Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 4
4
RÉTTUR
þjóðfélaginu, þroska hæfileika sína og hagnýta þá sjálfum
sér og þjóðfélaginu til hagsældar. Lýðræði er jafnrétti allra
einstaklinga þjóðfélagsins til þess að geta, hvað hin ytri skil-
yrði snertir, haft áhrif í þjóðfélaginu með skoðunum sínum
og fyrir skoðanir sínar, jafnrétti allra, hvað snertir atkvæða-
greiðslur, blaðaútgáfu, fundahöld o. s. frv., jafnrétti til hag-
nýtingar frelsis síns. Þetta jafnrétti er þverbrotið, ef t. d. ein-
um blaðakóng er gelin aðstaða til þess að móta skoðanir
milljóna í krafti valds síns yfir blöðum, prentsmiðjum, út-
gáfubáknum, auglýsingum o. s. frv, en aðrir borgarar þjóð-
félagsins hal'a samtímis svo að segja enga fjárhagslega og
tæknilega aðstöðu til þess að koma skoðunum sínum út til
almennings.
Þetta jafnrétti mannanna hefur frá upphafi verið skoðað
sem einn hyrningarsteinn lýðræðisins. Og þetta jafnrétti
éyðileggst að Iieita má gersamlega, ef einstakir höfðingjar
geta einokað undir sig í krafti auðs eða lagaboðs meginið
af áhrifatækjum þjóðfélagsins. Sama gildir um jafnrétti
manna til að „leita hamingjunnar“. Það eyðileggst svipað og
frelsi fjöldans, ef einstakir menn geta sölsað undir sig meg-
inið af eignum eða atvinnutækjum þjóðfélagsins og gert
þannig fjöldann háðan sér h'kt og aðalsmenn miðaldanna
gerðu ánauðuga bændur háða sér með því að drottna yfir
jörðunum, sem þeir unnu á, eða þrælaeigendur fornaldar-
innar gerðu þrælana sér undirgefna með því að drottna yfir
líkömum þeirra. Jafnrétti, það þýðir m. a. jafna efnahags-
lega aðstöðu mannanna til atvinnu, menntunar og frama í
þjóðfélaginu, þannig að það sé einvörðungu mannkostir
þeirra sjálfra og hæfni, sem ræður, en ekki auður eða völd
aðstandenda eða þeirra sjálfra. Slíkt jafnrétti er þverbrotið
í þjóðfélögum, þar sem nokkrir auðhringar eða einstakir
menn, sem hafa einokunaraðstöðu í atvinnulífinu, fá að
drottna yfir fjöldanum og halda þorra þegnanna niðri í
krafti valds síns. Jafnréttishugsjón lýðræðisins er líka þver-
brotin, þegar t. d. kvenfólkið eða negrar eða einstakir þjóð-