Réttur


Réttur - 01.01.1946, Síða 24

Réttur - 01.01.1946, Síða 24
24 RÉTTUR þjóðanna lönd annarra þjóða, er þeir gera að einokuðum mörkuðum og hráefnalindum fyrir sig: nýlendum. Frjálsa samkeppnin og smáiðnreksturinn var frá sjónarmiði hins almenna borgara framkvæmdin á lýðræðishugsjón hans: á frelsis- og jafnréttishugmyndunum á atvinnusviðinu í borg- aralega þjóðfélaginu. Á nokkrum áratugum er nú þessi frjálsa samkeppni eyðilögð, svo og smáiðnreksturinn að mestu íeyti, — og þar með þorri smáborgarastéttarinnar, stéttar smáatvinnurekenda, — en upp kemur fámennur pen- ingaaðall, sem læsir í einokunarklóm sínum banka, sam- göngutæki, námur, verksmiðjur — og þó framar öllu ríkis- valdið sjálft: embættiskerfið og hervaidið. Vald {ressa pen- ingaaðals 20. aldarinnar varð margfalt sterkara, bæði heima fyrir og gagnvart öðrum þjóðum, en vald aðals og einvalds- konunga á 17. og 18. öld varð nokkru sinni, — og í krafti auðs síns og einokunar á áhrifa- og atvinnutækjum tókst þessum peningaaðli um stund að halda völdum, þrátt fyrir almennan kosningarétt í sumum löndum, en var þó alltaf viðbúinn valdbeitingu, ef á þyrfti að halda. Um tíma þótti þessum nýja aðli auðmagnsins rétt að sýna verkamönnum nokkra tilhliðrunarsemi, einkum meðan hann þurfti á friði að halda heirna fyrir sökum sóknar sinn- ar í nýlendunum. Þessar tilslakanir í byrjun aldarinnar og síðar gáfu tilefnið til þeirra hugmynda, að hægt væri að tryggja friðsamlega, kreppulausa þróun til sósíalismans eða jafnvel fullkomna hagsæld alþýðunni til lianda á grundvelli auðvaldsskipulagsins og að verkalýðurinn þyrfti ekki að ein- beita baráttu sinni fyrst og fremst á að ná ríkisvaldinu úr höndum auðdrottnanna né gera ráð fyrir hörðum átökum og valdbeitingu við framkvæmd lýðræðis síns og því síður miða flokksskipulag sitt við slík harðvítug átök stéttanna, ofsóknir auðvaldsins, bann o. s. frv. Um þetta meðal annars varð liinn sögulegi ágreiningur milli sósíaldemókrata og kommúnista upp úr aldamótunum, er leiddi til klofnings- ins 1917-39.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.