Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 38
38
RÉTTUR
í Englandi og Frakklandi varð til þess að þýzka peninga-
aðlinum tókst að leiða þær hörmungar yfir heiminn, sem
hann nú stynur undir.
Það er heilög skylda alþýðunnar í hverju landi að vera á
verði gegn því að t. d. amerísku auðfurstarnir í samvizku-
lausri drottnunargirni sinni geti leitt áþján harðstjórnarinn-
ar yfir þjóðirnar á ný, eftir að tekizt hefur að brjóta á bak
aftur hina ægilegu barðstjórn þýzku auðfurstanna.
Sósíalistaflokkurinn hefur ástæðu til þess nú eftir sigur
lýðræðisaflanna í heiminum yfir fasistaríkjunum og auknum
raunhæfum áhrifum lýðfrelsisins í heiminum þar með, að
undirstrika enn frekar vilja alþýðunnar sem hann er fulltrúi
fyrir til þess að hlíta í báráttunni um völdin í þjóðfélaginu
leikreglum hins borgaralega lýðræðis, í trausti þess að mót-
aðilar hennar geri hið sama. Og þessa viljayfirlýsingu sína
ítrekar flokkurinn án þess að gera minnstu tilraun til þess
að blekkja alþýðuna um hve mjög þessar leikreglur séu auð-
mannastéttinni í vik*
Alþýða Islands hefur eins og alþýða annarra landa háð
sókn lýðræðisins á undanförnum öldum við margfalt erfiðari
skilyrði en þau, sem hið borgaralega lýðræði skapar henni.
Alþýðan hefur alltaf Jrjáðst mest, Jregar ofbeldinu liefur
verið beitt í þjóðfélaginu. Aljrýða íslands hefur orðið að búa
við skipulegt ofbeldi og áþján öldum saman, eftir að valda-
streita og ofbeldisaðgerðir höfðingjanna höfðu eyðilagt Jrjóð-
* Greinilegast kemur það í ljós í því, sem einna mesta þýðingu liefur í
kosningum: blaðakosti stéttanna. Auðmannastéttin gerir t. d. í krafti vald9
síns yfir verzluninni og þar með auglýsingunum Morgunblaðið að gróðafyrir-
tæki, þannig að hún slær tvær flugur í einu höggi: prangar í senn skoðunum
sínum og vörum inn á fólkið. Hún græðir atkvæði á grundvelli þeirrar hálfgerðu
skoðanaeinokunar, sem hún þannig nær. Atkvæðamagn sitt notar hún til þess
að viðhalda verzlunareinokuii sinni. Og verzlunareinokunin gefur henni áfram
valdið yfir auglýsingunum — og gróðann. Þannig gerir auðmannastéttin prent-
frelsið að svikamyllu fyrir sig. En á sama tíma verður alþýðan með miklum
fórnum að halda uppi blaðakosti sínum, — hagnýting hins dýrmæta prent-
frelsis þýðir fyrir har.a daglega baráttu og fórnir.