Fréttablaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 2
2 10. maí 2008 LAUGARDAGUR
Séra Þór, þú misstir þó ekki
hempuna líka?
„Nei, ég hélt henni sem betur fer.“
Séra Þór Hauksson varð fyrir því óláni að
veski hans og síma var stolið úr skrúð-
húsi Árbæjarkirkju í miðri giftingu.
Akureyri
Vík
Egilsstaðir
Selfoss
Hveragerði
Hafnarfjörður
Neskaupstaður
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Súðavík
Ísafjörður
Akranes
Njarðvík
Sandgerði
Hreðavatnsskáli
Reykjavík
Þú sparar á Orkustöðvunum
Net Orkustöðvanna umhverfis landið þéttist sífellt til enn frekari
hagsbóta fyrir almenning. Kynntu þér hvar Orkustöðvarnar eru og
hvað bensínið er ódýrt þar.
SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR!
www.orkan.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
IK
SERBÍA, AP Serbneskir þjóðernis-
sinnar gengu í gær út af ríkis-
stjórnarfundi ásamt leiðtoga
sínum, Vojislav Kostunica
forsætisráðherra, til að mótmæla
samningum við Evrópusambandið
og Rússland, sem undirritaðir
voru í síðustu viku.
Þingkosningar verða í Serbíu á
morgun og takast þar á þjóðernis-
sinnar, sem spáð er rúmlega
þriðjungi atkvæða, og umbóta-
sinnar, sem spáð er álíka miklu
fylgi, þó heldur minna.
Umbótasinnar eru ráðandi í
núverandi ríkisstjórn og eru fylgj-
andi samningunum, þrátt fyrir
andstöðu forsætisráðherrans. - gb
Kosið í Serbíu á morgun:
Ágreiningurinn
harðnar enn
FÓLK „Þau eru öll á batavegi,“
segir Guðrún Bjarnadóttir, móðir
piltanna í hljómsveitinni Steed
Lord sem slösuðust í árekstri á
Reykjanesbrautinni fyrir um
mánuði.
Guðrún segir son sinn, Einar
Eðvarðsson, hafa farið verst út úr
slysinu af þeim sem voru í bíl
hljómsveitarinnar, og að hann sé
enn undir læknishöndum þótt
Einar sé kominn heim eins og
bræður hans tveir, Eðvarð og
Erling, og unnusta hans, Svala
Björgvinsdóttir söngkona.
Aðspurð kveðst Guðrún ekki
vita um ástand mannsins sem ók
hinum bílnum. „Ég hef spurst
fyrir um það en ekki fengið svör.
Vonandi er hann á góðum
batavegi.“ - gar
Svala og Steed Lord:
Öll á batavegi
STEED LORD Hljómsveitarmeðlimir lentu
í alvarlegu slysi á Reykjanesbraut.
Fréttablaðið kemur næst út
þriðjudaginn 13. maí. Frétta-
vefurinn Vísir.is heldur úti
öflugri fréttavakt alla helgina.
Afgreiðsla smáauglýsinga er
lokuð um helgina.
Fréttablaðið á hvítasunnu:
Kemur næst
út á þriðjudag
SLYS Harri keyrði fram af kletta-
drangi á sleðanum og lenti á nibbu
fyrir neðan. Við það kastaðist aft-
urendinn í loft upp og þannig fóru
þeir fram af hengjunni. Sleðinn
kastaðist tíu til fimmtán metra
áfram, í fjögurra metra hæð. Niður
kominn kútveltist hann og endaði
um 35 metrum frá upphafsstað.
Slysið varð í Skriðutindum norður
af Laugarvatni.
Harri, sem er fyrrum björgunar-
sveitamaður, var á ferð í tíu manna
hópi þegar slysið varð. Hann segir
eigin klaufaskap og röð rangra
ákvarðana hafa valdið slysinu.
Harri brotnaði hvergi og slapp með
mar.
„Þetta var bara aulaskapur. Ég
var á lánssleða frá besta vini
mínum og hann er með ansi hátt
stýri. Sjálfur er ég tittur þannig að
ég réði illa við hann.
Ég var á leið upp brekku og ætl-
aði að beygja til vinstri. Aðstæður
voru hins vegar þannig, mikil sól-
bráð og halli í brekkunni sem ég
hafði ekki séð, að ég réð ekki við
sleðann,“ segir Harri.
„Ég reyndi að þvera hlíðina og
það hefði kannski gengið hefði ég
farið aðeins hraðar, en því miður
var ekki svo. Ég fór því fram af
klettunum.“
Harri rakst oft í sleðann í loft-
inu, sló höfðinu í hann og lenti með
bringuna á stýrinu. Á jörðu niðri
lenti sleðinn síðan ofan á hinum og
valt áfram sína leið. Harri kút-
veltist áfram og stöðvaði 35 metr-
um frá upphafspunkti, með höfuðið
ofan í snjónum.
Aðkoman var svakaleg og félög-
um Harra leist ekki á blikuna. Þeir
eru þó ýmsu vanir enda flestir í
björgunarsveit. Bent Helgason
veitti Harra fyrstu hjálp á meðan
Hallgrímur Óskarsson hringdi á
hjálp í NMT-síma. „Mér leist ekk-
ert á aðkomuna,“ segir Bent. „Hann
átt erfitt með andardrátt og var
kalt. Okkur tókst að koma honum í
svefnpoka og settum úlpurnar
okkar yfir hann. Það var mikilvægt
að einangra hann svo hann ofkæld-
ist ekki,“ segir Bent. Mestar
áhyggjur voru yfir hryggnum á
Harra og hve þungt hann átti með
andardrátt.
Harri kallar ekki allt ömmu sína
og hann segist ekki hafa verið
hræddur, en er þakklátur félögun-
um fyrir rétt viðbrögð. „Ég leiddi
hugann aldrei að sjálfum mér í loft-
inu, hugsaði bara um lánssleðann.
Ég hef nú oft dottið áður en aldrei
brotnað. Ég þakka mjólkinni það,
hún gerir gæfumuninn. Án hennar
væri ég löngu dauður,“ segir Harri,
sem er marinn og stífur í hálsi. „Ég
kíkti samt í vinnuna daginn eftir og
reif aðeins kjaft. Það get ég alltaf.“
kolbeinn@frettabladid.is
Hugsaði meira um
sleðann en sjálfan sig
Harri Kjartansson fór fram af kletti á vélsleða og fékk sleðann ofan á sig. Hann
kastaðist 35 metra áfram en segir mjólkina hafa bjargað eigin klaufaskap.
BÚRMA, AP Nú, viku eftir að felli-
bylurinn Nargis skall á Búrma,
hefur aðstoð aðeins borist litlum
hluta þeirra sem verst urðu úti.
Búrmastjórn neitar enn að
hleypa útlensku hjálparstarfs-
fólki inn í landið, en ætlar sjálf að
sjá um að dreifa þeim matvælum
og hjálpargögnum sem berast að
utan.
Sameinuðu þjóðirnar hættu í
gær við að fresta flugi með hjálp-
argögn til Búrma. Fyrr um dag-
inn hafði gert upptæk tvo flug-
vélarfarma af matvælum og
öðrum hjálpargögnum, og sögðu
Sameinuðu þjóðirnar þá að
frekara flugi yrði frestað.
„Allur matur og búnaður sem
okkur hafði tekist að senda til
landsins hefur verið gerður upp-
tækur,“ segir Paul Risley, tals-
maður Matvælastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna. „Þetta er í haldi
stjórnarinnar. Við bíðum eftir
lausn málsins.“
Meira en ein milljón manna
misstu heimili sín þegar fellibyl-
urinn Nargis reið yfir landið
fyrir viku. Fólkið er margt illa
haldið, og þarf nauðsynlega á
aðstoð að halda sem allra fyrst.
Víða kemst hjálparstarfsfólk þó
ekki til fólks þar sem vegir eru
lokaðir vegna flóða eða fallinna
trjáa.
Meira en 65 þúsund manns eru
ýmist látnir eða þeirra saknað, að
sögn stjórnarinnar, en hjálpar-
samtök óttast að tala látinna geti
farið yfir hundrað þúsund.
Þúsundir barna hafa líklega
misst foreldra sína og ástandið
versnar með hverri klukkustund-
inni sem líður.
- gb
Búrmastjórn tekur við hjálpargögnum en hafnar enn útlensku hjálparstarfsfólki:
Aðstoðin kemst ekki til skila
HERFORINGJAR SPJALLA VIÐ LANDS-
MENN Thein Sein, forsætisráðherra
herforingjastjórnarinnar í Búrma, gaf sig
í gær á tal við nokkra munka og aðra
íbúa í úthverfum Rangún.
NORDICPHOTOS/AFP
VARNARMÁL Eiginlegt varnarsam-
starf við Bandaríkin heyrir sög-
unni til. Þetta fullyrti Árni Páll
Árnason, varaformaður utanríkis-
málanefndar Alþingis, á málfundi
um varnarmál í Háskóla Íslands í
gær. Varnarsamningurinn frá
1951 hefur að hans sögn „enga
sjálfstæða þýðingu lengur“.
Í þeim samningum sem ritað
var undir er Bandaríkjaher yfir-
gaf Ísland eftir 55 ára dvöl árið
2006 segir Árni Páll að felist í raun
ekki meiri varnarskuldbindingar
af Bandaríkjanna hálfu en hvort
eð er myndu taka gildi samkvæmt
sáttmálum Atlantshafsbandalags-
ins ef til ófriðar horfði.
„Í samningnum haustið 2006
felst: Bandaríkjamenn líta ekki
lengur á það sem hlutverk sitt
samkvæmt varnarsamningnum
(frá 1951) að sinna neinum verk-
efnum sem lúta að Íslandi á friðar-
tímum. Með öðrum orðum: Varn-
arsamningurinn lýtur bara að
ófriðartímum,“ sagði Árni.
Það þýði að það langtímavarnar-
samstarf sem var og byggðist á
samvinnu ríkjanna tveggja á frið-
artímum sé lokið og í staðinn sé
samningurinn umgjörð um það
sem kallað er á hermáli „contin-
gency plan“ og þýða má sem við-
búnaðaráætlun á hættutímum.
Sem slík umgjörð hafi samningur-
inn ekki mikið meiri þýðingu en
þær viðbúnaðaráætlanir sem
hvort eð er myndu taka gildi fyrir
allt bandalagið á hættutímum. - aa
Varaformaður utanríkismálanefndar á málfundi um varnarmál í Háskóla Íslands:
Varnarsamstarfið er liðin tíð
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
Segir varnar-
samninginn
hafa „enga
sjálfstæða þýð-
ingu lengur“.
FÆREYJAR Lögð hefur verið
lokahönd á endurbyggingu
Fútastovu í Þórshöfn í Færeyjum,
gömlu húsi í miðbænum, þar sem
aðalræðisskrifstofa Ísland er til
húsa.
Samkvæmt því sem fram
kemur á fréttavefnum portal.fo
voru það tveir sérfræðingar í
fornum færeyskum byggingarsið,
Martin Mörk og Anngrím Árting,
sem höfðu veg og vanda að
verkinu. Þeir luku við að tyrfa
þak uppgerðs hússins í vikunni.
Húsið er friðað og endurbæturn-
ar því gerðar í samráði við
minjavernd Færeyja, Forn-
minnasavnið. - aa
Fútastova í Færeyjum:
Ræðisskrifstofa
undir torfþak
FÚTASTOVA Eitt elsta hús Þórshafnar
hefur endurheimt fyrra útlit.
LJÓSMYND/SOSIALURIN
UTANRÍKISMÁL Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
mun koma í stutta heimsókn
hingað til lands í lok maí. Rice
endurgeldur þannig heimsókn
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra í apríl.
Rice mun ræða við ráðamenn
um samskipti landanna og málefni
norðurslóða. Hún mun koma
hingað til lands frá Svíþjóð, þar
sem hún mun sitja ráðstefnu um
málefni Íraks á vegum Sameinuðu
þjóðanna. - bj
Samskiptin við Bandaríkin:
Condoleezza
Rice til Íslands
Ég hef
nú oft
dottið áður en
aldrei brotnað.
Ég þakka mjólk-
inni það, hún
gerir gæfumun-
inn. Án hennar
væri ég löngu dauður.“
HARRI KJARTANSSON
HÚSASMIÐUR
GERT KLÁRT Í AÐ HÍFA Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar af ótta við hálsmeiðsl.
Félagar hans báru mikið lof á viðbragðstíma hennar. MYND/SVANUR HAFSTEINSSON
SPURNING DAGSINS