Fréttablaðið - 18.11.2007, Page 8

Fréttablaðið - 18.11.2007, Page 8
8 18. nóvember 2007 SUNNUDAGUR EFNAHAGSMÁL „Árangur Íslend- inga er betri en hjá okkur í Bandaríkjunum og sennilega besta dæmið um hvernig lækkun skatta getur haft góð áhrif á efna- haginn,“ segir dr. Arthur B. Laffer hagfræðingur. Hann flutti í gær fyrirlestur á vegum Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Húsfyllir var á fyrirlestri Laffers sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu og var góður rómur gerður að máli hans. Laffer er umdeildur meðal hagfræðinga en áhrifamikill. Hann er þekktastur fyrir svo- nefnda Laffer-kúrfu. Samkvæmt henni dregur úr tekjum ríkisins, fari hlutfall skatta yfir tiltekin mörk. Laffer segir að kúrfa sín sé fyrst og fremst sett fram til útskýringar. Hugmyndin sé ekki að stjórnmálamenn taki hana upp hugsunarlaust, heldur sé með henni eingöngu bent á þetta samband skatta og tekna. Laffer var meðal helstu efna- hagsráðgjafa Ronalds Reagan, forseta Bandaríkjanna á árunum 1981 til 1989. Ítarlega verður rætt við Art- hur B. Laffer og fjallað um skattamál í Markaðnum á mið- vikudaginn. - ikh HÁTEIGSVEGI 105 REYKJAVÍK SÍMI 522 3300 FAX 522 3301 FTI@FTI.IS WWW.FTI.IS Innritun í Fjöltækniskóla Íslands fyrir vorönn 2008 stendur til 24. nóvember www.fti.is Stúdentspróf // náttúrufræðibraut með tækniívafi og starfsréttindum // Véltækni - vélstjórn 2. Stig og stúdentspróf Raftækni - Rafgreinar og stúdentspróf // Skipstækni - Skipstjórn 1. stig // Flugtækni - Einkaflugmaður Atvinnuréttindapróf // Skipstjóri // Vélstjóri // Vélfræðingur ze to r ORKA „Samningur Orkuveitunnar og Sveitarfélagsins Ölfuss var samþykktur samhljóða í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vorið 2006,“ segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar (OR). Þannig bregst Eiríkur við orðum Svandísar Svavarsdóttur, formanns stýrihóps um málefni REI og OR, en hún sagði í Fréttablaðinu á föstudag að nefndur samningur virtist „verulega á mörkunum“. Einnig sagði hún að siðareglur fyrirtækisins þyrfti líklega að herða og vísaði til samskipta OR og sveitarfélaga. Upplýsingafulltrúinn minnir á að stjórnin starfi samkvæmt settum starfsreglum og starfsmenn OR eftir vilja stjórnarinnar. Þeir fari eftir siðareglum, sem megi lesa á heimasíðu fyrirtækisins. Áform í Bitru séu í samræmi við þetta. „En skipti stjórnin um skoðun og hverfi frá fyrri áformum er auðvitað hugsanlegt að aðrir hafi hug á að virkja á svæðinu, til dæmis orkufyrirtæki landeigandans [ríkisins] eða stórkaupendur raforku,“ segir Eiríkur. Raforkumarkaðurinn sé jú samkvæmt lögum samkeppnismarkaður. Eiríkur kveður þær athugasemdir um Bitru sem Svandís sagði í gær „margar, þungar og afgerandi“ vera 660 talsins. Af þeim hafi „því miður“ 540 athugasemdir verið samhljóða efnislega. OR taki vitanlega mið af þeim við gerð endanlegrar matsskýrslu. - kóþ Samningur Orkuveitunnar og Ölfuss var gerður í stjórnartíð Reykjavíkurlistans: Aðrir kunna að virkja ef OR hættir við TYRKLAND, AP Yfirvöld í Tyrklandi hófu í fyrradag aðgerðir til að loka fyrir starfsemi stærsta stjórnmálaflokks Kúrda í landinu. Þingmenn flokksins hafa verið reknir af tyrkneska þinginu. Aðgerðirnar grundvallast á ásökunum um að flokkurinn styðji aðskilnaðarhugmyndir og sé í tengslum við ólöglega hreyfingu kúrdískra uppreisnar- manna. Aðgerðirnar voru ákveðnar í kjölfar þess að flokkurinn, sem þekktur er undir tyrknesku skammstöfuninni DTP, kallaði í síðustu viku eftir því að Kúrda- héruðin í Suðaustur-Tyrklandi fengju aukið sjálfræði. - aa Kúrdaflokkur í Tyrklandi: Flokksstarf sem- in stöðvuð REKNIR Þingmenn DTP á þingi í Ankara. Þeir hafa verið útilokaðir frá þingsetu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs- aldri hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás fyrir utan skemmtistaðinn Victor í Hafnarstræti. Þar starfaði hann sem sem dyravörður. Maðurinn tók harkalega um úlnlið og upphandlegg annars manns og snéri aftur fyrir bak, með þeim afleiðingum að handleggurinn brotnaði. Ákærði neitaði sök en dómur- inn taldi brotið sannað. Verknað- urinn var talinn framinn af gáleysi og varð það til refsimildunar. - æþe Dyravörður dæmdur: Sneri upphand- legg í sundur Arthur B. Laffer segir að skattalækkanir hérlendis sýni að kenningar sínar virki: Ísland sennilega besta dæmið ARTHUR B. LAFFER Var meðal helstu ráðgjafa Reagans. „Þær hafa verið hafðar að leiðarljósi við efnahagsstjórnina hér,“ segir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra um kenningar Arthurs B. Laffer. Árni bætir því við að Jón Þorláksson, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi haft svipaðar hugmyndir. „Sé hafður hemill á skattheimtunni getur það haft jákvæð áhrif á innheimtuna. Þetta hefur verið í umræðunni og menn hafa litið til þess. Það er engin spurning um það.“ LEIÐARLJÓS HÉR ÁRNI M. MATHIESEN „Áhrif skattalækk- ana gríðarlega mikil.“ EIRÍKUR HJÁLMARSSON Minnir á að hver sem er geti byggt virkjun, til dæmis stórkaupendur raforku. BANDARÍKIN Ný rannsókn sýnir að konur þurfa að bíða tuttugu sekúndum lengur eftir kaffibolla á kaffihúsum en karlar. Fylgst var með 295 viðskiptavinum á kaffihúsum í Boston í Banda- ríkjunum. Rannsóknin, sem ber nafnið „Dömurnar fyrst?“, bendir á kvenfyrirlitningu af hálfu karlkyns afgreiðslumanna sem mögulega skýringu. Einnig taki þeir sér oft tíma til að daðra við kvenkyns viðskiptavini. - sgj Ný bandarísk rannsókn: Konur bíða leng- ur eftir kaffinu SVEITARSTJÓRNIR Lagt hefur verið til í atvinnumálanefnd Vestur- byggðar að ríkið stofni miðlægan gagnagrunn um einkunnir allra grunn- og framhaldsskólanema, sem vistaður verði á Bíldudal. „Atvinnuástand á Bíldudal er mjög bágborið og er staða kvenna þar hvað verst,“ segir í tillögu Hjartar Sigurðarsonar sem sett er fram í ljósi ábend- inga Vestfjarðarnefndar um gagnavinnslu á Bíldudal. Hjörtur segir húsnæði á staðnum sem hægt sé að selja ríkinu undir starfsemina. - gar Vantar atvinnu í Vesturbyggð: Skólaeinkunnir verði á Bíldudal HÁTÍÐ SÓLGUÐSINS Nepölsk kona færir sólguðinum fórn að hindúasið. Á Chhath-hátíðinni þakka hindúar fyrir þær gjafir sem sólin hefur veitt þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.