Fréttablaðið - 18.11.2007, Page 87

Fréttablaðið - 18.11.2007, Page 87
41 MENNING Að störfum í Morin skinnu Hilmar Einarsson og Klara Steins- dóttir . M YN D : FRÉTTA BLA Ð IÐ /VA LLI Nú er búið að skipa afmælisnefnd vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar, það fyrsta sem þeir eiga að gera er að friðlýsa Arnarfjörð – það er ekkert flóknara 13 ástandið á Laugaveginum og götunum í kring? „Já, við vorum í góðri stöðu til að sjá hvernig hverfið á þessu svæði fór. Það er mikið þarna af bakhúsum og ástandið var lengi þannig að maður hugsaði: hve- nær ætlar þessi niðurlæging að taka enda? Þá er ég að tala um niðurlægingu húsanna sem eigendur hafa forsómað að halda við. Svo er þarna sest að ógæfu- fólk, hefur hreiðrað um sig og það er ekki nokkur staðar á byggðu bóli slík vanræksla á miðborg og við höfum mátt horfa upp á. Kringlan sló lífsmarkið úr þessum miðbæ á sínum tíma. Það átti að byggja einhvern nýjan miðbæ. Og miðbærinn lamaðist. Ef maður gekk niður Banka- stræti þá var það eins og dauðs manns gröf. Það er þó eitthvað líf þar núna og byggðin eitthvað að þéttast. Forsenda þess að miðbærinn komist á réttan kjöl er að það verður að fjölga íbúunum. Þeir verða sækja sér þjónustu og það eykur verslun. Hver vill ekki búa í miðborg? það er allt þangað að sækja. Það er praktískt að búa í miðborg. Ég segi oft: Ef það fæst ekki í 101 hef ég ekki not fyrir það.“ Leiðin vestur „Hringsdalur var búinn að vera í eyði í þrjátíu ár þegar við keyptum jörðina. Við höfum eytt þarna lunganum úr sumrinu í tuttugu og fimm ár. Það er bara tímaspursmál hvenær þjóðin upp- götvar Vestfirðina. Það eru bara vegirn- ir sem standa í vegi fyrir því. Sunnan- leiðin er varla fólksbílafær. Arnarfjörðurinn er perla. Svo gerðist það í fyrrasumar að það var farið að grafa þarna, sumpart fyrir mína tilstuðlan. Það hefur lifað þarna munnmælasaga sem er skráð um 1885 sem segir frá vígaferlum Austmanns sem settist að í Austmannsdal og Hrings sem settist að í Hringsdal. Hringur kemur frá Noregi og Austmann eltir hann en þeir höfðu átt í deilum í Noregi. Síðan segir sagan að Hringur hafi sent menn sína til skógarhöggs inn á Stein- nes gegnt Bíldudal og þeir fara að honum tíu eða tólf. Hann nær að drepa átta austmenn áður en þeir fella hann. Þarna eru öll örnefni: Víghellan þar sem hann hryggbraut þá, Ræningjalág þar sem þeir komu að honum upp frá bænum, þarna er Efri-Bardagagrund og Neðri-Bardagagrund og svo segir saga að þeir hafi verið heygðir niður á Bökk- um sem kallaðir eru. Ég hugsaði mikið um þetta en var ekk- ert að aðhafast en fór svo að garfa í þessu og það var til þess að það fannst þarna lærleggur fyrir tilviljun. Og þá var Adolf Friðrikssyni á Fornleifastofn- un útdeilt þessu verkefni og hann fór í þetta og fann Hring, eða fornmann með öllum sínum vopnum. Hann finnst þarna með sverð, spjót, skjaldarbólu sem er heilleg og mjög fátíð, og hár kambur. Síðan var grafið aftur í sumar og þar fannst þá manngerð hleðsla inni í þess- um kumlateig sem virðist algerlega óspilltur því þar hefur ekki orðið neitt jarðrask. Hingað kom kvikmyndalið á vegum Discovery til að gera þátt um þennan fund, stór hópur, og var unnið handrit um fundinn frá fyrra sumrinu, fræði- menn komu vestur og mjög fagmann- lega að þessu staðið. Svo gerist hið óvænta við lokin á tökunum að það finnst annar fornmaður, að vísu búið að hrófla við gröfinni, en það fannst mjög fín öxi undir beinunum. Það sér ekkert fyrir endann á þessu. Nú er búið að leggja fyrir beiðni um meira fjármagn. En þegar Hringur er kominn suður, þá sækja Austmenn að honum aftur: nú vilja menn reisa olíuhreinsunarstöð í Arnarfirði.“ Milljarða og ekki meir Þú hefur orðað þá hugmynd að þú viljir fá Hring aftur í hérað? „Þetta er ekki yfirgripsmikið svæði í sjálfu sér. Staðurinn er ótrúlega falleg- ur. Það er bakki við sjóinn og sér fram fjörð og inn fjörð. Ég hef verið að hug- leiða hvort það sé hægt að gera eitthvað með þetta á þessum stað. Það er allt framkvæmanlegt ef það eru einhverjir peningar. Vitaskuld verður að standa vel að því, en ég hef hugsað að þetta yrði að vera sem aðgengilegast, hugsanlega sé hægt að skoða fornmanninn í sinni gröf. Ekki með einhverri byggingu þótt það verði kannski endirinn á að þess þurfi. Ég hef mikinn áhuga á þessu.“ -Víkjum þá að hinum nýju austmönn- um. „Þessu laust niður eins og eldingu þegar þessi umræða hófst í byrjun sum- ars. Arnarfjörður – olíuhreinsunarstöð – hvaða geðveiki er þetta eiginlega? Ólafur Egilsson, fyrr verandi sendi- herra, sem ég þekki frá fornu fari og er mikill áhugamaður um listir og menn- ingarmál. Ólafur hlýtur að hafa dottið á hausinn og það er mikið fall því maður- inn er á þriðja metra. Auðvitað verður aldrei af þessu. Nú er búið að skipa afmælisnefnd vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðsson- ar, það fyrsta sem þeir eiga að gera er að friðlýsa Arnarfjörð – það er ekkert flóknara. Það er búið að eyrnamerkja tvöhundruð milljónir – þeir eiga láta það í smáverkefni: láta Bókmenntafélagið fá þá peninga en það styttist í 200 ára afmæli þess. Þeir gætu látið smáaura í safnið í Selárdal eða til að ljúka greftrin- um í Hringsdal. Það sem á að gera er að taka tvo milljarða og gera þetta með stæl. Á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar var stofnaður Háskóli á Íslandi 1911. Svo ætla menn að setja 200 miljónir í þetta hátíðahald nú? Hvað er það? Það á að gera þetta með stæl, ekk- ert svona hérumbil. Fyrir hundrað árum áttu menn ekki neitt, núna eigum við allt. Hrafnseyri er ótrúlega fallegur staður. Og Arnarfjörður er engu líkur. Brátt koma göng svo það opnast allt svæðið. Hátíðanefndin á að fá til sam- starfs við sig listafólk og aðra og búa til hugmyndabanka. Það er ekkert þarna sem dregur til sín fólk og því þarf að breyta. Við erum að tala um sjálfstæðis- hetju Íslendinga. Við eigum að gera þetta stórt, ekki smátt.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.