Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 37
RÉTTUR
37
menntunar, góðrar afkomu og hvíldar, tryggður að fullu og
mismunandi hæfileikar mannanna fá að njóta sín. í stað
stéttabaráttunnar og kapphlaupsins um gróðann innan auð-
valdsskipulagsins, kemur bróðurleg samvinna hinnar stétt-
lausu, íslenzku þjóðar, um að notfæra sér náttúrugæðin til
almennrar Iiagsældar og alhliða menningar."
Flokkurinn leggur ennfremur í stefnuskrá sinni áherzlu
á vilja sinn til þess að vernda núverandi lýðræði og bæta
það og undirstrikar sérstaklega vilja sinn til þess að valda-
taka alþýðunnar fari fram á friðsamlegan liátt.
Sósíalistaflokkurinn hefur aldrei og mun aldrei draga dul
á þá hættu, sem lýðræðinu er búin af einræði peningafurst-
anna og ofbeldishneigð þeirra. Eins og flokkurinn varaði
við hættunni, sem frelsi voru var búin af þýzku auðjöfrun-
um og erindrekum þeirra hér, eins varar hann við þeirri
hættu, sem frelsi voru er búin nú sakir yfirgangs amerískra
yfirdrottnunarseggja og undirlægjuháttar innlendra leigu-
þýja þeirra. Flokkurinn hefur frá upphafi litið á það sem
eitt höfuðverkefni sitt að „verja lýðræðið gegn öllum árás-
um ofbeldis-, einræðis- og afturhaldsflokka" og hvatt í því
skyni sífellt til „sameiningar alþýðunnar gegn ofbeldi og
einræði auðvaldsins" og hafa alþýðusamtökin á íslandi lýst
því yfir að til varnar lýðræðinu muni þau beita öllu því
harðfylgi, sem þau eiga yfir að ráða, ef að því verður ráðizt.
Alþýðan veit af dýrkeyptri reynslu, að einmitt alþýðusam-
tökin, hyrningarsteinn nútíma lýðræðis, er það fyrsta, sem
fjandmenn lýðræðisins ráðast á, er þeir leggja til atlögu gegn
lýðræðinu. Svæsnasti lygaáróðurinn gegn verkalýðshreyfing-
unni er venjulega undanfari þess að ofsækja hana og banna
og veita þannig lýðræðinu banasárið. Með lygaát'óðrinum,
sem hundruð dagblaða, er auðmenn Þýzkalands béldu út,
létu dynja yfir fólkið, tókst að forheimska það svo og spilla,
að með beitingu skipulagðs ofbeldis í viðbót tókst auðhring-
um Þýzkalands að koma á alræði sínu 1933. Andvaraleysi
lýðræðisaflanna í heiminum og undirferli peningafurstanna