuð við
annan hvern karlmann í Holly-
wood síðan hjónabandi hennar við
Brad Pitt lauk. Kærasti augna-
bliksins er leikarinn Jason Lewis
úr sjónvarpsþáttunum Beðmál í
borginni. Þar lék hann Smith
Jones, sjóðheitan kærasta
Samönthu. Lewis var áður í
sambúð með leikkonunni Rosario
Dawson.
Kunnugir segja parið eiga
furðulega margt sameiginlegt og
smellpassi saman. Þau vilji þó
halda sambandinu leyndu enn um
sinn vegna þeirrar pressu sem
frægð Aniston
setur á öll
hennar
ástarsam-
bönd.
Nýr kærasti
Aniston
JENNIFER
ANISTON
Á nýjan
kærasta úr
Sex and the
City.
EKKI SAMI
MAÐUR Gervais
segir Allen vera
farið að förlast í
kvikmyndagerð-
inni.
NORDICPHOTOS/GETTY
HARA-SYSTUR
Hara-systurnar Rakel
og Hildur verða vænt-
anlega eldhressar á
útgáfutónleikunum.
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Sálarmaðurinn Guð-
mundur Jónsson heldur
útgáfutónleika ásamt
Hara og Einari Ágústi.
B&L
Guðmundur Jónsson, Hara-systur
og Einar Ágúst Víðisson ætla að
snúa bökum saman og halda sam-
eiginlega útgáfutónleika á Nasa
29. nóvember.
„Við ætluðum að halda sér
útgáfutónleika en við þurfum
hvort sem er að syngja með Guð-
mundi þannig að við ákváðum að
slá þessu upp í sameiginlega tón-
leika,“ segir Hara-systirin Hildur,
en þær sungu bakraddir á plötu
Guðmundar, Fuður. Guðmundur
launaði þeim greiðann og samdi
fyrir þær lagið „Ég veit og skil“
sem er á fyrstu plötu systranna,
Bara. „Hann samdi eitt lag á plöt-
unni okkar, sem er danslag. Það er
ekki alveg hans stíll en það bara
kom virkilega vel út.“
Guðmundur segist hafa átt gott
samstarf með Hara-systrum. „Ég
fílaði alltaf hvernig þær hljóm-
uðu. Þær voru óskólaðar og systur
og líka mjög hressar stelpur. Ég
ákvað fyrir síðustu plötu að hafa
kvenmannsraddir á plötunni og
þær pössuðu mjög vel, enda vanar
að radda saman. Það er ekki öllum
gefið,“ segir Guðmundur.
Einar Ágúst kom inn í dæmið
eftir að hafa unnið með Guðmundi
við lag hans „Straumurinn“ sem
Einar syngur með Sigurjóni Brink
í Laugardagslögunum á RÚV.
Einar gefur á næstunni út sína
fyrstu sólóplötu, Það er ekkert
víst að það klikki, og mun því
kynna hana á Nasa.
„Þetta eru allt popptónlistar-
menn að gefa út íslenska popptón-
list, þannig að við ákváðum að slá
saman,“ segir Guðmundur. „Þetta
er svo sem ekkert nýtt undir
sólinni að listamenn hói sig saman
og búi til flottan pakka. Þetta verð-
ur gaman og vonandi sér fólk sér
fært að mæta.“ - fb