Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 31
RÉTTUR
31
sinni fyrr, vegna þess að tækni nútímans gefur fjöldanum,
verkamönnum, bændum, menntamönnum og millistéttum,
betri aðstöðu til að framkvæma hugsjón lýðræðisins: frelsi,
jafnrétti og bræðralag, betri aðstöðu til að tryggja mönnum
jafnrétti við að leita lífshamingju, meiri efnahagslega mögu-
leika til að finna hana en mannkynið hefur nokkru sinni
fyrr haft. í sókninni gegn peningafurstum nútímans mun
verkamannastéttin og böm hennar erfa hugsjónir og kjark
allra þeirra, sem háð hafa áður þessa baráttu gegn öðrum
furstum og einvaldi. Formið fyrir sigrum og framkvæmd
lýðræðisins á sviði stjórnmála og atvinnulífs mun verða
næstum því jafnólíkt og þjóðirnar, sem sigrana vinna. Það
mun sigra í mörgum áföngum, á þessu sviði í þetta skipti,
á öðru sviði næst. í framkvæmd mun það rnótast af sögu,
hugsunarhætti og þroska þeirrar þjóðar, er í livert sinn fram-
kvæmir það. Og lýðræðið mun verða rægt og afflutt af fjand-
mönnum þess nú sem fyrr. Formælendur þess munu verða
kallaðir rússneskir erindrekar einn daginn, ef til vill þýzkir,
enskir eða amerískir skönnnu síðar, en slíkt getur engan
þann blekkt, sem gerir sér einhverja grein fyrir sögunni af
þróun og baráttu lýðræðisins í heiminum fram til þessa.
ísland
Fyrir oss íslendinga er þjóðfrelsis vors vegna meiri nauð-
syn á því en með ýmsum öðrum þjóðum að framkvæma
lýðræðið til fulls, og ennfrenmr ættu að vera ýmsir mögu-
leikar á því að framkvæma lýðræðið betur og fullkomnar
en hjá mörgum öðrum þjóðum, ef vér erum menn til þess
að hagnýta oss alla þá möguleika. Eg skal hér nefna nokkur
atriði.
í fyrsta lagi lýðvaldið sjálft.
í eins litlu þjóðfélagi og voru er raunverulega hægara að
framfylgja virkilegu lýðvaldi en hjá milljónaþjóðunum. —
Þegar t. d. 100.000 kjósendur eða fleiri kjósa einn fulltrúa