Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 36
36
RÉTTUR
öld. Til þess að tryggja sjálfstæði og tilveru þjóðar vorrar
er því nauðsyn á framkvæmd lýðræðisins í fullkomnasta
formi þess: sköpun þess bræðralags, er sameiginlegir hags-
munir allrar þjóðarinnar einir tryggja, — sósíalisma.
☆
Sósíalistaflokkurinn liefur frá því Iiann var stofnaður lagt
áherzlu á það hlutverk sitt að berjast fyrir fullkomnu lýð-
ræði.
Fyrsta grein stefnuskrár hans hljóðar svo:
„Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn er
stjórnmálaflokkur íslenzkrar alþýðustéttar, sósíalistískur
lýðræðisflokkur, óháður öllum öðrum en meðlimum sínum,
íslenzkri alþýðu.“
í 4. gr. stefnuskrárinnar segir:
„Flokkurinn starfar á lýðræðisgrundvelli, innan vébanda
sinna og utan, og telur rétt þjóðarmeirihlutans skýlausan
til að ráða málum þjóðarinnar, en álítur lýðræðinu í sinni
núverandi rnynd mjög ábótavant, enda fullkomið lýðræði
aðeins hugsanlegt á grundvelli sósíalismans.“ — En í 2. gr.
hefur flokkurinn skýrt hugmynd sína um J^jóðskipulag sós-
íalismans með þessum orðum: „Frjálst, stéttlaust samfélag
allra vinnandi manna í landinu, hvort sem þeir vinna erfiðis-
vinnu eða andleg störf; þjóðfélag, sem stjórnað sé af þeim
sjálfum og þar til kjörnum fulltrúum þeirra með fullkomnu
lýðræði í stjórnmálum og atvinnumálum."
í III. kafla 2. gr. stefnuskrár sinnar gerir Sósíalistaflokk-
urinn nánari grein fyrir stefnu sinni á þessu sviði.
„Þegar alþýðan hefur náð völdum til fulls, er það hlutverk
hennar að skipuleggja atvinnuvegina á grundvelli sósíal-
ismans og fullkomins lýðræðis í atvinnumálum og stjórn-
málum. í því þjóðskipulagi getur í fyrsta sinni farið saman
framtak fjöldans, sem hefir verið haldið niðri í auðvalds-
þjóðfélaginu og framtak og ábyrgðartilfinning hvers ein-
staklings. Þá verður réttur hvers vinnandi manns til atvinnu,