Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 9
RÉTTUR
9
öllu kröfur um vald: stjórnarfarslegt vald, félagslegt vald,
atvinnulegt vald. Kröfur hennar t. d. í frönsku byltingunni
og annars staðar voru langt frá því að vera takmarkaðar við
stjórnmálasviðið, heldur tóku þær þvert á móti ekki síður
til atvinnulífsins. Borgarastéttin barðist ekki aðeins fyrir því,
að pólitísku einræði konungs og aðals væri hrundið, heldur
einnig fyrir því, að einræði þessara konunga og fursta yfir
verzlun, jörðum og miklum hluta atvinnutækjanna væri
afnumið, einokuninni aflétt, aðalsjarðirnar teknar eignar-
námi, konungseignirnar ,,þjóðnýttar“. Kröfur borgarastétt-
arinnar voru: réttindi til handa þeim, sem tilheyrðu borg-
arastéttinni: til að mega verzla, til að mega eiga atvinnu-
tæki, eiga jarðir og ekki livað sízt réttur til þess að mega
greiða atkvæði, — og borgarastéttinni þótti oftast nær ráð-
legast að tengja þann rétt við það, að menn hefðu ákveðnar,
liáar tekjur eða ættu svo og svo miklar eignir. Það var því
oftast nær takmarkað lýðræði, mjög „borgaralegt“ lýðræði,
sem borgarastéttin barðist fyrir og framkvæmdi, ef hún fékk
ein að ráða. Vér íslendingar þekkjum, hve takmarkað það
var hér, hve fáir höfðu t. d. kosningarétt framan af þessari
öld. En oft gerði borgarastéttin líka víðtækari lýðræðislegar
kröfur, oftast til þess knúin til að tryggja almennt fylgi lýðs-
ins við sínar eigin valdakröíur á hendur einvaldskonungum
og aðli.
Bændastéttin takmarkaði sig ekki heldur í sinni sókn til
lýðræðis við afnám hins pólitíska einræðis aðals og konunga,
heldur lagði og höfuðáherzlu á afnám eignarréttar aðalsins
á jörðunum. Sókn borgara og bænda fram á leið til lýðræðis
var því engan veginn takmörkuð við hina pólitísku hlið lýð-
ræðisins eina saman, heldur var hún vissulega einnig á sviði
atvinnu- og fjárhagslífsins. En hagsmunasviðið, sem sú bar-
átta tók til, var eins og að líkum lætur takmarkað við þessar
stéttir, sem forystu höfðu í baráttunni.
Það er því alveg í samræmi við þá sókn fram til aukins
lýðræðis, sem borgara- og bændastéttir sumra landa hafa háð