Réttur - 01.01.1946, Page 49
RÉTTUK
49
verið skipað niður á svipað villimannslegt frumstig og ríkj-
andi var fyrir daga reglulegrar bankastarfsemi, og bankarnir
herfilega brugðizt einni af sínum þýðingarmestu skyldum.
Á síðasta þingi bar Sigfús Sigurhjartarson fram frumvarp
til laga um breytingar á starfsháttum veðdeildarinnar, er
miðaði að því að kippa þessu í lag. Var þar gert ráð fyrir því,
að veðdeildin lánaði 50% af kostnaðarverði miðað við vísi-
tölu byggingarkostnaðar á hverjum tíma, en það mun eins
og nú standa sakir vera nálægt 45% raunverulegs kostnaðar-
verðs. Vextir af veðdeildarbréfum áttu að vera 4% og skyldi
bankinn skyldur að innleysa bréfin við nafnverði, svo að
öruggt væri, að sagan frá því fyrir stríð með 20—30% aiföll-
um þyrfti ekki að endurtaka sig. Þessi lán áttu eingöngu að
ganga til byggingarsamvinnufélaga og þeirra einstaklinga,
sem byggðu sér hús til að búa í þeirn sjálfir, svo að öruggt
væri, að húsabraskarar gætu ekki gert sér þau að féþúfu, með
því að halda húsaleigu óbreyttri, enda þótt þeir nytu svo
ódýrra lána. Þetta frumvarp hefði að verulegu leyti getað
kippt í lag hinu óhæfa fyrirkomulagi á lánum til byggingar-
framkvæmda, en það náði ekki fram að ganga. Þingmenn
Sósíalistaflokksins munu vitaskuld taka þetta mál upp að
nýju á komandi þingi.
Hér á landi hafa um alllangt skeið verið til lög um aðstoð
hins opinbera til byggingar verkamannabústaða. Hafa ríki
og bæjarfélög lagt vissa fjárhæð til þessara bygginga og ríkið
ábyrgzt lán til þeirra. Þessi þarfa löggjöf var orðin algerlega
ófullnægjandi og úrelt, og í því skyni var á síðastliðnu þingi
lagt fram frumvarp til nýrra laga um þessi efni, þar sem fram-
lag ríkis og bæja voru allmjög hækkuð og sömuleiðis láns-
upphæðir. Ennfremur á að veita ríkisábyrgð að lánum til
bygginga samvinnufélaga. Þetta frumvarp náði samþykki Al-
þingis. Enda þótt þessi löggjöf sé mjög merkileg og myndi
geta komið að miklu liði, eru á henni verulegir annmarkar,
sem meira að segja munu geta gert hana lítils verða í reynd-
inni. Þingmenn Sósíalistaflokksins reyndu eftir mætti að
4