Fréttablaðið - 26.04.2008, Page 46
● heimili&hönnun
Ólafur Jónas Sigurðsson, nemi og
körfuboltaleikmaður hjá ÍR, á
sér heldur óvenjulegt drauma-
hús en honum finnst efsta hæð
Perlunnar tilvalinn staður til
að búa á.
„Þarna er alveg snilldarútsýni
yfir allt. Það væri ekki amalegt að
ganga út á svalirnar á morgnana
með kaffibolla og líta yfir fjallgarð-
inn sem umkringir höfuðborgina.
Svalirnar eru einnig frábær-
ar fyrir grillveislur og þar kæm-
ust allir að sem vildu. Eldhúsinu
og barnum myndi ég trúlega halda
enda aðstaðan ekki af verri endan-
um þarna og hægt að bjóða óteljandi
vinum og vandamönnum í mat og
drykk.Trúlega yrði ég að henda upp
milliveggjum til að búa til svefn-
herbergi og þess háttar. Ekki er
verra að hæðin snýst og því hægt að
sofna með Breiðholtið fyrir framan
sig en vakna svo með Esjuna í öllu
sínu veldi í morgunsárið,“ segir Ól-
afur kátur.
„Ég yrði að koma upp góðu sjón-
varpsholi með öllum bestu tækj-
unum enda ekki annað hægt fyrst
maður væri að þessu. Ég kæmi mér
upp smágarði á svölunum svo það
yrði líf í þessu hjá mér og til að sýna
hversu græna fingur ég hef.“
Hann segir að helsti ókostur við
að búa á efstu hæð Perlunnar væri
trúlega vinnan sem færi í að pússa
allt glerið. Það væri þó eitthvað sem
hann og kærastan gætu dundað sér
við í rólegheitunum.
„Þegar þetta gerist og ef það ger-
ist verður svaka veisla, ég lofa því,“
segir Ólafur og hlær.
- mmr
Ólafi þætti ekki amalegt að drekka morgunkaffið á svölum Perlunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DRAUMAHÚSIÐ:
Vill búa á efstu hæð Perlunnar
Skraut í garðinn
S umarið er komið en þó þarf enn að bíða eftir að blómin komi
upp. Meðan beðið er eftir blóm-
unum má lífga upp á garðinn með
ýmsum ráðum. Til dæmis með því
að stinga litskrúðugum og skemmti-
legum skrautpinnum um allan garð.
Kosturinn við þá er að ekkert þarf að
vökva eða klippa þá til og grillveislan
verður lífleg og litskrúðug í annars
gráum og lauflausum garðinum.
Skrautpinnarnir eru sérstaklega
hentugt fyrir þá sem ekki státa af
grænum fingrum. Sjá www.2mo-
dern.com/garden
26. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR10