Réttur - 01.01.1946, Page 26
26
RÉTTUR
að róttæk stjórn hafði verið mynduð upp úr kosningunum
1936, gerðu gósseigendur og auðmenn uppreisn til þess að
afmá lýðræðisformin, fyrst valdi þeirra var hætta búin af
þeim og tókst það á þrem árum með beinni aðstoð Þýzka-
lands og Ítalíu og óbeinni aðstoð ensk-franska auðvaldsins.
Peningaaðallinn áleit 1938 tímann kominn til þess að
sameina afturhald allra landa gegn lýðræði alþýðunnar, sós-
íalismanum í hvaða formi, sem hann birtist. Bandalagið í
Munchen var innsiglið á einingu afturhaldsins. Það banda-
lag sprakk árið eftir, sakir stjórnkænsku Ráðstjórnarinnar
og einnig vegna hins, að brezka auðmannastéttin varð að
láta undan lýðræðisöflum landsins, enda vildi hluti af brezku
auðmannastéttinni ekki una því að verða þeirri þýzku und-
irgefin. En peningaaðall Frakklands hélt Munchenpólitík-
inni áfram og sveik Frakkland 1940 í hendur Hitlers til
þess að afnema í samstarfi við þýzka peningaaðalinn lýð-
ræðið í Frakklandi og svo fór um fleiri auðmannastéttir.
En gegn þessu alþjóðlega bandalagi fasismans, sem pen-
ingafurstar heimsins höfðu komið á, sameinuðust smám
saman sterkari öfl: 1) sósíalismi Ráðstjórnarjrjóðanna, 2)
þjóðir Englands og Ameríku, að vísu undir forystu auð-
manna, en með allt vald þessara stórvelda á bak við sig, jafnt
frelsisunnandi alþýðustéttir þeirra sem drottnunargjarnan
peningaaðalinn, og 3) lýðfrelsishreyfingar undirokuðu land-
anna í Evrópu. Og með ósigri fasismans og lýðræðisbylting-
unum í Evrópu og Asíu 1945, hefst nýtt tímabil, gerólíkt
því, sem var 1918—39, — tímabil, þar sem m. a. forsendurnar
fyrir pólitík verkalýðshreyfingarinnar eru allar aðrar en áð-
ur var — og pólitíkin sjálf því eðlilega öðru vísi. Og eitt af
því, sem þar af leiðir, er að mikið af því, sem áður sundraði
sósíalistísku verkalýðshreyfingunni, eða Jiindraði friðsamlega
framkvæmd sósíalistísks lýðræðis, er nú að falla burt. Vér
skulum atliuga höfuðbreytingarnar, sem gera tímabilið
eftir 1945 svo gerólíkt tímabilinu 1918—39:
1) Peningaaðall Þýzkalands, Ítalíu og Japans er gersigr-