Réttur - 01.01.1946, Blaðsíða 76
76
RÉTTUR
þeirri pólitík, sem fram kom í þessari ræðu og básúnuð var
út um heiminn (sérstaklega til þýzka nazismans, þar sem
áhrifin af hinum endurteknu sendingum brezka útvarpsins
til Þýzkalands kváðu hafa verið taumlaus fögnuður), og að
hann skuli í sinni eigin pólitík nálgast svo mjög mörg af
aðalatriðunum í ræðu Churchills. Þetta er ástand, sem kippa
verður í lag. Því að öll framtíð brezku þjóðarinnar og brezku
verkalýðshreyfingarinnar er nátengd grundvallarmarkmið-
um í utanríkispólitíkinni. Við fögnum andmælum hinna
105 þingmanna Verkamannaflokksins, sem liafa sýnt skiln-
ing sinn á mikilvægi þessa máls og nauðsyn þess að andmæla
opinberlega og á raunhæfan hátt pólitík Churchills og snúa
inn á braut lýðræðissinnaðrar utanríkispólitíkur.
Annaðhvort — eða
Það liggur skýrt fyrir, um hvað brezka þjóðin á að velja.
Annaðhvort áfram í fylgd með hinum framsæknu þjóðum
heimsins, með Ráðstjórnarríkjunum, hinum nýju lýðræðis-
ríkjum Evrópu, nýlenduþjóðunum, heimssamtökum verka-
lýðsins og einingu verkalýðsstéttarinnar. Eða aftur til áþján-
ar ameríska peningavaldsins og hinna brezku afturhalds-
sömu félaga þess. Rödd Churchills er rödd hins afturhalds-
samasta hluta brezk-ameríska auðmagnsins, sem óttast fram-
sókn þjóðanna og sósíalisma í heiminum. Krossferð lians
beinist ekki einungis gegn kommúnisma og Ráðstjórnarríkj-
unum, engu fremur en krossferð Hitlers, sem notaði hin
sömu slagorð. Henni er ekki hvað sízt beint gegn verkalýðs-
hreyfingunni og sósíalismanum í Bretlandi. Pólitík hans er
ekki aðeins andrússnesk. Hún er andbrezk. Pólitík hans
mundi gera Bretland að peði amerísku peningafurstanna,
að hernaðarlegum útverði þeirra gegn sósíölskum heimi,
að fórnarlambi þriðju heimsstyrjaldarinnar, sem fyrirhug-
uð er.