Fréttablaðið - 18.11.2007, Blaðsíða 101
SUNNUDAGUR 18. nóvember 2007 25
ávarpaður sérstaklega: „Dear mr.
Gísli Einarsson.“
Magga: Sjálf er ég hrifnust af
hreinlætispressunni. „Silit Bang!
Heldurðu að fötin þín séu hvít?
Þau eru ekki hvít – þau eru grá!“
Ég klæðist sjálf oft hvítum fötum
og það er kannski þess vegna sem
þetta æsir mig svona upp.
Gísli: Döbbaðar blettahreinsiaug-
lýsingar eru algjör snilld.
Magga Stína: Þær eru mjög
skemmtilegar.
Gísli Lúsíuengill
Nú eru ekki nema örfáar vikur til
jóla – ef þú ættir að klæða Gísla
upp í jólafötin þannig að eftir yrði
honum tekið á aðfangadagskvöld,
hvað myndir þú setja hann í,
Magga Stína? Og ef Björn Ingi og
Gísli Marteinn eru enn í fýlu út í
hvorn annan á Þorláksmessu og
Magga Stína ætti að miðla málum
áður en hátíðin gengur í garð –
hvað myndir þú láta Möggu Stínu
gera?
Magga Stína: Mér finnst hann Gísli
eitthvað svo englalegur að ég
hugsa að englabúningur færi
honum mjög vel. Jafnvel klæddi
ég hann upp eins og sænska lúsíu
– með fjögur kerti á höfði, í hvítan
kyrtil og með vængi þótt þeir séu
nú sennilega þarna nú þegar.
Gísli: Ég held það myndi fara mér
vel. En til að koma á sáttum milli
Björns Inga og Gísla Marteins
myndi ég fara með þá í hljómskála-
garðinn og láta Möggu Stínu syngja
fyrir þá lagið Fílahirðirinn frá
Súrín. Þar kemur fyrir þessi setn-
ing: Og svo kveðjumst við hryggir
og sáttir.
Magga Stína: Já! Ég er sem fyrr,
ávallt reiðubúin!
Frægt er orðið að Jói Fel lét tattú-
vera sig með mynstri þekkts hönn-
uðar. Eruð þið með tattú og ef þið
yrðuð að tattúvera eitthvert vöru-
merki á ykkur, hvaða vörumerki
yrði fyrir valinu? Hvert er ljótasta
vörumerkið að ykkar mati og af
hverju?
Magga Stína: Nei, ég hef ekki kom-
ist til þess en hef þó lengi þráð akk-
eri á minn upphandlegg.
Gísli: Ég er hins vegar með eitt hér
á upphandleggnum – þetta er sverð
og skjöldur. Var búið að langa til
þess í mörg ár. Þetta er til heiðurs
Íslendingasögunum. Ef ég yrði að
láta tattúvera mig með einhverju
vörumerki yrði það Land Rover.
Ég fékk nefnilega ´66 árgerð í fer-
tugsafmælisgjöf í vetur.
Magga: Kannski maður fengi sér
bara malt og appelsín. Svona rétt
fyrir jólin? Annars er ég svo ómeð-
vituð um vörumerki að það er erf-
itt fyrir mig að velja það ljótasta.
Gísli: Það er mikið til af ljótum
vörumerkjum en þessi stílíseruðu
vörumerki, eins og KB banki – bara
tvær kúlur og eitt strik, finnast
mér verst. Mér finnst að vöru-
merki eigi að vera með mynd, mér
fannst til dæmis Búnaðarbankinn
með sáðmanninn ágætt.
Magga Stína: Já, einmitt, það var
fallegt.
Gísli: Maður skildi alveg hvað
þetta var og þurfti ekki að láta
útskýra fyrir sér hvað þetta þýddi.
Hlutirnir mega vera einfaldir en
skýrir.
Krossbregður yfir Kiljunni
Stefið í Út og suður er fyrir löngu
orðið fræg. Finnst þér stefið
skemmtilegt, Magga Stína? Átt þú
einhverja plötu með Möggu Stínu,
Gísli? Hvert er eftirlætis auglýs-
inga- eða sjónvarpsþáttastefið
ykkar? En það hvimleiðasta?
Magga Stína: Já, mér finnst stefið
mjög skemmtilegt, svona kántrí.
Það höfðar til mín.
Gísli: Enda er það samið af próf-
essor í fóðurfræði við Landbúnað-
arháskólann á Hvanneyri.
Magga Stína: Já, það bara hlaut að
vera! Mér hafði næstum því dottið
það í hug.
Gísli: Ég á plötuna Magga Stína
syngur Megas. Og þar er Fílahirð-
irinn frá Súrín mitt uppáhald.
Magga Stína: En hvað sjónvarps-
stef varðar þá slær ekkert Staupa-
steinsstefið út.
Gísli: Mitt uppáhald var stefið við
þættina Onedin skipafélagið, sem
var á dagskrá fyrir einhverjum
þrjátíu árum síðan.
Magga Stína: Já, Spartakus. Það
var stórkostlegt! Við erum auðsjá-
anlega tvíburasálir.
Gísli: Leiðinlegasta stefið finnst
mér í Bachelor.
Magga Stína: Ég verð að fá að setja
spurningarmerki við eitt stef sem
ég hef heyrt að undanförnu og það
er í bókmenntaþættinum Kiljunni.
Ég segi fyrir mitt leyti að mér
bregður svo við þegar því er dúnd-
rað á milli atriða í þeim ágæta
þætti að það hefur flögrað að mér
að ég sé annað hvort arfaslöpp á
taugum eða að vitlaust stef hafi
verið valið. Með allri virðingu.
Að lokum. Að fyndni og gleði, kost-
um og löstum. Ef við kjósum
snöggvast, hver finnst ykkur þá
vera: a) Fyndnasti Íslendingurinn?
B) Hressasti Íslendingurinn? C)
Viðmótsþýðasti Íslendingurinn?
Magga Stína: Er ekki Laddi fyndn-
astur?
Gísli: Fyndnasti Íslendingur sem
ég þekki heitir Karl Sigtryggsson
og er myndatökumaður á RÚV og
fyndnasti Íslendingurinn sem ég
þekki ekki myndi vera Þráinn
Bertelsson. Barði hlýtur að vera
hressasti Íslendingurinn.
Magga Stína: Hressasti segirðu.
Það er nú varla Davíð Oddsson. Og
ekki er það Geir Haarde. Ætli ég
segi ekki bara líka Barði. Hann er
á góðri leið með að verða full-
hress.
Gísli: Viðmótsþýðasta kýs ég Berg-
þór Pálsson. Hann var einmitt að
gefa út bók um kurteisi.
Magga Stína: Og ég kýs Magnús
Þór Jónsson – Megas.
➜ VISSI ÞÚ AÐ...
...Gísli geymir Eddustyttuna sína á lítt áberandi stað í stofunni hjá sér.
...Magga Stína geymir fiðluna sína undir rúmi dóttur sinnar.
...Magga Stína og Gísli eru í sama stjörnumerki, Vatnsberanum, Magga Stína
fædd 22. janúar og Gísli 21. janúar.
...þau hittust í fyrsta skipti fyrir stuttu síðan, í Stúdíó 9. Magga var að taka
upp og Gísla vantaði tæknilega aðstoð.
...Ef Gísli mætti sprauta þjóðina með einhverjum einum eiginleika myndi
hann velja kæruleysissprautuna.
...Magga Stína myndi sprauta þjóðina með tillitssemissprautunni.
RÓMANTÍKIN ER BETRI EN RAUNSÆIÐ Magga Stína Blöndal og Gísli Einarsson segja
að þau ætli að fara í gegnum þjóðfélagsástandið í „blackouti“ og reyna að vera
súperjákvæð meðan lægðir og annað ganga yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA